Pressan - 04.02.1993, Qupperneq 10
10
FIMMTUDAGUR PRCSSAN 4. FEBRÚAR 1993
James Brian Grayson, faðir yngri dóttur Ernu. Hæstiréttur staðfesti varðhald yfir honum í gær, miðvikudag.
oou«
Harðar ásakanir
fyrir bandarískum
dómsstólumí for-
ræðismáli Ernu
Eyjólfsdóttur og
James Brian
Grayson-
'W: m \ <
Sjálfsmorðstilraunir,
lyfjaneysla og
sálræn vandamál
voru ástæður þess að að Grayson var dæmt forræði barnsins.
í dómsskjölunum í forræðis-
máli Ernu Eyjólfsdóttur og jarncs
Briatis Graysons kemur fram að
hún sé ekki hæf til að gegna móð-
urhlutverkinu. f dómsniðurstöð-
um héraðsdóms Santa Rosa-sýslu
í Flórída segir að hún þjáist af
andlegum kvillum og hafi reynt að
skaða sjálfa sig og hótað að skaða
börnin. Þá fullyrðir lögmaður
Graysons að hún hafi dvalið á
meðferðarstofnun í meira en eitt
oghálft ár.
Erna hefur undanfarna daga
svarið af sér þungar ásakanir, nú
síðast þegar Judy Feeney, eigin-
kona Donalds Feeney, þess sem
situr í fangelsi hér á landi, hélt því
fram að Ema hefði viljað fá fé fyrir
að láta dætur sínar af hendi. Erna
neitar þessu staðfastlega og segir
þetta fáránlega lygi. Hún segir
megnið að því sem feður dætra
sinna hafi haldið fram helbera
lygi. En þetta eru ekki einu ásak-
anirnar á hendur Emu. Barry W.
McCleary, lögmaður Graysons,
föður yngri dóttur Ernu, heldur
því fram að Erna sé vanhæf móðir
og ber henni mjög illa söguna. Hér
er á ferðinni enn eitt forræðismál-
ið milli landa þar sem aðilar
málsins telja „ beitingu hnefarétt-
arins“ vænlegri en ap leita til
dómstóla.
ERNA SÖKUÐ UM ÓREGLU
OG SÁLRÆNA ERFIÐLEIKA
Barry W. McCleary lögmaður
segir í samtali við PRESSUNA að
ýmsar ástæður séu fyrir því að
Erna hafi misst forræði dætra
sinna. Það hafi komið fram fyrir
dómstólunum að Erna hafi verið
óreglusöm og farið í áfengismeð-
ferð og meðferð vegna ofnotkunar
á róandi lyfjum á meðan hjóna-
bandi hennar og Graysons stóð.
Hún hafi reynt að fyrirfara sér
skömmu fyrir skilnaðinn og verið
í meðferð hjá sálfræðingum.
MaCleary heldur því einnig fram
að Erna hafi samtals dvalist á
meðferðarstofnun (mental faciliti-
es) í rúmlega eitt og hálft ár. Hann
segir það ljóst að börnin hafi búið
við slæmar aðstæður eftir skilnað-
Erna Eyjólfsdóttir reyndi sjálfsvig skömmu fyrir skilnaðinn, að sögn lögmanns fyrrum eiginmanns hennar.
inn. Effir að þau skildu að skipt-
um hafi Ema búið á 5-6 stöðum á
aðeins þremur mánuðum og verið
í sambúð með nokkrum mönn-
um. Þessar upplýsingar hafi kom-
ið fram við rannsókn einkaspæj-
ara á vegum lögffæðingsins.
FÉKK BRÁÐABIRGÐAFOR-
RÆÐIYFIR BÖRNUNUM
Komið hefur fram í viðtölum
við Ernu að hún hafi afráðið að
stinga af með dætumar til íslands
þegar hún gerði sér grein fyrir að
hún væri að tapa forræðismálun-
um. Erna hafði fengið dæmt for-
ræðið yfir yngri dótturinni með
bráðabirgðaúrskurði í október
1991. Þá þegar var Erna borin
þungum sökum af Grayson og
fjölskyldu hans, en dómarinn taldi
samt sem áður rétt að láta Ernu fá
forræðið. Þó tók hann það fram
að ábyrgðin á baminu ætti að vera
jöfn milli foreldranna. Grayson
fengi umgengnisrétt aðra hverja
helgi og skikkaði dómarinn bæði
Ernu og Grayson til að fara í sál-
fræðilegt mat. Þegar McCleary