Pressan - 04.02.1993, Blaðsíða 15

Pressan - 04.02.1993, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR PRESSAN 4. FEBRUAR 1993 15 dansari. iunn Olina Þorstemsi I asar Kormákur voru dags- og sunnudagskvc Klossatískan gengur aftur Klossar með þykkum botni eru farnir að sjást æ oftar á fótum helstu tískusýningarstúlkna heims, enda boða tískukóngamir slíkan skófatnað með vortískunni. Klossarnir eru þó mun fjölbreytt- ari að gerð og lögun en þeir vom hér á landi um miðjan áttunda áratuginn þegar allar íslenskar stúlkur fermdust á dönskum upp- hækkuðum kína-klossum ffá Gísla Ferdinandssyni skósmið. Stoðtækjafræðingurinn Kol- beinn Gíslason, sonur Gísla Ferd- inandssonar, var ekki nema átján ára þegar klossatískan reið yfir landið. Hann átti gullgrafarahug- myndina um að hækka klossana og segist fyrir vikið ekki hafa haft verri laun en hver annar togara- sjómaður. ,Ætli ég hafi ekki hækkað hátt í tíu þúsund pör af klossum á tveimur áram. Ég var öll kvöld og allar helgar að skera út botna. Klossatískan varð í raun og vem að þreföldum bissness, því fyrst bætti maður nokkmm sentímetrum undir sólann og hælinn á innfluttu dönsku andar- nefjaklossunum, eins og þeir voru gjaman kallaðir, því táin var sér- staklega breið. Þegar kínaboma- tískan kom vildu stúlkumar halda í gömlu klossana og því vom botnamir skornir af og kínabotn- arnir settir undir. Svo fékk maður allt aftur í hausinn þegar háu botnamir fóm úr tísku,“ segir hugmyndaffæðingurinn Kolbeinn Gíslason. Nú segist Kolbeinn hins vegar (svona meira í gríni en alvöru) vera að bæta fyrir skaðann sem hann vann á fótum stúlknanna með stoðtækjavinnu sinni. Þess má geta að hæstu klossarnir sem Kolbeinn hannaði voru 17 sentí- metrar en að meðaltali hækkuðu „íslensku" klossarnir fermingar- stúlkumar um 10 sentímetra, sem hefur sjálfsagt gert hlutfallið á hópfermingarmyndunum enn skondnara, því eins og allir vita er vart farið að togna úr drengjunum á þessum árum. Söngvakeppni Sjónvarpsins er að fara í gang enn og aftur og meðal flytjenda þetta árið er Ingibjörg Stefánsdóttir, leikkona úrVeggfóðri og söngkona Pís of keik. „Þetta er engin skagfirsk sveifla sem ég er að fara að syngja og alls ekki júróvisjónlegt lag," seg- ir Ingibjörg. „Þetta er einfaldlega fallegt lag og það var þess vegna sem ég ákvað að slá til og vera með." Hún hefur verið margspurð að því hvort Pís of keik flytji lagið, en svo er ekki, heldur syngur Ingi- björg það einsömul með stuðningi bakradda og hljómsveitar Sjón- varpsins. Um þessar mundir er Ingi- björg að vinna í Skíf- unnien hún hefur þó greinilega áhuga á söngnum. Hún segir það með öllu óvíst hvort hún kemurtil með að leggja hann fyrir sig í framtíðinni, hún sé nýbúin að Ijúka stúd- entsprófi og langi til að hvíla sig á námi um tíma. Ingibjörg heldur áfram að syngja með Pís of keik, sem nú undirbýr plötuútgáfu. ir, ona úr ggfóðri söngkona Pís ofkeik, syngur eitt laganna í Júróvisjón íár. Klossarnir sem koma með vorinu. Ef sagan endurtekur sig má búast við að tréklossarnir eigi eftir að hækka um fjölda sentímetra áður en langt um líður. Kolbeinti Gísla- son, hugmynda- ogstoðtækja- Jræðingur, skar út klossabotna í tonnavís á átt- unda áratugn- um ogsegist ekki hafa haft verri laun en togarasjómað- ur. Hver veit nema annað slíkt gósentíma- bilfari í hönd. N Y A N D L I T Þóttþær séu rétt skriðnaryfir tvítugt eru þær Christy Tur- lington, Linda Evangelista ogNaomi Campell stúlkurgær- dagsins, að ekki sé talað um Cindy Crawford ogaðra enn eldri smelli. Þessi módel eru núað hverfa í skuggann af arf- tökum sínum; Kate Moss, Beverly Peele og Leilani Bishop. Þœr eru stúlkur dagsins í dag. Við mælum með ... að íslendingar fari að sætta sig við ótíðina þeir hafa búið hér í 2019 ár, s vo það er ef til vill kominn tími til. ... ömmum þær eru ekki bara nothæfar sem barnapíur heldur búa margar þeirra til fádæma góðar kökur. ... að Hallgrímur Magnússon verði skipaður veðurstofustjóri þótt landlæknir segi að hann sé ekki góður læknir getur vel verið að hann sé fr ábær veðurfræðing- ur. ... blaðakostinum á Café List það er ákveðinn elegans yfir því að þykjast vera að lesa spænsku blöðin. Efnishyggja. Ekki sú sem uppamir sálugu gerðu að tískufyrirbrigði heldur efriishyggjan sem Þor- steinn Gylfason boðaði í bókinni sinni fyrir jólin. (Hann er talinn einn af gáfuðustu íslendingnum, samkvæmt könnunum, og því er allt sem hann segir inni.) Efnis- hyggjan er líka ákveðinn léttir eftir nýaldarbullið. Þorsteinn segir geðveiki ekki til, nema helst sem einkenni á boðefnabúskap heil- ans. Samkvæmt því skiptir engu máli hversu illa foreldrar þínir fóm með þig, hversu illa makinn skilur þig (eða skilur við þig) eða hversu langt er ffá því að þú njótir sannmælis eða þeirra ávaxta sem þú átt skiliðHífinu. Hvflíkur léttir. Á ffumsýningunni á Húsverðinum eftir Pinter í fslensku ópemnni vom meðal gesta þau Ólafur Ragnar Grímsson og Guð- . rún Þorbergsdótt- | ir og Gunnar Eyj- ólfsson og Bessi Bjamason, sem fóm með hlutverk í I Húsverðinum ásamt ' Vali Gíslasyni fyrir ’ þrjátíu árum. Þarna vom líka Stefán Baldursson þjóðleik- hússtjóri, Helgi Skúlason og Helga Bachmann, Þórhild- ur Þorleifsdóttir og dóttir hennar, Sólveig Amarsdóttir, og Er- lingur Gíslason. Á líbanska veitinga- staðnum Marhaba var á laugardags- kvöldið fjöldi kunnra gesta, þar á meðal þau hjón Helgi Bjömsson og Vilborg Halldórsdóttir, Richard Scobie og umboðsmaður hans, Denni (Þorsteinn Kragh), og Lissý (Elísabet) Cochran. Á Ömmu Lú er nú farið að bjóða upp á þriggja rétta eðalmál- tíð á aðeins 1.993 krón- ur. Máltíðina á föstu- dagskvöld reyndu meðal annars þau Sigursteinn Másson fréttamaður og vinkona hans Unnur Kristjánsdóttir módel. Þar snæddu einnig þau myndlist- arhjón Hulda Há- kon og Jón Ósk- og bróðir Tindur Sigurveig Jónsdóttir, fyrrum fféttastjóri Stöðvar 2, og Bjami Dagur Jónsson. Þar var einnig Vilhjálmur Egilsson alþingismaður og fjölmargir af auglýsingadeild Morgunblaðsins. Viðkomu í kokkteilboðinu á Casa- blanca, sem nýverið hefur fengið sex skemmtanastjóra til liðs við sig, höfðu þau Einar Páll Tómasson, fótbolta- kappi úr Val, Stefán Baxter, sem var kunnur dansari hér í eina tíð, og nafni hans af Sólbaðstofu Reykjavíkur, Valdi í Valhöll, Halldór Backman á FM 957, Svava Haraldsdóttir fyrrum ungffú fsland, Patrekur Jóhannesson, lands- liðsmaður í handknattleik, og María Rún Hafliðadóttir, núverandi íslands- fegurðardrottning. Þarna vom einnig ........................ og Helena Á afmælishátíðinni á Bíó- barnum, sem stóð ff á klukk- an sex á sunnudaginn ffam á rauða nótt, vom meðal gesta leikararnir Tinna Gunnlaugs- dóttir og Egill Ólafsson og Stein- Ólína Þorsteinsdóttir og Balt- laugar- og sunnudagskvöld. Fleira leik- brá sér inn, þar á meðal leikar- inn og leikstjórinn Ása Hlín Svavars- dóttir, Jóhann Sigurðarson og Edda Heiðrún Backman. Þarna fögn- uðu einnig þeir Sigurður Pálsson og Hilmar Oddsson og vinimir Magnús og Magnús, sem eiga sama affnælisdag og Bíóbarinn. Þá vom þær Kolbrún Bergþórsdóttir og Guðríður Har- aldsdóttir á gestalistanum sem og nýr fréttastjóri Alþýðublaðsins, hann Hrafn Jökulsson. Þá er tattóið orðið úti, eins og það er stutt síðan það komst í tísku. Þeir sem létu sér nægja að notast við gervitattó em í góðum málum. Þeir fara bara í bað og henda birgðunum af álímanlega tattóinu sínu. Hinir, sem fengu sér alvörat- attó, em hins vegar í verri málum. Þeir geta ekki farið í sund, ekki klæðst baklausum kjólum, ekki brett upp ermarnar og margt, margt fleira sem gefúr lífinu gildi. Þeir verða að hylja tattóið sitt — allt þar til það kemst aftur í tísku. Miðað við tattóin hans Bubba Morthens ætti það að vera í kring- um 2002. Bubbi hafði eitt eða tvö um 1980 en var kominn með fjögur eða fimm fyrir skömmu. Ef hann fær sér tvö ný í hvert sinn sem tat- tóvering kemst í tísku með tíu ára millibili verður hann orðinn alþakinn um sjötugt. „Ég verð nú seint kallaður einhver einkavæðingarsinni, en mérfinnst samt sem áður kjörið að einkavæða lögguna. Það erað segja þann hluta rekstrarins sem snýr að okkur sem stundum barina af einhverri festu. Um daginn lagði égmigfullmikiðfram ogsofhaðú Þegar égvaknaði var égstaddur í ákaflega óvistlegum klefa inni á löggustöð og var síðan rukkaður um gistinguna. Efum einkafyrirtæki hefði verið að ræða hefði éggetað sett fram einhverjar kröfur um þjónustu á móti. En löggan var eins og týpískur opinber starfsmaður: Hirtu það sem að þér er rétt, borgaðu og haltu kjafti. “

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.