Pressan - 04.02.1993, Page 28

Pressan - 04.02.1993, Page 28
28 FIMMTUDAGUR PRESSAN 4. FEBRÚAR 1993 SJÓNVARP 17.00 HM í skíðaíþróttum 18.00 Stundin okkar. E 18.30 Fílakonungurinn Babar. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 Auðlegð og ástríður 19.25 Úr ríki náttúrunnar. 20.00 Fréttir. 20.35 Syrpan. íþróttir. 21.10 Einleikur á saltfisk. Jordi Busquets gefur nýjar hug- myndir. 21.35 Eldhuginn. 22.25 Banvæn blekking. Deadly Deceptions. INFACT-samtök- in hvetja neytendur til að sniðganga vörur frá risafyrir- tækinu General Electric. Heimildamynd þessi hlaut Óskarinn í fyrra. 23.00 Ellefufréttir. 23.10 Þingsjá. MsssnssnM 17.30 Þingsjá. E 18.00 Ævintýri Tinna. 18.30 Barnadeildin. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 Poppkorn. 19.30 Ed Sullivans. 20.00 Fréttir. 20.35 Kastljós. 21.05 Derrick. Gamli vinur! 22.05 Örlítið meiri diskant. Ágrip af ferli Ingimars Ey- dals. 23.10 Ferðin til Knock Joumey To Knock. Bresk sjónvarps- mynd. Þrí r menn, allir þundnir hjólastól, ferðast saman til Knock á írlandi. 00.30 Útvarpsfréttir. LAUGARDAGUR 09.00 Morgunsjónvarp barn- anna 11.10 Hlé. 14.25 Kastljós. E 14.55 Enska knattspyrnan. As- ton Villa og Ipswich. 16.45 fþróttaþátturinn. 18.30 Bangsi bestaskinn. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 Strandverðir. 20.00 Fréttir. 20.35 Lottó. 20.40 Júróvisjón. Enn á ný. Fyrstu fimm lögin kynnt. 21.10Æskuár Indiana Jones. The Young Indiana Jones Chronicles. 22.00 Úr vöndu að ráða. Made For Each Other. Amerísk sjónvarpsmynd frá 1990. Ekkja nokkur ræður sig sem ráðskonu á heimili ríkrar konu. 23.30 ★** Hættuspil Risky Business. Amerísk frá 1983. Skemmtilega „orginal" mynd um unglingspilt sem slettir úr klaufunum þegar foreldrar hans fara burt úr bænum. 01.05 HM í skíðaíþróttum. 02.00 Útvarpsfréttir. SUNNUDAGUR 09.00 Morgunsjónvarp barn- anna . 11.00 Hlé. 15.00 Úthverfanornir. Carodejky z predmestí. Tékknesk frá 1990. Tvær stúlkur finna galdrabók. 16.30 Bikarkeppni kvenna í handbolta. 17.50 Sunnudagshugvekja. 18.00 Stundin okkar. 18.30 Grænlandsferðin. E 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 Tiðarandinn Rokkþáttur. 19.30 Fyrirmyndarfaðir. 20.00 Fréttir. 20.35 Bikarkeppni karla í hand- knattleik. 21.20 Sértu lipur, læs og skrif- andi. Alþýðufræðsla á (s- landi. 22.10 Vafagemlingur. A Questi- on of Attribution. Bresk sjón- varpsmyndfrá 1991. Njósna- ferill Anthonys Blunt er vel þekktur en hann notaði starf sitt sem málverkavörður Bretadrottningar sem skálkaskjól. Tvöfeldni hans varð til að vekja tortryggni bresku leyniþjónustunnar. 23.20 Svartur sjór af síld. Síldar- ævintýrið mikla. E 00.05 Útvarpsfréttir. Ekki sama kalíber og Hemmi Gunn! „Það var talað við mig og ég sagði já,“ sagði Steinn Ármann Magnússon leikari þegar hann var inntur eftir því hvernig stæði á kynnishlutverki hans í hinni árlegu Júróvisjón. „Þetta verður hefðbundin kynning, ég verð dressaður upp og kem upp- lýsingum á ffamfæri.11 Steinn Ármann er enginn nýgræðingur í kynnisstörfum og síðast sást til hans þegar hann kynnti lög í söngvakeppni Fjölbrautaskólans í Breið- holti. „Þetta er ekki nýtt fyrir mér þótt ég segi ekki að ég sé af sama kalíberi og Hemmi Gunn, en kynnisstarfið í keppninni er ákveðin viðurkenning.“ Á úrslitakvöldinu sér Óskar Jónasson um að skemmta landsmönn- um, en útsendingin er löng og því nauðsyn að hafa glensatriði á milli þess sem tölur dómnefnda eru kynntar. Steinn Ármann sagði að . þrátt fyrir að hann hygðist ekki grínast í Júró væru hann og Óskar, ásamt nokkrum öðrum, að vinna að gerð grínþáttar fyrir sjónvarp í og þegar hefði verið samþykkt að taka einn þátt til sýningar. „Við vonum að þar verði framhald á, en ég vil síður hafa stór orð um það nú. Eftir að hafa verið í útvarpi verður gaman að gera þætti fyrir sjónvarp.11 Er komin spésveit sem tekur við af Spaugstofunni? „Það er engin reynsla komin á þetta enn og framtíðin leiðir í Ijós hvernig okkur vegnar. Ég hef verið að skemmta fólki í nokkurn tíma og er kominn með annan fótinn inn í þetta. Viðbrögðin hafa verið góð hingað til og vonandi verður svo áfram.“ „Þetta verður hefðbundin kynning, ég verð dressaður upp og kem upp- lýsingum áframfceri. “ 16.45 Nágrannar. 17.30 Með afa.E 19.1919.19 20.15 Eiríkur. 20.30 Eliott-systur II. 21.20 Aðeins ein jörð. 21.30 Framlag til framfara. Um- ræðu um íslenskt athafnalíf. 22.20 SHomer og Eddie. Amer- ískfrá 1990. Whoopi Gold- berg og James Belushi í fá- ránlegustu uppákomum. 00.00 I lífsháska. Anything To Survive. Amerísk sjónvarps- mynd frá 1990. Faðir með börn sín þrjú lendir í sjávar- háska. 01.30 Skuggamynd. Silhouette. Amerísk frá 1990. Kona nokkur verður strandaglóp- urílitlumbæfTexas. 16.45 Nágrannar. 17.30 Á skotskónum. Teiknim. 17.50 Addamsfjölskyldan. 18.10 Ellýog Júlli 18.30 NBA-tilþrif.E 19.1919.19, 20.15 Eiríkur. 20.30 Óknyttastrákar II. 21.00 Stökkstræti 21. 21.50 ® Karatestrákurinn III. The Karate Kid III. Amerísk frá 1989. Þriðja myndin um Karetestrákinn, sem nú er vaxinn úrgrasi. 23.45 Parker Kane. Amertsk frá 1990. Harðsvíraður einka- spæjari leitar hefnda fyrir morð á vini sfnum. 01.20 Henry og June. Henry & June. Amerísk frá 1990. Erótísk ástarsaga byggð á dagbókum Anais Nin. 03.05 ★ Bandóði bíllinn The Car. Amerísk frá 1977. Mynd sem snýst um óút- skýranlega orku sem leynist í drápsjúkum bfl. LAUGARDAGUR 09.00 Með afa. 10.30 Lísa í Undralandi. 10.50 Súper Maríó-bræður. 11.15 Maggý. 11.35 Ráðagóðir krakkar. 12.00 Jack Hanna. 12.55 ★★★ Borð fyrir fimm. Ta- ble for Five. Amerísk frá 1983. Fráskilinn maður (Jon Voight) fer með börn sfn þrjú í ferðalag til Evrópu og reynir með því að bæta þeim það upp að hafa ekki sinnt þeim sem skyldi. 15.00 Þrjúbíó. Snædrottningin. 16.00 Nýdönsk á Englandi. E 16.30 Leikur að Ijósi. Lýsing í leikhúsi og kvikmyndum. 17.00 Leyndarmál. Sápa. 18.00 Popp og kók. 18.55 Fjármál fjölskyldunnar E 19.05 Réttur þinn. E 19.1919.19 20.00 Morðgáta. 20.50 Imbakassinn. 21.10 Falin myndavél 21.35 ★★★ Hringurinn Once Around. Amerísk frá 1991. Ung hlédræg kona fellur fyr- ir ofurhressum en pínlega leiðinlegum sölumanni sem sundrarfjölskyldunni. 23.25 ★★★ Nornirnar frá Eastwick The Witches of Eastwick. Amerísk frá 1987. Þrjár konur hungrar ( karl- menn og véla til sín sjálfan Satan. 01.20 ★★ Leikskólalöggan. Kindergarten Cop. Amerísk frá 1990. Lögreglumaður bregður sér í hlutverk bam- fóstru til verndar dreng- snáða sem morðingjahendi vofir yfir. 03.10 ★★★ Koss kóngulóar- konunnar. Kiss of the Spi- derwoman. Amerísk-brasil- ískfrá 1985. Tveimur mönn- um er haldið föngnum f Suður-Amerfku, annar er hommi en hinn pólitfskur uppreisnarmaður. John Hurt fékk Óskarinn fyrir leik sinn. SUNNUDAGUR 09.001 bangsalandi II. 09.20 Kátir hvolpar. 09.45 Umhverfis jörðina í 80 draumum. Kalli sjóari lendir í ótrúlegum ævintýrum á furðufarartæki. 10.10 Hrói höttur. 10.35 Ein af strákunum. 11.00 Móses. Biblíusaga sögð. 11.30 Fimm og furðudýrið. 12.00 Evrópski vinsældalistinn. Topp 20 á MTV. 13.00 NBA-tilþrif. 13.25 ftalski boltinn 15.15 Stöðvar 2-deildin Svip- myndir úr heimi íþróttanna. 15.45 NBA-körfuboltinn. 17.00 Húsið á sléttunni. Little House on the Prairie. Ingalls- fjölskyldan á skjánum á ný. 18.00 60 mínútur. Bandarískur fréttaþáttur. 18.50 Aðeins ein jörð. 19.19 19.19 20.00 Bernskubrek. The Wonder Years. Kevin Arnold í stöð- ugum vandræðum. 20.25 Heima er best. 21.15 Kaldrifjaður kaupsýslu- maður. Underbelly. Breskur spennumyndaflokkur. Bíræf- inn viðskiptarefur á yfir höfði sér þriggja ára fangelsisvist. Hann reynir að flýja en kemst fljótlega að því að hann er vinafár. 22.05 ★★★ Tex. Amerísk frá 1982. Tveir bræður á ung- lingsaldri alast upp án for- eldra sinna. Sá yngri (Matt Dillon) er óframfærinn og fá- máll, gagnstætt eldri bróð- urnum, sem er kjarkaður en jafnframt óþolinmóður. Ekki slæmt drama. 23.45 ★★ Heillagripur. The Object of Beauty. Atnerísk frd 1991. Uppaparið Jake (John Malkovich) og Tina (Andy McDowell) lifa svo sannarlega hratt og langt um efni fram, en komast að því að tilveran getur ef til vill verið innihaldsríkari. Efni myndarinnar kemst aldrei almennilega á flug en frammistaða leikaranna bætir fyrir það að nokkru. TVÍFARAR Meistaraspæjarinn George Blake var á sínum tíma dæmdur af löndum sínum, Bretum, til 42 ára fangelsisvistar fyrir bága frammistöðu í Ieyniþjónustunni og greiðvikni sína við Rússa. Hann flúði hins vegar úr prisundinni fjórum árum síðar. Guðmundur G. Þórarinsson hefur hlotið svipuð örlög en þó aðeins mildari. Honum var á sínum tíma vikið úr fyrsta sætinu á framboðslista Framsóknar í Reykjavík; hugsanlega fyrir bága frammistöðu og of mikla greiðvikni við eldislaxa. Hvað um það; þeir Guðmund- ur og George hafa sama augnsvipinn, sama ennið og sömu kinnbeinin. George er eilítið sjálfsöruggari til munnsins, enda gat hann leitað skjóls hjá Rússun- um, vinum sínum, effir brottreksturinn úr leyniþjónustunni. Ef marka má við- kvæmnislegan munnsvip Guðmundar á hann ekki í mörg hús að venda. Eins og önnur smámenni eru Is- lendingar sem kunnugt er ýmist bólgnir af mikilmennskubrjálæði eða niðurkýldir af innibyrgðri minnimáttarkennd. Um þetta hafa verið skrifaðar lærðar grein- ar en allt kemur fyrir ekki. fslend- ingar skána ekkert. Eins og aðrir sem svipað er ástatt um skilja ís- lendingar öll mál út frá sjálfinu f sér. Þeir meta fyrst hvort málin séu ögrun við stöðu þeirra, hvort þeir geti aukið virðingu sína af þeim eða hvort þau kunni að verða blettur á orðstír þeirra. Og þar sem þetta er mergurinn málsins ígrunda íslendingar sjaldnast málin miklu lengur-en tekur að komast að niðurstöðu um þessi tilteknu atriði. Eitt dæmi frá umliðnum árum: Islendinga hefur aldrei skipt nokkru máli hvort það eru fleiri eða færri hvalir í sjónum. Aðal- málið er að þeir þurfi ekki að beygja sig undir skoðanir ein- hverra útlendinga þar um. Ef Is- lendingar eiga að hætta hval- veiðum án þess að tapa sjálfs- virðingunni verða þeir að finna það upp hjá sjálfum sér. Alveg á 0 sama hátt og alkó- • hólistar (en saman- súrruð minnimátt- arkennd er eitt af sjúkdómseinkenn- um þeirra) telja sjálfum sér alltaf trú um að þeir hafi ein- ir og óstuddir ákveðið að fara í meðferð — jafnvel þó að eigin- konan, atvinnurekandinn, banka- stjórinn, börnin og hundurinn hafi sett þeim stólinn fyrir dyrnar, hótað að yfirgefa þá eða reka þá einfaldlega út á guð og gaddinn. Annað dæmi frá umliðnum ár- um: íslendingum er nokk sama um hvað hæft er í ásökunum um að Evald Mikson hafi stundað stríðs- glæpi fyrr á árum. Öllu meira máli skiptir að Islendingar hlaupi ekki upp til handa og fóta þótt einhverjir útlendingar haldi því fram — og það menn sem kunna sig svo illa að þeir trana sér fram í opinberum heimsókn- um til að koma dónaskapnum af sér. Ef íslendingar hafa skotið skjólshúsi yfir stríðsglæpamann eiga þeir að standa við þá ákvörðun sína. Alveg á sama hátt og aðrir sem eiga í erfiðleikum með sjálfa sig. Þeir skipta ekki um skoðun. Þeir brotna frekar en að beygja sig. Og eitt dæmi til: Islendingum er sem kunnugt er vel við útlendinga svo framar- lega sem þeir halda sig heima hjá sér. Um helmingur þjóðarinn- ar var til dæmis á móti EES-samn- ingunum vegna þess að hann óttaðist að útlendingar mundu flæða yfir landið um leið og samningarnir tækju gildi; Kínverj- ar mundu opna hér þvottahús, Kólumbíumenn skipuleggja eit- urlyfjasölu og Japanir kaupa Seðlabankahúsið og bestu lax- veiðiárnar. Og þá kemur dæmi af nýliðn- um dögum: Þetta útlendingahatur ristir svo djúpt í þjóðarsálina að það er ekki einskorðað við mann- skepnuna. Þegar rússneskir togarar fóru að landa hér þorski úr Barentshafi myndað- ist mikil andstaða við það. Þessi þorskur þótti ljótari en sá íslenski, hann var ekki eins vel þrifinn og menn grunaði að rottur og önnur meindýr blómstruðu um borð í rússnesku togurunum. Þrátt fyrir ítrekaða leit fannst engin rotta en það skipti ekki máli. Sá (slendingur er ekki til sem ekki er tilbúinn að varna því að þessi aðskotaþorsk- ur kássist upp á hinn hreinrækt- aða íslenska þorsk. ... fær Ragnheiður Runólfsdóttir og annað sundfólk fyrir að ætla að flytja íslandsmótíð í sundi tíl Skotíands svo ekld þurfí að byggjayfir Laugar- dalslaugina.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.