Pressan - 05.08.1993, Side 4
NEYTENDAMÁL
4 PRBSSAN
Fimmtudagurinn 5. ágúst 1993
rr /
Nemendur
sniðgengn-
aigar
Riddara-
legi ráð-
herrann
„Þegar ég var aðfara yfir
föstudagsverkin, þ.e. hafa
samband við þá sem voru með
atvinnuauglýsingar í vikunni,
fá svör og síðan „strika út“ þá
datt tnér í hug snjallrœði og
göfuglyndi ráðherrans Sig-
hvats Björgvinssonar í garð at-
vinnulausra. Skipun hans um
að ráða ekki til starfafólk sem
þegar sé í starfi. Ég bíð tneð
önd í hálsi eftir að heyra um
að ráðherrann segi af sérþing-
mennsku á meðan hanngegn-
ir ráðherradómi. Síðanfari
samráðherrar hans eins að og
sýni þatinig gott fordcemi.“
Vestarr Lúðvíksson í DV.
Sighvatur Björgvinsson iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra:
„Lesendabréf þetta er dæmi-
gert fyrir fólk sem finnur hjá
sér þörf til að fjalla um mál-
efni sem það veit ekki nokk-
um skapaðan hiut um. Ef ég
myndi segja af mér þing-
mennsku myndu útgjöld rík-
issjóðs ekki minnka, heldur
þvert á móti vaxa sem næmi
einum þingmannalaunum.
Ráðherra er vitaskuld bæði
þingmaður og ráðherra og
ráðherralaunin eru innifalin í
þingfarakaupinu. Ef ég hætti
sem þingmaður myndi ég
halda mínum launum, auk
þess sem þyrfti að greiða við-
bótar þingfararkaup til nýs
þingmanns.“
ir
„Viðgetum ekki orða bundist
vegna þeirra aðgerða sem hafa
átt sér stað í garð Pauls Zukof-
skys og Sinfóníuhljómsveitar
œskunnar (SÆ) . ..vekurþað
undrun og reiði að hljómsveit-
armeðlimir hafa gjörsamlega
verið sniðgengnir í sambandi
við ákvarðanatöku stjórnar-
innar... Skýturþað því
skökku við að svo mikilvœgt
mál sé meðhöndlað ájafn
ólýðrœðislegan hátt. Hver er
réttur hljómsveitarmeðlima?'
Utia Sveinbjarnardóttir, Jón-
ína Auður Hiltnarsdóttir og
Hlín Erlendsdóttir, tneðlitnir í
SÆ, í Morgunblaðinu.
Runólfur Birgir Leifsson,
stjómarmaður í SÆ:
„Það er rétt sem ffam kemur
í bréfinu að fulltrúi nemenda
í stjóm SÆ var staddur er-
lendis þegar tekin var endan-
leg ákvörðun um að óska
ekki ff ekar eftir samstarfi við
Paul Zukofsky. Fulltrúinn sat
hins vegar alla stjórnarfundi
ffam að því og var því full-
kunnugt um í hvað stefndi.
Viðræður við ýmsa fýrrum
nemendur SÆ hafa orðið til
þess að sannfæra okkur í
stjórn SÆ enn frekar um að
ákvörðun okkar var rétt og
farin var farsælasta leiðin í
þessu máli.“
Skussa-
háttur sjó-
manna
„Mérþykir litjlega tekið á
málutn sjómanna sem ekki
virða reglur um tilkynninga-
skyldu. Eins ogfratn kotn í
frétt utn sjómanninn á
Nökkva IS hafði hanti ekki
látið svo lítið að tilkynna sig
frá því í mars í vetur. Og
vegna þess að hann hafði látið
undir höfuð leggjast að til-
kynna sig varþað bara látið
afskiptalaust. Svo þegar eitt-
hvað bjátar á eiga allir að
hlaupa upp til handa ogfóta
og bjarga. Þessir trassar storka
ekki bara örlögunum. Þeir
storka þjóðinni setn borgar
brúsann.“
Pétur Jónsson í DV.
Hálfdán Henrýsson, deild-
arstjóri björgunardeildar
Slysavamarfélags íslands:
„Gagnrýnin er réttmæt en
málið er erfitt viðureignar. 1
þeim tilfellum þegar sjó-
menn hætta að tilkynna sig
göngum við út ffá því sem
vísu að þeir séu í landi. Sú
virðist þó ekki alltaf vera
raunin. Síðustu tvö ár höfúm
við heimsótt verstöðvar um
allt land og ítrekað fýrir sjó-
mönnum að sinna tilkynn-
ingaskyldu. Umvöndunar-
leiðin hefur borið árangur en
þó eru greinilega einhverjir
sem ekki láta segjast. Því er
ekki útilokað að gripið verði
til þess í framtíðinn að sekta
sjómenn sem ekki gæta
fyllsta öryggis í starfi.“
notaði bilinn til einkanota
Dóra Halldórsdóttir lét bíl sinn á sölu fýrr á þessu ári hjá bílasölunni Auðvitað en segir fár-
ir sínar ekki sléttar í viðskiptum við fýrirtækið. Á þeim rúma mánuði sem bíllinn var á
söluskrá brúkaði eigandi bílasölunnar hann til einkanota, og var útgangurinn slíkur þegar
hún fékk hann aftur til baka að þegar runnu á hana tvær grímur. Eigandi bílasölunnar
reyndi að Ijúga til um hvað olli sóðaskapnum en Dóra hefur fengið grun sinn staðfestan
um að ekki hafi verið allt með felldu
„Ég leitaði eftir milligöngu
bílasölunnar Auðvitað á
Höfðatúni 10 í marsmánuði
um sölu á sex ára gömlum
Skoda sem ég á, einkanlega
vegna þess að hjá þeim reynd-
ust sölulaunin vera þau lægstu
í bænum. Ég hugðist einungis
sjá til hvort hann hreyfðist
eitthvað og vissi að sjálfsögðu
að það yrði ekki slegist um
hann enda ekki um neina
glæsikerru að ræða. Bíllinn er
hins vegar í ágætu standi og
snyrtilegur og eigendum bíla-
sölunnar var skylt að fara eins
vel með hann og kostur var
þrátt fýrir að hann væri kom-
inn til ára sinna. Annað kom
nú aldeilis á daginn og fékk ég
hann til baka drulluskítugan
að innan með kúfaða ösku-
bakka og sígarettuösku um
allt, sem þeir sögðu að væri
eftir stressaða bílstjóra í
„reynsluakstri". Síðar fékk ég
einnig stöðumælasekt sem ég
mátti greiða sjálf. Það var
greinilegt að bíllinn hafði verið
notaður, og það mikið.“
Var þér Ijóst strax í upphafi
að ekki varallt með felldu?
„Meðan bíllinn var á sölu-
skrá hringdi ég nokkrum sinn-
um til að athuga hvernig
gengi. Ég átti það einnig til að
keyra framhjá og það vakti
furðu mína að bíllinn var
aldrei á staðnum. Þegar ég
innti Jótias Ástráðsson, annan
eigenda bílasölunnar, eftir því
hveiju þetta sætti svaraði hann
því til að áhuginn væri svona
mikill á bílnum, að það væri
bara stöðugt verið að reynslu-
aka honum. Mér fannst þetta
allt afar undarlegt og varð
fljótlega ljóst að maðurinn var
að ljúga að mér, fullorðinni
manneskju. Ég ákvað því að
taka bílinn aftur til baka eftir
að hann hafði „staðið“ á bíla-
sölunni í rúman mánuð en
það reyndist erfitt að nálgast
hann því hann var í „reynslu-
akstri“ allan þann dag, eins og
svo oft áður. Þegar ég loks fékk
hann til baka stórbrá mér því
sóðaskapurinn í bílnum var
slíkur að hann hlaut að vekja
upp grunsemdir mínar um að
eitthvað væri meira en lítið
skrítið við þessi viðskipti. Ég
fékk þó grun minn ekki stað-
festan fyrr en nú fyrir
skömmu.“
Hvað varð til þess að þú
komst að því hvemig var í pott-
inn búið?
„Stöðumælasektin fyrr-
nefnd kom upp um mennina
en þeir höfðu ekki greitt hana
eins og lofað hafi verið og því
fékk ég tilkynningu frá lög-
ffæðiskrifstofu ekki alls fýrir
löngu um að skuldin væri í
innheimtu hjá þeim. Ég varð
auðvitað mjög reið og dreif
mig á bílasöluna og hugðist
húðskamma mennina. En ég
kom að tómum kofanum því
nýir eigendur höfðu tekið yfir
fyrirtækið í júnímánuði og
voru þeir gömlu á bak og burt.
Annar hinna nýju manna
hafði hins vegar verið starfs-
maður fyrirtækisins þá um
veturinn og gat sagt mér
hvernig farið hafði verið með
bílinn.“
Og þá hefur hið rétta loks
komið í Ijós?
„Þá kom í ljós að Jónas, sem
er maður á fimmtugsaldri,
hafði notað bílinn minn til
einkanota allan þann tíma
sem hann hafði hann undir
höndum, eða í hálfan annan
mánuð. Hann keyrði á hon-
um til annarrar vinnu, en Jón-
as starfaði einnig sem nætur-
vörður á útvarpi, og sá um all-
ar daglegar útréttingar á bíln-
um. Þegar ég gekk á hann nú
fyrir skömmu laug hann að
mér og reyndi meira að segja
að koma sökina yfir á fýrrum
samstarfsmann sinn, Þorgeir
Guðbjömsson.“
Hvað hefur þessi reytisla
kennt þér?
„Ég er þess fúllviss að ef ég
hefði verið karlmaður og á fal-
legri bíl hefði þetta ekki komið
fýrir. Lítilsvirðingin sem mér
var sýnd var alveg makalaus og
ég vil með þessari litlu reynslu-
sögu vara aðrar konur við
svipuðum uppákomum og
brýna fýrir þeim láta ekki „litla
karla“ sem þessa komast upp
með slíka framkomu gagnvart
þeim. Mér fannst réttur minn
gróflega fótum troðinn og
fann svo ekki varð um villst
hversu veikur lagalegur réttur
manns er í tilfellum sem þess-
um.“_________________________
Telma L. Tómasson
Skodinn safnaði stöðumælasektum á bílasölunni
debet Valur Valsson kredit
„Ég hika ekki við að fullyrða að Valur sé einn af
okkar allra færustu bankamönnum, þvi hann hefúr
yfirgripsmikla þekkingu á öllu sem lítur að ffæðun-
um, bæði í peninga- og bankamálum. Hann þekkir
einnig vel tíl reksturs fyrirtækja, stórra sem smárra.
Valur er vel máli farinn og skýr í hugsun. Maðurinn
er hreinn og beinn að eðlisfari og laus við allt undir-
ferli og hefur fágaða framkomu hvort sem hann
umgengst háa eða lága,“segir Kristján Oddsson,
framkvæmdastjóri fslandsbanka og fyrrum keppi-
nautur Vals í bankaviðskiptum„.Valur er mjög
skipulagður. Hann setur sér ákveðin markmið og
hvikar ekki frá þeim. Valur er skýr og á auðvelt með
að greina aðalatriði frá aukaatriðum,“ mælir Bragi
Hannesson, yfirmaður Iðnlánasjóðs, sem tengst
hefur Vali í gegnum peningamálin á undanföm-
um misserum„.Valur er mjög hreinn og heill mað-
ur í öllu sem hann tekur sér fýrir hendur. Hann er
vinur vina sinna og staðfastur“,finnst Ingimundi
Sigfússyni, sem er forstjóri Heklu og mágur
Vals,,.Valur er ffábær yfirmaður sem gaman er að
vinna fýrir. Hann er fljótur að hugsa og gott að leita
til hans,“ segir Áslaug Ágústsdóttir, ritari Vals,
sem fýlgt hefur honum frá því 1979 þegar hann
var hjá Félagi iðnrekanda.
Skipulagður, staðfastur og
fágaður — eða þrjóskur,
dulur og sérvitur
Valur Valsson er bankastjóri íslandsbanka og
var áberandl í fjölmiðlum um síðustu helgi í
kjölfarlð á vaxtahækkun bankans um 5%.
„Þó hann sé kominn af leikara þá er Valur eng-
inn leikari, því ekki dylst ef honum mislíkar.
Hann getur sagt mönnum illa til syndanna ef
honum er misboðið. Ég finn svo andskoti fáa
galla við hann enda umgengst ég hann litið á
heimili hans,“ segir Kristján Oddsson, einn fram-
kvæmdastjóra íslandsbankans og fýrrum keppi-
nautur Vals á sviði bankamála„.Valur er ákaflega
dulur maður. Það getur verið viss hindrun þegar
hann er að vinna að ákveðnum málum. Maður-
inn er líka töluverður leikari, þannig að hann
setur sig i ýmiss hlutverk og því er oft erfitt að
átta sig á hvað hann er að hugsa“,segir Bragi
Hannesson, framkvæmdastjóri Iðnlánasjóðs og
kunningi Vals til margra ára„.Valur er þrjóskur.
Harrn stendur fast við meiningu sína en að vísu
hefur hann oftast rétt fyrir sér. Svo er hann
voðalega sérvitur. Ef strákamir mínir eru með
einhverja þrjósku og sérvisku segi ég að það sé
úr hinni ættinni komið,“ segir Ingimundur í
Heklu, mágur Vals. „Það er eins gott að Valur
varð eldd rafvirki því hann getur ekki skipt um
ljósaperu,“ segir ritari Vals, Áslaug Ágústsdóttir.