Pressan - 09.09.1993, Síða 7
Fimmtudagurinn 9. september 1993
S K I L A B O Ð
PRESSAN 7
Bréf frá Páli
1 PRESSUNNI2. september er fjaUað
um svokallaðar beinar greiðslur til
bænda, m.a. til búsins á Höllustöðum.
Þar sem nokkur ónákvæmni kemur
ffam í leiðara blaðsins og ég þykist viss
um að hinir heiðarlegu og vönduðu
stjórnendur PRESSUNNAR, eigandinn
og ritstjórinn, vilji alltaf leita sannleik-
ans, óska ég eftir að þessi örstutta leið-
rétting verði birt í blaðinu.
Beinar greiðslur til bænda voru tekn-
ar upp í stað niðurgreiðslna í því skyni
að lækka
búvöru-
verð til
neytenda.
Ef bein-
greiðslur
væru ekki
þ y r f t u
bændur
tvöfalt verð
fyrir bú-
vöruna.
Hagsmun-
_______________________ir bænda
og afurðastöðva voru betur tryggðir
með niðurgreiðslukerfinu og bein-
greiðslurnar voru ekki teknar upp í
þeirra þágu, heldur til að spara ríkis-
sjóði fé og í því skyni að tryggja neyt-
endum ódýrari vöru. Beingreiðslurnar
renna til að standa undir hluta af að-
fangakaupum búanna. Verð það sem
afurðastöðin greiðir fyrir framleiðslu
búanna rennur einnig að hluta til
rekstrarins, en ef eitthvað verður eftir
eru það laun fjölskyldunnar.
Framleiðsluheimild búsins á Höllu-
stöðum á yfirstandandi ffamleiðsluári
er tæpir 50 þúsund lítrar mjólkur og
tæp 4,9 tonn af kjöti. Beingreiðsla á
mjólkurlítra er 47,1 prósent af verði til
bóndans eða 24,77 krónur per lítra og á
kjöt 205,18 krónur per kíló. Beinu
greiðslurnar verða því samtals
2.240.000. Greiðsla frá afurðastöð í
besta falli 2.260.000. Heildartekjur bús-
ins gætu því numið allt að 4,5 milljón-
um.
Rekstrarkostnaður búsins, þ.e. að-
keypt aðföng, þjónusta og aðkeypt
vinna, er um 70 prósent í mjólkurffam-
leiðslu og milli 60 og 65 prósent í sauð-
fjárframleiðslu. Ef búrekstur á Höllu-
stöðum gengur vel, engin óhöpp verða
eða áföll, má gera ráð fyrir að þriðjung-
ur af brúttótekjum verði eftir sem laun
fjölskyldunnar sem sér um búið, þ.e.
dóttur minnar og tengdasonar. Þau eru
með þrjú börn, fjórtán, fjögurra og
tveggja ára. Þau eru ábyggilega ekki of-
haldin af árstekjum upp á 1.500 þús-
und.
Ég verð ekki mjög ríkur af búrekstr-
inum á Höliustöðum á þessu ári eins og
PRESSANlætui að liggja.
Með vinsemd,
Páll Pétursson.
Frá ritstj.
Svo virðist sem skeikað hafi um tíu
prósentum í útreikningum okkar á
styrknum sem búið á Höllustöðum fær
ffá skattgreiðendum á þessu ári. Það er
slæmt, því PRESSAN leitast við að gæta
nákvæmni eins og Páll bendir á, en
skýrist vitanlega af því að Framleiðslu-
ráð landbúnaðarins, sem var í lófa lagið
að veita nákvæmar upplýsingar, neitaði
blaðinu um þær. Á meðan þær fengust
ekki gat upphæðin aldrei orðið ná-
kvæm, heldur einungis áætlun.
Það var hins vegar ekki aðalatriðið í
leiðaranum, heldur hitt, hversu beinna
persónulegra hagsmuna nokkrir al-
þingismenn eiga að gæta í þessu máli.
Það hlýtur að varpa nýju ljósi á mál-
flutning Páis og annarra þegar vitað er
að fýrirtæki sem þeir reka — því búin
eru í eðli sínu ekkert annað en fýrirtæki
— fá á ári hveiju milljónastyrki í gegn-
um landbúnaðarkerfið. Hluti af styrkj-
unum er laun til þessara þingmanna,
mishá eftir því hversu stór búin eru og
hvemig þau em rekin.
Því var aldrei haldið fram að Páll
frekar en aðrir bændur yrði ríkur af
styrkjunum, enda kerfið þannig vaxið
að erfitt er fyrir jafnvel duglegustu
bændur að verða eignamenn. Hins
vegar var bent á hagsmunaárekstrana
sem þessu kerfi fýlgja og þarf varla að
hafa um það fleiri orð.
í vinsemd, ritstj.
Matreíðsla í Kontonhéraðinu í Kína er af mörgum talin sú besta sem þekkíst í
kínverskri matargerð. Kanton er búsældarlegt hérað í suðurhluta Kína; þar sem
gnótt er af hrísgrjónum, grænmeti og dvöxtum ósamt mikilli svína- og
kjúklingarækt og fengsælum fiskimiðum. „Borðaðu í Kanton" er gamait kínverskt
máltæki, enda hefur úrvai af hráefni og kryddí gert Kanton að
Mekku kínverskrar matargerðarlistar.
HN70N MáNUÐUR
MNGHŒ
2»b Símí 16513 - 23535
Giibert Yok Peck Khoo, matreiösiumaður og
eigandi Sjanghæ, hefur frá 1985 veríð
leíðandi við að kynna austurlenska
matargerðarlist á Íslandí. Auk Sjanghæ
rekur hann versiunina Kryddkofann ab
Hverfisgötu 26, með úrval af índverskri og
austurienskri matvðru og kryddi.
mm KVÖLDVKRÐIIR
Pvrir tvo eða fleiri. Aðeins 1.290 kr. á maon
Sex fjölbreyttir og bragbgóbix réttír,
súpa og koktelli
Sjanghæ kokteíll
Krabbasúpa
Forréttun
Kanton Surprise
Aöalréttir;
Rækjur á kantonska vísu
Pönnusteíktur kjúklíngur
meö sítrónusósu
Svínartf “MetropoW
Pönnusteikt nautakjöt
meö Taro
EfHrréttur