Pressan - 09.09.1993, Side 19

Pressan - 09.09.1993, Side 19
E R L E N T Fimmtudagurínn 9. september 1993 PRESSAN 19 Efnahagssprengingin í Kína: Gengur erfiðlega að aölagast markaðskerfinu KÍNVERJAR eru vitlausir í sjónvarps- og myndbandstæki. Hagvöxtur í Kína var 12% á síðasta ári. Búist er við að hann verði jafnmikill í ár og hefur Kína þá slegið öll met þeirrar þróunar sem hófst á sjötta áratugnum hjá Japön- um og hélt áffam í Tævan og Suður-Kóreu á þeim áttunda. Þetta finnst mörgum merki- legt á sama tíma og Vestur- lönd eru í kreppu og það er ekki laust við að þessi upp- gangur í Kína valdi áhyggjum. Það hefur hitnað vel undir efnahagslífinu í landinu að undanfömu, líkt og alltaf ger- ist þegar þar verður spreng- ing. Nú er svipað ástatt fyrir efnahag landsins og unglingi sem hefúr tekið vaxtarkipp og uppgötvar að hann er vaxinn upp úr öllum fötunum sín- um. Uppþot og verkföll í sveitum Síðastliðin fjögur ár hefur útflutningur Kína aukist, en í byrjun þessa árs hófst sam- dráttarskeið sem nemur 3,45 milljónum dollara fyrir fyrstu sex mánuði ársins. Vegna mikillar eftirspumar eftir vör- um á innanlandsmarkaði hef- ur innflutningur aukist gífúr- lega. Kínverjar, sem lifað hafa meirdætalífi ámm saman, eru nú á eyðslufylleríi. Þeir gleypa við öllu, hvort sem það eru sjónvörp, myndbandstæki eða fatnaður, og iðnfyrirtæki eru veik fyrir nýjum tækjum. Nið- urstaðan er óhagstæður við- skiptajöfúuður. En það er ekki allt. Verð- bólgan er komin upp í 16% í borgum landsins. Þrátt fyrir erlendar fjár- festingar að jafnvirði 11 milljarða doll- ara árið 1992 hafa sjóðir 1 a n d s i n s minnkað. Dag- inn sem gengið var gefið frjálst í Peking, efíir að hafa verið ffos- ið í marga mán- uði, féll jenið um 25%.. Þá hefúr eng- inn gleymt ástandinu í landinu árið 1988 sem kynti undir uppreisn- inni á Torgi fnðarins. Erlendir fjárfestingaraðilar eru varir um sig og það ekki að ástæðu- lausu. Þjóðfélagið virðist geta brostið hvenær sem er. Tugir uppþota hafa orðið á lands- byggðinni þar sem pósthús hafa verið lögð í rúst og bílar í eigu yfirvalda eyðilagðir til að mótmæla því að ekki hefur verið greitt fyrir uppskeruna og að lagðir hafa verið á nýir „skattar". Þá fóru verkamenn japönsku verksmiðjunnar Canon í Zuhai í verkfall í vor til að krefjast launahækkunar. Ástandið í borgunum er öllu friðsamlegra. Þar hafa laun hækkað og því ríkir ánægja meðal launþega, þrátt fyrir að verðhækkanir hafi gleypt launahækkanirnar. En borg- arbúar tæma þó að minnsta kosti ekki allar verslanirnar eins og þeir gerðu árið 1988 til þess að losna við vita verðlaus jenin sín. Mánuö aö fá ávísun skipt í þetta skipti gæti fjárlaga- kerfið þó hrunið. Fjárlagahall- inn er 24 milljarðar jena og seðlaprentun er óhófleg. Pen- ingastreymið í landinu hefur aukist um 36% á fimm mán- uðum. Staða bankanna er slæm því efnahagssprengjan hefur tæmt peningageymsl- umar. Þjónusta þeirra er held- ur ekkert til að hrópa húrra fýrir. Það tekur fimmtán daga að fá peninga sem teknir eru út með bankakorti í næsta byggðarlagi við manns eigin banka og að skipta ávísun tek- ur einn og hálfan mánuð. Breytingin úr kerfi kommún- ista yfir í markaðskerfi hefur reynst bönkunum ofviða. Sama spurningin brennur því á vörum allra þeirra sem fylgjast með málefnum Kína: Eru ráðamenn í Peking færir um að stýra mjúkri lendingu kínversks efnahags? Svarið er nú í höndum Zhu Rongji, en hann sá til þess að Li Guixan, bankastjóri Kínverska alþýðu- bankans, var rekinn og settist sjálfur í sæti hans. Það veikir stöðu íhaldsaflanna í flokkn- um, sem tekist hafði að styrkja sig í sessi eftir uppþotin árið 1998. Rongji, sem var áður borgarstjóri í Shanghai, er nú að koma vinum sínum fyrir í valdamestu stöðum fjármála- heimsins. Til að ná frekari völdum hefúr hann lagt ffam stefnuskrá, sem ætlað er að knýja ffam aðgerðir sem fela í sér minnkandi ríkisútgjöld, hærri vexti, þyngri skatta og minni seðlaprentun. Kreppan hefúr því hrundið af stað nýrri valdabaráttu í Kína. Byggt á Le Nouvel Observateur. í fótspor Tinna JEAN-FABIEN OG LAIíRENT á ströndinni Bocca Chica, en útsýnið minnir ískyggilega á einn rammann í bókinni „Fjársjóður Rögnvalds rauða“. Tveir 25 ára Frakkar, Laurent og Jean-Fabien, hafa undan- farna sex mánuði ferðast um Evrópu og Ameríku í þeim til- gangi að leita að sögusviði Tinnabókanna. Þeim hefúr ekki gengið illa ffam að þessu, þótt þeir ættu að baki 4.500 kíló- metra þegar þeim loks tókst að finna „Svörtu eyjuna“ í Skot- landi í upphafi ferðalagsins. Þegar hún var fúndin héldu þeir til Bandaríkjanna, þar sem þeir komu við hjá NASA-geim- ferðastofúuninni, og þaðan til Mexíkó og Saint-Dominigue. Næsti áfangastaður þeirra er Afríka og sögusvið bókarinnar „Tinni í Kongó“. Þetta ferðalag var gamall draumur þeirra fé- laga, en til að fjármagna það leituðu þeir til mörg hundruð fyrirtækja, en ekkert þeirra sýndi þeim áhuga. Það var ekki fyrr en sjónvarpsstöðin France 3 frétti af þeim, sem þeir fengu fjármagn, en hún endursýndi einmitt Tinna-þættina núna í vetur. Það ætti því enginn að vera hissa á að Laurent og Jean- Fabien finnst þeir vera heppnustu menn í heimi. Claudia Schiffer kærir Ijósmyndara Þýska fyrirsætan Claudia Schiffer, skrautfiö&ur tískukóngsins Karls Lager- feld, nefur ekki ótt sjö dagana sæla í kjölfar sögulegs sumarleyfis með fjöl- skyldu sinni. Claudia hug&ist ey&a fríinu í rólegheitum ó seglskútu undan Spónar- ströncíum ósamt foreldrum sínum og syst- ur en skyndilega var friðurinn úti. Claud- ia ló ber a& ofan uppi ó þilfari og naut sólarinnar með mó&ur sinni þegar hún fékk allt í einu ó tilfinninguna að verið væri að horfa ó sig. Skömmu síðar fékkst grunur hennar staðfestur, þegar ber- brjósta myndir af henni tóku að birtast í þýskum slúðurblöðum. Mikið uppnóm varð ó seglskútu Schiffer-fjölskyldunnar þegar Ijóst varð að forhertir Ijósmyndar- ar höfðu elt Ijósmyndafyrirsætuna uppi oa sumarfríið fékk skjótan endi. Claudia tólc myndirnar að sögn mjög nærri sér og lýsti móðir hennar því yfir við frétta- menn að sumarleyfið hefði ó auga- bragði breyst í „skelfilega martröð". Þeg a9( . ar fyrirsætan hafði jafnað sig að mestu ókvað hún að grípa til sinna róða. Hún hefur nú lagt fram kæru ó hendur Ijós- myndaranum og fer fram ó milljónir þýskra marka í skaðabætur. Og er von- góð um að vinna mólið. ÍLAUDIA SCHIFFER. Sumarleyfið með fiölskyldunni breyttist í martröð. Listakona hneykslar bandarlsku þjóðina Listakonan Matuschka, sem búsett er í Bandaríkjunum, er þekkt fýrir að fara ótroðn- ar slóðir og kemur það bæði fram í verkum hennar og ffamferði. Ekkert hefur þó vakið eins mikla athygli og mynd af listakonunni sem birtist nýverið á forsíðu helgarblaðs The New York Times og varð til að hneyksla marg- an Bandaríkjamanninn. Nokkuð er síðan Matuschka greindist með krabbamein og varð að fjarlægja hægra brjóst hennar. Á forsíðu- mynd The New York Times Magazine var listakonan klædd sérhönnuðum kjól, erma- lausum hægra megin og flegnum niður fýrir brjóst, svo ljótt örið blasti við. Ljósmyndina tók listakonan sjálf með hjálp sjálfvirks tíma- stillis og sendi inn á ritstjóm bandaríska stór- blaðsins. Tilgangurinn var sá að vekja athygli á krabbameini, en Matuschka tilheyrir hópi fólks í Bandaríkjunum sem greinst hefúr með fiinn skæða sjúkdóm og unnið ötullega að því að safna fé til rannsókna á honum. EÍdd vom allir lesendur blaðsins sáttir við myndina og margir létu frá sér heyra sem var stórlega mis- boðið. Listakonan lét óánægjuna þó ekkert á sig fá og hélt ótrauð áffam að vekja athygli á málstaðnum. Næsta skref hennar var að útbúa FORSÍÐA THE NEW YORK TIMES MAGAZINE. Mörgum siðavöndum lesendum var stórlega misboðið. póstkort með höggmynd af líkama sínum, sem hún vann sjálf eftir að bijóstið hafði verið fjar- lægt. Ef að líkum lætur eiga póstkortin eftir að vekja mikla athygli vestanhafs, en þau eru væntanleg í verslanir á næstunni og mun ágóðinn af sölu þeirra renna í sjóð laabba- meinssjúklinga í Bandaríkjunum.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.