Pressan - 09.09.1993, Side 24

Pressan - 09.09.1993, Side 24
HAMINGJUDAGAR FRAMUNDAN 24 PRESSAN Fimmtudagurinn 9. september 1993 Erlend rokkheimsókn Hermann með hundsandlitið! MlRIAM Söngkona og trompetleikari Dog Faced Hermans. Röddin er há og tær, trompetleikurinn sérstakur og textarnir næmir og hápólitískir. íslenska rokkskátafélagið FIRE stendur fyrir skemmti- legum rokkinnflutningi nú í september. Strákarnir í hljóm- sveitinni Stilluppsteypu hafa um alllangt skeið átt í bréfa- sambandi við hljómsveitina Dog Faced Hermans og þegar stungið var upp á að sveitin kæmi hingað til tónleikahalds var ekki lengi verið að slá til. Hljómsveitin var stofnuð í Edinborg í Skotlandi 1986 og kallaði sig í fyrstu Voluntary Slavery. Þá var sveitin 6- manna og spilaði tónlist sem var undir miklum áhrifum af fyrstu kynnum meðlimanna af frídjassi. Þegar hljómsveitin hætti stofnaði kjarninn nýtt band og kallaði sig nú Dog Faced Hermans eftir gamalli hryllingsmynd. Áherslur í tón- list sveitarinnar breyttust, með sterkari og meiri gítarleik fékk bandið rokkaðra yfirbragð. Þótt sveitin sé eflaust mótfallin því að því sé haldið írarn, þá er söngkonan og trompetleikar- inn Marion (ættarnafn ekki gefið upp) helsta vörumerki sveitarinnar. Rödd hennar er mjög tær og há, trompetleik- urinn gefúr tónlistinni sérstakt yfirbragð og textamir sem hún syngur eru hápólitískir og næmir. Aðrir meðlimir eru trommarinn Wilf, bassaleikar- inn Colin og gítar- og fiðlu- leikarinn Andy. Eftir að hafa gefið út tvær smáskífur, og plöturnar „Humans Fly“ og „Everyday Timebomb“ (þær hafa síðan verið gefnar út sam- an á geisladiski), tók sveitin sér pásu 1990. Marion fór til Pól- lands í listaskóla og Andy flutti til Amsterdam og gekk til liðs við anarkí-bandið The EX. Ári síðar hittust meðlimirnir fjórir þar og síðan hefúr sveitin verið gerð út frá Amsterdam. Árið 1991 kom út platan „Mental Blocks for All Áges“ og nýjasta plata sveitarinnar er „Hum of Life“, verulega áhugaverð plata sem erfitt er að staðsetja í tíma og rúmi. Þar ægir saman klass- ískum gildum pönksins og áhrifúm frá heimstónlist ýmis- konar, en í vel útfærðum og skemmtilegum búningi sem kemur sífellt á óvart. Það er til marks um fjölbreytni sveitar- innar að innan um frum- sömdu lögin eru lög eftir bæði Ornette Coleman og „nei- bylgju“-sveitina 8 Eyed Spy. Á tónleikum lifnar verulega yfir sveitinni. Allar æfingar hennar ganga út á tónlei- kaflutning enda segjast þau starfa fyrst og fremst til að halda góða tónleika, líflega og eftirminnilega. Það er mikil- vægt fyrir sveitina að hreinn og góður hljómur sé á tónleik- um, enda er hljóðmaðurinn Gert Jan jafnan kallaður fimmti meðlimurinn. Islenskt rokkáhugafólk á hamingjudaga ffamundan því Dog Faced Hermans mun á komandi viku koma víða við. I kvöld verða fyrstu tónleikar sveitarinnar á Tveimur vinum. Annað kvöld verður sveitin í Norðurkjallara MH, á laugar- daginn á Húsavík, sunnudag- inn á Akureyri, miðvikudag- inn 15. í MS og síðustu tón- leikar sveitarinnar verða í Ró- senbergkjallaranum fimmtu- daginn 16. Allar helstu mold- vörpusveitír landsins hita upp, t.d. Kolrassa krókríðandi, SSSpan og Púff. Einnig munu Stilluppsteypa og Curver flytja efni sem sveitirnar hafa samið í sameiningu. Það er nánast gefins inn, aðeins 500 krónur á hverja tónleika, og því engin afsökun haldbær: það er skyldumætíng, enda langt síð- an jafn frumlega og skemmtí- lega sveit hefur rekið hér upp á land. Gunnar Hjálmarsson POPP Lent á tunglinu „Hér gengur allt upp í heildarmyndina, hvert lag nánast eins og raketta í glœsi- legri flugeldasýningu. Ókei ókei, nú er nógkomið af munnvatninu úr mér; Gi- ant Steps er snilld, klassísk ogþú út í búð.“ THE BOO RADLEYS GIANT STEPS ★ ★★★ Þriðja plata Bretanna í The Boo Radleys er ffábær, en þeir eiga þó bágt. Bítlarnir eru nefnilega löngu búnir að gefa út „Sgt. Peppers“ og Beach Boys „Pet Sounds". Giant Steps lýtur svipuðum lögmál- um; hún er fjölbreytt, vinnur á með hverri hlustun og er klassísk á stundinni. Þetta er ein af þessum fáu plötum sem hægt er að hlusta á aftur og aftur og uppgötva eitthvað nýtt í hvert skipti. Sveitin grúskar í hinu ljóð- ræna poppi sem hetjur sjö- unda áratugayins rákust á um það leyti er þær fóru fyrst að droppa sýru. Hið dreymandi popp sem Artliur Lee (í hinni vanmetnu sveit Love), Brian Wilson og Bítlarnir settu ffam snýr hér aftur í nýtískulegu formi sem tekur mið af þróun rokksins síðustu tuttugu árin. Þetta hefur svo sem oft verið gert áður með góðum árangri (Teenage Fan Club, Blur, Sa- int Etienne) og platan er því ekki stórt skref í tónlistarsög- unni, en hún er rosaspor fýrir Boo Radleys. Sveitin hefur verið að í nokkur ár og hefur fram að þessu ekki þótt ýkja merkileg. Síðustu plötur sýndu ágæta takta, fullar af þokkalegu gítarpoppi fyrir þunglyndan anorakksklædd- an háskólalýð, en það er eins og sveitin hafi orðið leið á að- gerðarleysinu og einfaldlega ákveðið að gera klassíska plötu og það óvæntasta er að það hefur tekist. Platan er heilar 65 mínútur að lengd, inniheldur sautján lög og er því kjarakaup fyrir sælkera á ómótstæðilega popptónlist. Lögin eru velflest skínandi vel samin og fundvís á smáatriði sem snerta popp- taugar hlustandans. Hér geng- ur allt upp í heildarmyndina, hvert lag nánast eins og ra- ketta í glæsilegri flugeldasýn- ingu. Okei ókei, nú er nóg komið af munnvatninu úr mér; Giant Steps er snilld, klassísk og þú út í búð. Billy Idiot snýr aftur BILLY IDOL CYPERPUNK ★ Það er ennþá 1985 hjá Billy Idol. Hann heldur ennþá að Mad Max-serían sé í hátísku og er enn sami leðurjakka- mótorhjólatöffarinn með eyðimerkurvegadelluna. Nú hafa einhverjar heilasellur í hausnum á honum vaknað til lífsins (þótt læknavísindin segi það ekki ffæðilega mögulegt) og hr. Idiot dustar nú rykið af „sæperpönkinu“ svokallaða, tæknilegri framtíðarpælingu með upplýsingalegu tölvu- ívafi. Ég hef að vísu aldrei skil- ið almennilega út á hvað þetta sæperpönk gengur, og Billy hefur greinilega ekki hug- mynd um það þótt hann tfl- einki og nefni heila plötu í hausinn á fyrirbærinu. Þótt Billy sé, samkvæmt viðtölum, heiladauður eftir- legupönkhelmút er hann óneitanlega nokkuð stór stjarna í Bandaríkjunum. Það er kannski ekki svo ótrúlegt, Ronald Reagan varð jú forseti þar. Stjarna Billí reis fyrst í breska pönkinu með Gener- ation X, hundleiðinlegri grað- hestarokksveit, og svo aftur um miðbik síðasta áratugar með lögum eins og „White Wedding" sem var svo sem ágætt töffararokk. Hann hefur ekki gert það mjög gott hin seinni ár; ekki átt nein umtals- verð hitt, lenti í veseni fyrir að berja kærustuna og dópaði óþyrmilega. Þrátt fyrir allt þetta er hann enn á ffægafólk- skortinu, kynnti á Grammy í ár með Tinu Turner og sést reglulega í gleðskap með vin- um sínum og álíka útbrunn- um stjörnum, Madonnu og Mickey Rourke. Hvað með það. Cyperpunk er sjötta sólóplatan og var að mestu unnin í heimahúsi á tölvu. Hún er í alla staði óspennandi, flöt, líflaus og leiðinleg. Töffaraskapurinn sýður í Billy þegar hann gjammar út úr sér textunum, yfirþyrmandi leirhnoði og ör- þunnu „vitrænu“ yfirborði. Lítið dæmi. Billy tjáir sig um LA-óeirðirnar í laginu „Shock to the System“: It was a night. Hell of a night, LA, it really was. Oh, what a riot. I said yeah, come on. Djúpt, ekki satt? Billy brunar í gegnum mörg uppköst að lögum, öll jafn hrútleiðinleg og þunn. Það keyrir þó um þverbak þegar hann sæperpönkar upp Lou Reed- lagið „Heroin“. Önnur eins hörmungarút- setning hefúr ekki heyrst. Aumingja karlgreyið, orð- inn 37 og stendur enn í þess- ari vitleysu. Forðist þetta plötuhræ eins og heitan eld- inn! POPP FIMMTU DAG U R I N N 9. SEPTRMBER • Radíuskvöld á Berlín með þeim félögum Steini Ármanni og Davíð Þór. Nú hafa Rad- íusbræður ákveðið svona „golden oldies“-kvöld, eða „best of‘ eða hvað sem menn kalla það nú. Uppselt hefur orðið eldsnemma kvölds í síð- ustu tvö skipti vegna fádæma vinsælda. 0 Lipstick Lovers verða á kassanum á Café-Grand- Rokk eins og gamli Nl-bar- inn heitir nú. Þar eru miklar unibyltingar á ferð, því í framtíðinni verður þar hægt að fa Tex Mex-mat auk ódjTa rauðvínsins. Aðeins 150-kall glasið. • Vinir Dóra em nú komnir heim í heiðardalinn og ætla að fremja tónlist sína á Gauki á Stöng. • Haraldur Reynisson sem fyrr á Fógetanum. FOSTUDAGURINN 1 O. SEPTEMBER • Tvennir tímar verða í orðs- ins fyllstu á Feita dvergnum, bæði hljómsveitin og fólkið um og langt yfir þrítugu. Einkabjórhátíð dvergsins. Lít- iU á 250. Stór á 380. 0 Ammæli og diskótek. Tvær ungar stúlkur, önnur úr Hafnarfirði en hin úr Reykja- vík, halda upp á afmælið sitt í Firðinum í Hafnarfirði. Okk- ur skilst að allir séu velkomn- ir. • Lipstick Lovers aftur á Grand Rokk, sem enn gengur í gegnum breytingaskeið. Vonandi til góðs. • Kúba líbra hitar upp Blús- bapnn að aflokinni blúshátíð. 0 Rúnar Þór og hljómsveit og opinn míkrófónn á Dans- barnum. Þeim jaftihallæris- legasta í bænum. Þó væna. • Gal í Leó i hinsta sinn á Gauki á Stöng um helgina. Þó vitum við eigi hvort þeir koma saman einhvern tíma aftur. 0 Bláeygt sakleysi leikur co- ver-tónlist á Tveimur vinum. Frítt inn. Og þá er hægt að drekka meira. • Rokkabilliband Reykjavík- ur hið léttskondna sleppir fram af sér axlaböndunum í kvöld á Ömmu Lú. • Gleðigjafarnir ásamt André Bachmann og Ellý Vil- hjálms á stórskemmtikvöldi í tilefni árs aldraðra á Hótel Sögu í kvöld. • Bara tveir ifá Keflavík hefja upp raust sína á Fógetanum. LAUGARDAG U R I N N 11.SEPTEMBER • Tvennir tímar, Oranjebo- om og Löwenbráu í einum hnapp á Feita dvergnum vegna bjórhátiðar. • Upplyfting sú gamla og kannski góða á réttarballi í Firðinum í tilefni þess að nú ætla Hafnfirðingar að hafa réttír á Víðistaðatúni með öllu tilheyrandi; hestum, kindum og hundum. Stutt verður í brennivínið og vodkað. • Kúba líbra er trió sem treð- ur upp á Blúsbamum. • Gal í Leó aftur og nýbúnir og nú í allra síðasta sinn á Gauki á Stöng. • Hljómar leika fyrir dansi þegar ffamið hefúr verið Rokk ’93 á Hótel íslandi. • Bláeygt sakleysi hefur væntanlega spillst eitthvað á Tveimur yinum í gærkveldi. Þeir verða áffam í spillingunni í kvöld. 0 Gleðigjafarrtir Ellý Vil- hjálms, Bjarni Ara, Ándré Bachmann og Móeiður Júní- usdóttir á Hótel Sögu fyrir alla aldurshópa. Tískusýning og Rósa Ingólfsdóttir. • Bara tveir er heldur ein- manalegt nafn á hljómsveit. Þeir verða í sveita síns andlitís á Fógetanum. 0 Rúnar Þór og sveitin hans á Dansbamum. SUNNUDAGURINN 1 2. SEPTEMBER 0 Magnús Einarsson fáni á Feita dvergnum. 0 Róm brennur hvorki meira né minna. Þeir flytja frum- samið kindarokk á Grand Rokk. 0 Svartur pipar og hitt sukk- liðið á besta kvöldi Gauks á Stöng, sem eru óneitanlega sunnudagskvöldin. 0 Rúnar Þór, með Jón Ólafs- son bassa á bak við sig, á Fóg- etanum. E La L FÖSTU DAGU R I N N | 1 O. SEPTEMBER 0 Kaplakriki, Hafnarfirði sveitaball haustsins með SSSól, Todmobile, Bone China, Jet Black Joe og Pís of Keik. Tólfhundruðkall kostar inn á svæðið. 0 Vagninn, Flateyri Hljóm- sveitin Paparnir frá Eyjum heldur grímuball á einhverj- um besta bar landsins. 0 Kam-bar, Hveragerði Hver gerði Gerði?... örkin hans Nóa gerir út frá HveraGerði í lcvöld. 0 Sjallinn, Akureyri Hið bráðskondna Rokkaband og diskótek í Mánasalnum. 0 Þotan, Keflavík SSSól, ótrúlegt en satt. Sólin ætlar af Kaplakrikatónleikunum og halda áffam í Keflavík. LAUGAR DAG U R 1 N N 11.SEPTEMBER 0 Vagninn, Flateyri Nú ætla Paparnir að taka niður grím- una og sýna sitt rétta andlit. 0 Hótel Selfoss Todmobile fer úr Hafnarfirðinum austur fyrir fjall. Með í för verður Sigtryggur dyravörður, enda veitir ekki af. 0 Tjald, Kjalarnesi þ.e.a.s. risastjórt tjald og hljómsveitin Örkin hans Nóa og Lipstick Lovers á fjölskylduhátíðinni Sumartöfrum ’93, hjá Bene- diktu. 0 Sjallinn, Akureyri Karma ffá Selfossi skemmtir. Fullt af nýjum karaoke-lögum á Sjallakránni. 0 Höfðinn, Vestmannaeyj- um Nú fá Eyjamenn SSSól í tieimsókn eftir verslunar- mannahelgarfjörið. SUNNUDAGURINN I 1 2. SEPTEMBER • Ásbyrgi, Laugabrekku Papamir eina ferðina enn. Og nú á réttarbaUi. I

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.