Pressan - 09.09.1993, Side 42

Pressan - 09.09.1993, Side 42
G B 42 PRESSAN SJÓNVARPIÐ Sjáið: • Kvennagullið ★★★ Orpheus Descending á Stöð 2 á fimmtu- dagskvöld. Kraftmikið drama byggt á sögu eftir Tennessee WUliams. 'O Bakslag ★★ 1/2 Backlash á RÚV á laugardagskvöld. Ástralsk- ur þriller sem hefur eitthvað við sig jafnvel þótt eitt og annað fái að svífa um í tómarúmi. 9 Hollywood-læknirinn ★★ 1/2 Doc Holly- I wood á Stöð 2 á laugardagskvöld. Gamansam- I ur læknaróman með Michael J. Fox í i'or- 9p i grunni. Gulli Helga, einn með öllu, fylgist I vafalaust vel með enda svipuð týpa og ætlar að L; auki að reyna fyrir sér í Hollý Hú. Ii ; #Mi 9 Ásdís Jenna á RÚV á sunnudagseftirmið- dag. Endurtekinn þáttur um ákaflega hug- rakka unga stúlku sem þrátt fyrir fötlun sína lætur ekki deigan síga. Við hin getum margt af henni lært. 9 Drengimir á munaðarleysingjahælinu The Boys of St. Vin- cent á Stöð 2 á sunnu- og mánudagskvöld. Nógu skelfileg dag- skárkynning til að ná athygli manns. Varist: 9 í skjóli nætur Midt om natten á RÚV á föstudagskvöld. Dönsk mynd með Kim Larsen í burðarhlutverki. Þá mun vera viðbúið að maður fái Jan Teigen á skjáinn! ■ 9 Ópið ★ Shoutá Stöð 2 á föstudagskvöld. Hörmu- leg mynd með John Travolta í fararbroddi. Annars hefur einkennilega oft sést til hans á kvölddagskrá Stöðvar 2 undanfarið og spurt er: Fengu þeir Tra- volta-magnafslátt? 9 Hryllingsnótt II ★★ Fright Night II á Stöð 2 á föstudagskvöld. Fráleitt mynd íyrir alla íjölskylduna. 9 Lögregluskólinn VI ★ Police Academy VI á RÚV á laugar- dagskvöld. Það er ekki langt síðan sýnd var myndin Lögreglu- skólinn V, sem var með afbrigðum léleg. Ætli Sjónvarpið hafi líka fengið magnafslátt? 9 Guð skóp konuna... ★ And God Created Woman á Stöð 2 á laugardagskvöld. Sérstaklega vond mynd. KVIKMYNDIR Algjört möst: 9 Red Rock West ★★★ Red Rock West er vel gerð afþreying og þykist ekki hafa neinn djúpan boðskap. Efni myndarinnar er tóm vitleysa eins og oft er um spennumynd- ir, en maður finnur að leikararnir hafa gam- an af að fást við það. Regnboganum. 9 Júragarðurinn ★★★ Jurassic Park Þetta er spennandi ævintýramynd sem ætlað er nákvæmlega sama hlutverk og hinum „raunverulega“ Jurassic Park; að græða pen- inga. Hæstiréttur um gæði þessarar myndar eru börnin. Þegar hasarinn fór að færast í aukana í myndinni hættu strákar að stríða stelpum og stelpur hættu að gjóa augum á stráka. Bíóhöllinni ogHóskólabíói. 9 Super Mario Bros ★★★ Frumleg saga sem gengur upp, góðu kallarnir vinna og allt og allt. Myndin er skemmtileg, fyndin og hentar flestum meðlimum fjölskyldunnar (þó ekki heimilisdýrunum). Regnboganum. 9 Síðasta hasarmyndahetjan ★★★ Last Action Hero Þessi mynd er ákaflega vönduð hvað snertir leik og alla gerð. Tækni- leg afreksverk eru unnin í henni hvað eftir annað. Eiginlega er ***~hún ofhlaðin yfirgengilegum spennuatriðum og sprelli, og er það helsti galli myndarinnar. Stjörnubíói. 9 Þríhyniingurinn ★★★★Ætla má að þar fari hálfklámmynd um vændismenn og búksorgir þeirra, sem maður sér kl. 11, einn. Fljótlega kemur f ljós að varlegt er að treysta auglýsingum (og umsögnum kvikmyndagagnrýnenda), því hér getur að líta sérstaklega skemmtilega og hjartahlýja mynd um ástina og vald tilfinninganna yfir okkur. Regnboganum. 9 Á ystu nöf ★★★ Cliffhanger Frábærar tæknibrellur og bráð- skemmtileg mynd. Það er bara galli að efnið sjálft er botnlaus þvæla. Stjörnubíói og Háskólabíói. 9 Mýs og menn ★★★ Of mice and men Mestanpart laus við væmni og John Malkovich fer á kostum. Háskólabíói. í leiðindum: 9 Dauðasveitin ★ Extreme Justice Myndin er þokkalega unnin og leikur sæmilegur. Aðaltema myndarinnar er vonska lög- reglumanna og göfgi blaðamanna, sem minnir á blaðamanna- fund sem Rannsóknarlögreglustjóri hélt nýlega til að kvarta undan fordómum í garð löggæslunnar. Laugarásbíói. 9 Allt í kássu ★★ Splitting Heirs Myndin missir marks vegna þess að húmorinn er of staðbundinn. Breski aðallinn og hans bjástur höfðar ekki til íslendinga, okkur er alveg sama hvað hendir svoleiðis fólk. Þar að auki er myndin einfaldlega ekki nógu fýndin. Bíóborginni. 9 Við árbakkann ★★ A River Rutis Through It Líf þeirra er slétt og fellt og höfúndurinn skrifar þessa sögu sjálfum sér og fortíð sinni til dýrðar. Kvikmyndin ber botnlausri sjálfsánægju Ro- berts Redford fagurt vitni. Háskólabíói. 9 Ósiðlegt tilboð ★★ Indecent Proposal Svo hæg að það er varla að hún festist í minni. Demi Moore bjargar því sem bjarg- að verður. Bíóhöllinni og Háskólabíói. I ■m. *•** Fimmtudagurinn 9. september 1993 Það verður svo sannarlega að gefa gömlu gufunni, Rás 1, hrós fyrir þá viðleitni að bjóða upp á áhugavert dagskrárefni endrum og eins, efni sem fær hlustandann til að finnast hann vera hugsandi mann- vera en ekki grænmeti. Ein er sú þáttaröð á dagskrá Rásar 1 næstu vikurnar sem að öllum líkindum höfðar til margra og nefnist Ástkonur Frakklands- konunga. Um er að ræða sex sjálfstæða þætti um ástir kvenna og konunga, en það er Ásdís Skúladóttir sem hefur haft veg og vanda af gerð þeirra. „Áhugi minn kviknaði þeg- ar ég leikstýrði leikriti Bjöms Th. Björnssonar, Ljón í síð- buxum, hjá Leikfélagi Reykja- víkur,“ segir Ásdís. „Leikritið gerist á átjándu öld á tímum Friðriks V. Danakonungs, á sama tíma og Frakkland var mikið og ríkt stórveldi, en þá reyndust franskir konungar fyrirmynd annarra konunga um allt líferni. Þeir voru fræg- ir kvennamenn og áttu marg- ar ástkonur sem oft voru ung- ar að árum. í gegnum aldirnar hefur verið talað illa um þess- ar konur og þær uppnefndar en þegar líf þeirra er skoðað kemur í ljós að oft voru þama á ferðinni mjög hæfar konur sem höfðu metnað og sáu leið til að hafa áhrif á þennan hátt. Ósjaldan voru þetta líka fá- tækar stúlkur sem fengið höfðu hvatningu frá foreldr- um sínum, vegna þess að með því að þjóna konungi til sæng- ur gátu þær boðið fjölskyldu sinni upp á auð og velsæM sem hún annars hefði aldrei notið. Sögur þessara kvenna dreg ég fram í dagsljósið og byggjast þættirnir fyrst á spennandi frásögnum af þeim. Þetta verður því síst af öllu fé- lagsfræðileg úttekt á málinu.“ Ásdís er vel þekkt úr leikhús- heiminum og lék mikið fýrir Leikfé- lag Reykjavíkur hér á árum áður, með- al annars í Sauma- stofunni og Spansk- flugunni, en einnig leikstýrði hún síð- asta verkinu sem sett var upp í Iðnó, Ferðinni á heims- enda eftir Olgu Guðrúnu Árna- dóttur. Leiksýn- ingarnar Ljón í síð- buxurn og Ronja rœningjadóttir, sem settar voru upp hjá Borgarleikhúsinu á síðasta ári, báru handbragði hennar |andskonunga. sem leikstjóra einnig gott vitni. Hin síðari ár hefúr Ásdís starfað með frístundaleik- hópnum Hana nú. Ástkonur Frakklandskon- unga eru á dagskrá Rásar 1 á miðvikudögum klukkan 14.30 og endurteknir á föstudags- kvöldum klukkan 20.30. Þarna virðast vera á ferð óhemjuspennandi þættir. TV SÓLEY Grátið og hlegið Sóley Elíasdóttir leikkona hefur meöal annars starf- aö fyrir Leikfélag Akureyr- ar og fór meö aðalhlut- verk í kvikmyndinni Sód- ómu Reykjavík. 16:00 Dallas 17:00 Góður matur Framúr- skarandi matreiðslu- þáttur. 17:30 Stundin okkar Fyrir börnin meöan eldaöur er maturinn úr þættin- um sem á undan fór. 18:30 Hlé 20:00 Fréttir 20:30 48 Hrs 21:30 Charlie Rose talar við Robert de Niro (sem veitir aldrei viötöl). 22:15 Chaplin Góð mynd eft- ir meistarann. 23:45 Gott fjölskyldudrama Mynd sem endar vel og uppfyllir það skil- yrði að gráta megi mikiö og vel meðan á sýningu hennar stend- ur. Tryggt aö svefninn veröur Ijúfur á eftir. KVIKMYNDIR Eftir gjaldþrotið í SKOTLÍNU (In the Line of Fire) STJÖRNUBÍÓI ★ ★★1/2 Þær eru orðnar nokkuð margar myndirnar sem Bandaríkjamenn hafa gert um tilræði við forseta sinn, sem vonlegt er miðað við hefðir þar í landi. Yfirleitt hafa tilræðismennirnir verið kommúnistar, dópistar, mafi- ósar, geðsjúklingar, útlend- ingar eða kynvillingar, ein- hveijir þeir sem þótt hafa sér- staklega tortryggilegir á hveij- um tíma. Það sem er sér- kennilegt og líklega trúverð- ugt við þessa mynd er að uppgjafa CIA-manni er treyst fyrir ódæðinu í þetta skiptið. Eldri lögreglumaður (Clint Eastwood), sem verið hafði í sveit öryggisvarða í Dallas hér um árið, sakar sjálfan sig um að hafa ekki brugðist rétt við á hættunnar stund. Upp frá því hefúr líf hans verið ömur- legt. Hann kemst á slóð til- ræðismannsins (John Malkovich) fyrir tilviljun og fær nú tækifæri til þess að bæta fyrir fyrri mistök. Myndin er afar vel gerð og vel leikin. Flest atriði í myndinni eru trúverðug og eykur það vitaskuld spennuna, sögu- þráðurinn er ekki tóm vit- leysa eins og oftast er um spennumyndir, þessi saga gæti gerst. Að vísu má hafa ýmsar skoðanir á sálarlífi til- ræðismannsins og þörf hans fýrir að ögra hinum aldna ör- yggisverði, en það er ekki höfúðatriðið miðað við upp- byggingu myndarinnar. Þegar Sovétríkin liðuðust í sundur 1991 og kalda stríð- inu lauk má segja að bú kommúnismans hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta. Sósíalistar og kommúnistar eru nú einskonar pólitískir þrotamenn, fyrirtæki þeirra eru ekki lengur í rekstri og þess vegna þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af þeim. Öðru máli gegnir um þá sem slógust við kommúnismann, þeirra er framtíðin og heilindi þeirra varða miklu. Margt ill- virkið var réttlætt með barátt- unni við kommúnismann, meðal annars þjálfun laun- morðingja á vegum CIA, svo- nefndra blautbolunga. Það er þessi staðreynd sem kvik- myndin í skotlínunni fjallar um, hinar afskræmdu mann- verur sem ekki er lengur þörf og ekki er lengur hægt að réttlæta. í myndinni verður tilræðismaðurinn smátt og smátt skýrari og um það er lýkur skilur maður að hann átti ef til vill ekki margra kosta völ til þess að losna úr því helvíti sem stjórnmála- mennimir og CIA höfðu bú- ið honum. Þess vegna er CLA- maðurinn hinn rökrétti til- ræðismaður í dag. I þessu samhengi er athygl- isvert að þeir, sem á ámm áð- ur voru alltaf að gapa um frjálsa samkeppni og frjálsa verslun hér uppi á litla ís- landi, em nú orðnir hörðustu gæslumenn sérhagsmuna og verslunaránauðar. „í myndinni verður tilrœðismaðurinn smátt og smátt skýrari ogum það er lýkur skilur maður að hann átti eftil vill ekki margra kosta völ tilþess að losna úrþví hel- víti sem stjórnmálamennirnir og CIA höfðu búið honum. Þess vegna er CIA-maðurinn hinn rökrétti tilrceðismaður í dag. íþessu samhengi er athyglisvert að þeir, sem á ár- um áðurvoru alltafað gapa umfrjálsa samkeppni ogfrjálsa verslun hér uppi á litla íslandi, eru nú orðnir hörðustu gœslumenn sérhagsmuna og verslunaránauðar. “

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.