Pressan - 21.10.1993, Page 2
FYRST OG FREMST
2 PRESSAN
Fimmtudagurinn 21. október 1993
JÓN BALDVIN HANNIBALSSON. Fúll út íStöð 2. PÁLL MAGNÚSSON. Einn fárra
Stöðvarmanna sem Jón Baldvin talar við.
Íón Baldvin með
anghund við
Stöö 2________________
Eins og tæpast hefur farið
framhjá hlustendum Bylgj-
unnar og áhorfendum Stöðv-
ar 2 forðast utanríkisráðherra,
Jón Baldvin Hannibalsson,
fréttamenn stöðvanna beggja
eins og heitan eldinn og kem-
ur sér ítrekað undan því að
svara spurningum þeirra.
Ráðherrann heldur því enn til
streitu samskiptabanni sínu
við fréttamenn stöðvanna
tveggja, sem hann tók upp í
kjölfar umíjöllunar Stöðvar 2
og Bylgjunnar um skinkumál-
ið ífæga í sumar. Síðan hefur
Jón Baldvin alfarið neitað að
ræða við fréttamenn stöðv-
anna; er ætíð vant við látinn ef
hringt er í hann og svarar eng-
um skilaboðum. I örfáum tU-
vikum hefur fréttamönnum
tekist að ná tali af ráðherran-
um á opinberum vettvangi, en
hann hefur þá jafnan verið
þurr á manninn og stuttur í
spuna. Eina undantekningu
gerði ráðherrann þó frá regl-
unnni, ef ffá eru talin hnökra-
laus samskipti hans við dag-
skrárgerðarfólk Bylgjunnar,
þegar Páli Magnússyni, sjón-
varpsstjóra Stöðvar 2, tókst á
dögunum að fá hann til að
koma ffam í fféttaþættinum Á
slaginu.
Hilmar sýslar í
sjóöum________________
Enn frekari töf er orðin á
því að upptökur geti hafist á
mynd Hilmars Oddssonar
kvikmyndagerðarmanns um
Jón Leifs tónskáld. Hilmar
sótti um framlag úr Norræna
kvikmyndasjóðnum en var
ekki meðal hinna útvöldu við
síðustu úthlutun úr sjóðnum,
sem fór ffam í byrjun október.
Hilmar hefur nú endurnýjað
umsókn sína og hefiir að sögn
ástæðu til að ætla að hann fái
leiðréttingu sinna mála og
verði veitt framlag úr sjóðn-
um þegar næst verður úthlut-
að í desember. Þangað til hef-
ur tökum verið frestað, enda
um að ræða þýðingarmikinn
fjárstyrk sem mun ráða
nokkru um framhald mynd-
arinnar. Framlag Norræna
kvikmyndasjóðsins mun
nema um 20 milljónum ís-
lenskra króna, en heildar-
kostnaður við gerð myndar-
innar er áædaður rúmlega 100
milljónir. Hilmar hefur þegar
hlotið 23 milljóna króna
framlag úr Kvikmyndasjóði
íslands, auk framlags frá Rík-
isútvarpinu, sem hefur tryggt
sér sýningarrétt á myndinni.
Hilmar hefur fengið erlenda
samstarfsaðila til liðs við sig,
bæði frá Þýskalandi og Sví-
þjóð, en heildarframlag ís-
lendinga til myndarinnar
verður um 40 milljónir.
Fyrstu drög að handriti
myndarinnar um Jón Leifs
voru samin af Hilmari og
Hjálmari H. Ragnarssyni
tónskáldi, en á síðari stigum
málsins bættist Sveinbjöm I.
Baldvinsson, dagskrárstjóri
innlendrar dagskrárdeildar
Sjónvarpsins, í hóp handrits-
höfunda. Þröstur Leó Gunn-
arsson leikur Jón Leifs en
annað aðalhlutverk verður í
höndum Rutar Ólafsdóttur.
Enn hefur ekki verið gengið
ffá því hver verður á bak við
myndatökuvélarnar, en heyrst
hefiir að Hilmar hafi borið ví-
umar í ffægan erlendan kvik-
myndatökumann.
Hilmari flaggað
á síðustu sfundu
Evrópska kvikmyndaaka-
demían kynnti Felixverðlaun-
in hér á landi um síðustu helgi
í samvinnu við Háskólabíó.
Kvikmyndaverðlaun þessi
hafa sem kunnugt er einu
sinni fallið Islendingi í skaut
er Hilmar Örn Hilmarsson
Jilaut Felixinn fyrir tónlistina í
mynd Friðrilcs Þórs Friðriks-
sonar, Börnum náttúrunnar,
árið 1991. Með framlagi
Hilmars Arnar komst Island
endanlega á kortið hjá Evr-
ópsku kvikmyndaakadem-
íunni og því hefði mátt ætla
að menn myndu eftir verð-
launahafanum við kynningu á
Felixverðlaununum hér
heima á dögunum. Sú varð þó
ekki raunin. Samkvæmt hefð
var fjölda menningarblysa
boðið að vera við opnun Fel-
ix- kvikmyndahelgarinnar, en
af óskiljanlegum ástæðum
gleymdist að bjóða Hilmari
Emi. Skömmu fyrir opnunina
uppgötvaðist þó að hann var
ekki með á boðslistanum og
náðu Felix-menn að koma til
hans boðum og bjarga sér fýr-
ir horn á elleffu stundu.
„Þriggja milljóna króna
sérhönnuð lúxusskrifstofa“
Miklar tröllasögur hafa geng-
iö um hömlulaust bruöl Eggerts
Þorsteinssonar, fráfarandi for-
stjóra Tryggingastofnunar. A „-
allra vitoröi" hefur verið aö
Eggert lét þekktan innanhúss-
arkitekt hanna fyrir sig glæsi-
lega skrifstofu á þriðju hæö
Tryggingastofnunar, í gangin-
um milli heilbrigðisráöuneytis-
ins og Tryggingastofnunar. Full-
yrt var aö innréttingin á þessari
lúxusskrifstofu kostaði samtals
að minnsta kosti þrjár milljónir
króna og mahóní og marmari
væri þar í hólf og gólf. Sagan
barst eins og eldur í sinu um
bæinn og ábyrgir aðilar í
stjórnmálum fullyrtu a& hér væri
á ferb eitthvert versta bruðl og
óráðsía sem sögur færu af.
Meðal annars var rætt meðal
stjórnmálamanna að taka mál-
ið upp á hinu háa Alþingi.
Fregnin barst vitanlega inn á
ritstjórn PRESSUNNAR og bar
heimildamönnum saman um
óráðsíuna. Fyrstu viðbrögð í
heilbrigðisráðuneytinu voru
þau að annaðhvort sögð-
ust menn ekki þekkja mál-
ið eða alls ekki vilja tala
um það. Á endanum náð-
ist í Eggert Þorsteinsson,
sem gaf góðfúslegt leyfi til
að skoða salarkynnin. I
Ijós kom 15 fermetra
kompa og berstrípaðir
veggir. Skrifstofan hafði
áður verið notuð af lög-
fræðingi sem var í tíma-
bundnu starfi og eina nýja
húsgagnið var skrifborð,
stólarnir voru gamlir og
ritvélin fengin úr geymslu-
kompu. Það sem kom
mönnum mest á óvart við
tröllasöguna var að Egg-
ert hefur verið þekktur fyrir
allt annað en íburð þau
fimmtán ár sem hann hef-
ur setið sem forstjóri og
því hljómaði það undar-
iega að hann innréttaði
nú lúxusskrifstofu fyrir þær
fáu vikur sem eftir eru.
Hann lætur af störfum 1.
febrúar.
„Þriggja milljóna króna lúxusskrifstofa“ Eggerts Þorsteinssonar, fráfar-
andi forstjóra Tryggingastofnunar, reyndist berstrípuð 100 þúsund króna
kompa. Myndin er tekin með gleiðlinsu vegna smæðarinnar.
Óskcxr úr bíó í leikhús
Óslcar Jónasson virðist vera að detta
úr bíóinu í leilchúsið. I Borgarleildiús-
inu eru að hefjast æfingar á Evu Lúnu,
en Óskar er skrifaður fyrir leikmynd
og sem einn höfunda leikgerðar.
Herranótt MR telur sig einnig hafa not
fyrir lcraffa Óskars. Nú er í þýðingu
leilcritið „Sweeney Todd - The Demon
Barber of Fleet Street“ (Morðóði rak-
arinn í Hafnargötu) eftir C.G. Bond.
Herranótt byrjar að æfa það milli jóla
og nýárs og Óskar leikstýrir verldnu.
Leikritið gæti flokkast undir „splatter“-
kómedíu og fjallar um hroðalega at-
burði sem eiga að hafa átt sér stað við
upphaf 19. aldar.
Skilagjald á kratana
Gárungar í Sjálfstæðisflokknum
segja að krötum hafi alveg yfirsést einn
skattstofn í baráttunni við fjárlagahall-
ann. Er vísað til þess að Jón Baldvin
Hannibalsson hafi skilað skinkunni,
Guðmundur Árni Stefánsson hafi
skilað biðlaununum og Jón Sigurðs-
son hafi skilað jeppanum. Þarna sýnist
mönnum að sé kominn tilvalinn skatt-
stofn og mætti hafa ágætar tekjur af
því að leggja á krata skilagjald.
Sjóskíðabraut í
Reykjavík
Fyrir borgarráði liggur nú allsérstök
umsókn. Sigurður S. Bjarnason úr
Hafnarfirði hefur sótt um að fá að-
stöðu fyrir vatnaskíðabraut. Afgreiðslu
á umsókninni hefur verið frestað enda
um miklar ffamkvæmdir að ræða og
Sigurður þarf svæði sem jafnast á við
tvo fótboltavelli. Sigurður vill að
vamaskíðabrautin verði í nágrenni við
íþrótta- eða tómstundamannvirki og
þarf aðgang að miklu magni af raf-
magni og heitu vatni. Gera þarf stærð-
arsíki sem verður að vera um 1,5
metra djúpt og fullt af 25 gráða heitu
vatni. Meiningin er að tólf geti skíðað í
einu, en þeir eiga að snúast í hringi á
þar til gerðum skíðum. Stærðin er þó
slík að 16 metrar verða á milli skiða-
mannanna og hraðinn er mikill því
þeir eiga að geta náð 45 kílómetra
hraða á kluldcustund. Mikil starfsemi
er fyrirhuguð í tengslum við vatna-
skíðabrautina, því gert er ráð fyrir
búningsklefa, afgreiðslu, stjómtumi og
veitingasölu. I heild eru þetta tveir
hektarar sem svæðið á að þekja. Ljóst
er að kostnaðurinn er gríðarlega mikiU
en Sigurður er hvergi smeykur og
hugsar sér þetta sem framtíðarfjárfest-
ingu. Hann hefur þegar gert útlits-
teikningu og loftmynd að fyrirhuguðu
íþróttasvæði.
HlLMAR 0DDSS0N. Á milli sjóða með Jón Lerfs. SVEINBJÖRNI. BALDVINSS0N. Semur handritið með Hilmari og hefur tryggt sér sýningarréttinn. ÞRÖSTUR LEÓ GUNNARSSON. Vonandi leikur hann tón-
skáldið Jón Le'rfs. HlLMAR ÖRN HlLMARSSON. Munaði minnstu að sjálfur Felixhafinn gleymdist við „Felixprómóið". ÓSKAR JÓNASS0N. Leikstýrir á Herranótt. JÓN SlGURÐSSON. Stendur í „skilum" eins
og aðrir toppkratar.
UMMÆLI VIKUNNAR
„Núverandi ríkisstjórn er nógu mennt-
uð en hefur ekkert vit á að stjórna þjóð-
arbúinu. Núverandi ráðherrar hefðu
verið betur undir það búnir að stjórna
landinu efþeir hefðu mátt vinna við
atvinnuvegi þjóðarinnar á sínum
sokkabandsárum. “
Regína Thorarensen fréttahaukur.
Mælskusnillingurinn
„Þetta var arfaléleg sending í orðsins fyllstu
merkingu.11
Valtýr Bjöm íslenskufræðingur.
Bjartsýnn borgarflokkur
„Ef Alþýðuflokkurinn tekur eldd þátt í sameiginlegu
framboði fær hann ekki einn mann inn í borgar-
stjóm.“
Ingvar Sverrisson ungkrati.
/
„Það er fullkomlega raunsætt að gera ráð fyrir að með nýju álveri á Keilis-
nesi og frekari framkvæmdum í Straumsvík og Gmndartanga megi þre-
falda orkusölu til stóriðju á næstu tíu árum.“
Jóhannes Nordal draumóramaöur.
Fólkið. það er
ég!
„Alþingismenn em aui
„Dómsmálaráðherra hlustar ekki á fólkið í þau eru aðhlátursefni “
landinu.“
Guðjón Magnússon kúgari.
Kom, sáogfór
unarverðir fyrir launakjör sín,
Ellert B. Schram, fyrrum þingmaður.