Pressan - 21.10.1993, Qupperneq 7
F R ÉTT I R
Fimmtudagurinn 21. október 1993
pressan 7
Guðmundur Tulinius hjú Slippstöðinni Odda hf. á Akureyri
FRAMKVÆMDASTJORITVEGGJA
SAMKEPPNISFYRIRTÆKJA
Stjórnarformaður Slippstöðvarinnar segir hagsmuni fyrirtækjanna skarast „ákaflega sjaldan“
MAGNÚS GAim GAUTASON. Hann og aðrír
stjórnarmenn í Slippstöðinni Odda ákváðu að
veðja á framkvæmdarstjóra samkeppnis-
fyrirtækis.
Óánægju gætir nú meðal
nokkurra starfsmanna Slipp-
stöðvarinnar Odda hf. á Akur-
eyri með ráðningu stjórnar fé-
lagsins á nýjum ffamkvæmda-
stjóra, Guðmundi Tulinius.
Ástæða þessa kurrs er sú að
Guðmundur er talinn eiga
persónulegra hagsmuna að
gæta vegna fyrirtækis síns í
Þýskalandi, G.T.-Hamborg,
sem ekki fari saman við hags-
muni Slippstöðvarinnar
Odda, enda sé um samkeppn-
isaðOa að ræða. Guðmundur
er ráðinn í 75% starf hjá Slipp-
stöðinni Odda, en er að öðru
leyti frjáls samkvæmt ráðning-
arsamningi að því að sinna
hagsmunum eigin fýrirtækis á
sama tíma.
Hagsmunaárekstrar
Dæmi um slíkan hags-
munaárekstur sé að fýrirtæki
Guðmundar í Þýskalandi hafi
þar umboð fyrir Hempel-
skipamálningu og Slippstöðin
hafi umboð fýrir sömu máln-
ingartegund. Hafi Guðmund-
ur á ráðningartíma sínum sem
ffamkvæmdastjóri Slippstöðv-
arinnar gert samning við
Snorra Snorrason, útgerðar-
mann á Dalvík, um sölu á
málningu fýrir togarann Bald-
ur. Þennan samning hafi hann
gert fýrir hönd eigin fýrirtæk-
is, GT-Hamborg, en ekki fýrir
Slippstöðina. I tilefni þessa
birtist í dagblaðinu Degi í gær
fyrirspurn frá starfsmanni
Slippstöðvarinnar, Smára
Árnasyni, til stjórnar Slipp-
stöðvarinnar um hvort hún
teldi eðlilegt að Guðmundur
nýtti ferð til Danmerkur á
vegum Slippstöðvarinnar til
að mæla upp skipið svo hann
gæti gert tilboð vegna máln-
ingarsölunnar fýrir hönd síns
eigin fýrirtækis. Svar stjórnar
var stutt og sagði aðeins að
þetta væri í fullu samræmi við
starfssamning Guðmundar.
Guðmundur, sem er fyrr-
um skrifstofustjóri hjá Slipp-
stöðinni, var ráðinn til Slipp-
stöðvarinnar undir lok ágúst-
mánaðar. Hann hefur undan-
farinn áratug starfrækt ráð-
gjafar- og eftirlitsfyrirtæki f
Hamborg, sem hefur sérhæft
sig í þjónustu við íslenska út-
gerðarmenn sem hafa þurft
eða viljað senda skip sín utan
til viðgerða. Hefur hann starf-
að sem umboðsmaður ís-
lenskra útgerðarmanna er-
lendis og segja gagnrýnisradd-
ir á Akureyri það óeðlilegt að
Guðmundur fái nú fiillan að-
gang að öllum innri upplýs-
ingum fyrirtækisins. Ekki sé
óeðlilegt að ætla að hann nái
að nýta sér þessi tengsl til að
taka til sín viðskipti, sérstak-
lega ef Slippstöðin fer endan-
lega á hausinn, en fyrirtækið
hefur nýverið fengið fram-
lengda greiðslustöðvun til 22.
nóvember. Guðmundur hefur
lýst því yfir að hann muni
hætta störfum hjá fýrirtækinu
þegar greiðslustöðvun rennur
út.
Formaöurinn: Hags-
munir skarast „sjald-^
an“
Slippstöðin Oddi hf. varð til
við samruna Slippstöðvarinn-
ar og Vélsmiðjunnar Odda
um síðustu áramót. Er fýrir-
tækið að stærstum hluta í eigu
þriggja aðila, Akureyrarbæjar,
KEA og ríkisins, og eiga þeir
nokkurn veginn sinn þriðj-
unginn hver. Formaður
stjórnar er Knútur Karlsson,
sem situr fýrir hönd Akureyr-
arbæjar, en aðrir í stjórn eru
Magnús Gauti Gautason
KEA-stjóri og Þorsteinn
Már Baldvinsson í Sam-
herja, sem er fulltrúi
ríkisins. Knútur Karls-
son sagði í samtali við
PRESSUNA að vissu-
lega væru fyrirtækin á
svipuðu sviði í rekstri.
Það væri hins vegar ekki
óeðlilegt að ráða aðila
frá samkeppnisfýrirtæki
til að fara með fram-
kvæmdastjórn fýrirtæk-
isins, þar sem það væri
ákaflega sjaldgæft að
hagsmunir þessara
tveggja fýrirtækja skör-
uðust. Aðspurður um
hvort ekki hefði verið
eðlilegra að fram-
kvæmdastjóri fýrirtækis-
ins starfaði í þágu þess,
og seldi þarafleiðandi
málninguna frá Slippstöðinni
en ekki frá eigin fyrirtæki,
sagði Knútur að það væri
sjaldgæft að málning væri
keypt hérlendis til nota er-
lendis. Aðspurður um hvort
ekki væri einfalt mál fyrir
Slippfélagið að gera samning
um málningarsöluna, hringja
eitt símtal til údanda og fá að
minnsta kosti umboðslaun,
játaði Knútur því. Hann sagði
hins vegar að eigandi togarans
Baldurs, Snorri Snorrason, út-
gerðarmaður á Dalvík, hefði
leitað beint til Guðmundar
um málningarkaupin og ekki
talað við Slippstöðina. Þess má
geta að Slippstöðin vinnur nú
að endurbótum á kælibúnaði
og vinnslusal togarans úti í
Danmörku fyrir Snorra, en
þaðan fer togarinn til Póllands
í klössun.
„Vinn ekki gegn hags-
munum fyrirtækisins"
Guðmundur Tulinius sagði
í viðtali við PRESSUNA að
hann væri ekki að selja neina
málningu sem Slippstöðin
Oddi mundi annars selja.
„Slippstöðin Oddi selur ekki
málningu til útlanda. Ég er
ekkert að vinna hér sem er
andstætt hagsmunum Slipp-
stöðvarinnar Odda,“ sagði
Guðmundur. Þá sagði hann
ekki rétt að hann hefði farið út
á kostnað fýrirtækisins, svo
sem haldið væri fram í skrif-
um Smára Árnasonar í Degi.
Annað vildi hann ekki tjá sig
um varðandi þetta mál.
PRESSAN leitaði upplýs-
inga hjá málningarframleið-
anda hér í borg um hvernig
sölu á málningu fyrir svona
verkefni væri háttað. Þar feng-
ust þau svör að algengt hefði
verið, þegar íslendingar létu
gera við eða smíða skip er-
lendis, að íslensk fyrirtæki
sendu reikninga fyrir máln-
ingu, jafnvel þótt það hefði
ekki kostað nema örfá símtöl
að koma slíku í kring og
málningin hefði aldrei til Is-
lands komið. Að öðrum kosti
hefði íslenska fýrirtækið getað
sent reikning fýrir umboðs-
launum.
Þá hefur PRESSAN heimild-
ir fyrir því að Slippstöðin
Oddi hafi unnið ýmis verk til
útflutnings og ætti fýrirtækinu
ekki að verða skotaskuld úr að
„selja nokkrar dollur af máln-
ingu úr landi, þegar tækifæri
er til“, eins og það var orðað.
Páll H. Hannesson
Sérkennileg uppákoma hjá Tilraunastöðinni á Keldum
FORSTÖDUMAÐURINN
Staða forstöðumanns við Til-
raunastöðina á Keldum og með-
fylgjandi prófessorsstaða við
læknadeild Háskóla íslands hefur
nú verið auglýst laus til umsóknar.
Tildrög málsins eru með nokkrum
ólíkindum, en nýr forstöðumaður
var ráðinn til starfa 1. júní síðast-
liðinn. Það var dr. Kári Stefáns-
son, sem síðan sagði starfi sínu
lausu í síðustu viku með símbréfi
til menntamálaráðherra. Staðfesti
Þórður Harðarson, stjórnarfor-
maður Tilraunastöðvarinnar,
uppsögnina. Engar skýringar hafa
borist á þessu skyndilega brott-
hvarfi.
Kári stoppaði í raun stutt við í
starfi, því eftir tvo mánuði, um
mánaðamót ágúst/september,
hvarf hann af landi brott án skýr-
inga og svaraði engum fýrirspurn-
um sem reynt var að koma til
hans. Hann hefur ekki komið aft-
ur til landsins og hvarf hans hefur
vakið mikla furðu á Keldum.
Heimildir eru fyrir því að for-
ráðamenn Tilraunastöðvarinnar
hafi gert miklar og ítrekaðar til-
Bandaríkjunum þar sem hann tllkynnti uppsögn sína.
raunir til að hafa samband við
Kára, en hann hunsað allar slíkar
tilraunir. Ráðning Kára var reynd-
ar umdeild á sínum tíma, en hann
hefur áður leikið þann leik að
mæta ekki til starfa eftir að hafa
verið ráðinn. Það var fýrir nokkru
er hann var ráðinn sem dósent við
læknadeild Háskóla íslands en
mætti síðan ekki. Þá þykir hann
erfiður í umgengni.
Það sem hins vegar ýtti á eftir
ráðningunni var að hann á að baki
óvenjuglæsilegan feril sem vís-
indamaður og hefur prófessors-
stöðu við háskólann í Chicago auk
rannsóknarstöðu í Kaliforníu. Því
til viðbótar hafði hann fengið
vinnutilboð í Harvard. Þá hafði
hann mjög góð meðmæli erlendis
frá. Kári hafði hugmyndir um að
fá að samræma öll þessi störf.
Hann mun hafa þegið laun all-
an tímann en ekki er ljóst hvort
honum verður gert að endur-
greiða eitthvað af þeim.
Siguröur Már Jónsson
Húsbréf
Innlausnaiverð
húsbréfa í
1. flokki 1991
3. flokki 1991
1. flokki 1992
2. flokki 1992
Innlausnardagur 15. október 1993.
1. flokkur 1991 Nafnverð: Innlausnarverð:
1.000.000 1.320.071
100.000 132.007
10.000 13.201
3. flokkur 1991 Nafnverð: Innlausnarverð:
1.000.000 1.174.609
500.000 587.304
100.000 117.461
10.000 11.746
1. flokkur 1992 Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 5.784.488
1.000.000 1.156.898
100.000 115.690
10.000 11.569
2. flokkur 1992 Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 5.693.709
1.000.000 1.138.742
100.000 113.874
10.000 11.387
Innlausnarstaður:
Veðdeild Landsbanka íslands
Suðurlandsbraut 24.
HUSNÆÐISSTOFNUN RIKISINS
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 69 69 00