Pressan - 21.10.1993, Page 8
FRETTI R
8 PRESSAN
Fimmtudagurinn 21. október 1993
Norræna félagið segir upp öllu starfsfólki
■ ■
HOMLUIAUSTAPREKSTUR
NORRÆNA FELAGSINS
Svört ársskýrsla um stööu Norræna félagsins var kynnt á sambandsþingi félagsins á dögunum, en henni er haldið leyndri afforystu-
mönnum félagsins. í skýrslunni kemur fram að fjárhagsstaðan er hrunin, 16 milljóna króna taprekstur varð á félaginu 1991 og 1992
og eigið fé er orðið neikvætt um tæpar 7 milljónir króna. Ástæðan er sögð hrun á sölu ferða til Norðurlanda og að ekki var brugðist við
því með samdrætti í mannahaldi og lækkun mikils ferðakostnaðar. Forsvarsmenn viðurkenna rangar ákvarðanir og hafa sagt öllu
starfsfólki upp.
Haraldur Ólafsson. Formaður félagsins. Tekjur vegna ferða hrundu og ekki var dregið úr kostnaði vegna mannahalds
og íferðakostnaði. Haraldur neitaði blaðinu um aðgang að ársreikningum.
Norræna félagið var stór-
veldi í ferðaskrifstofurekstri
fyrir nokkrum misserum. Það
bauð afar lág fargjöld og fé-
lagatalan náði 7.000 manns.
Þegar Flugleiðir fóru að bjóða
ódýr fargjöld og gerðu samn-
inga við önnur félög hrundi
tekjustofh félagsins án þess að
nokkuð væri hreyft við út-
gjaldaliðum þess. Niðurstaðan
varð 7,5 milljóna króna halla-
rekstur á árinu 1991 og 8,3
milljóna tap árið 1992. Eigið
fé, sem var 8,6 milljónir árið
1990, er orðið neikvætt um
6,6 milljónir króna. Afkoman
er ekki skárri það sem af er
þessu ári og nú hefur verið
gripið til aðgerða. öllu starfs-
fólki hefúr verið sagt upp svo
og leigu á húsnæði félagsins í
Norræna húsinu, en óvíst er
með niðurskurð í ferðakostn-
aði, sem hefur verið umtals-
verður.
Reikningum haldiö
leyndum
Á sambandsþingi Norræna
félagsins, sem haldið var í
Hrafhagilsskóla í Eyjafirði fyrr
í mánuðinum, voru ársreikn-
ingar fyrir 1991 og 1992
kynntir ásamt ársskýrslu fé-
lagsins. Vegna þess hve fjár-
hagurinn er slæmur var lítið
rætt um önnur málefni félags-
ins og samþykkt að halda
aukasambandsþing um leið og
reikningar fyrir 1993 lægju
fyrir. Eftir þingið hefur verið
reynt að halda þessum reikn-
ingum ffá fjölmiðlum. Sigurð-
ur Símonarson, framkvæmda-
stjóri félagsins, vildi ekkert
ræða um reikningana né láta
þá í té. Hann vísaði á formann
félagsins, Harald Ólafsson,
sem einnig neitaði aðgangi að
reikningunum. „Það er ekkert
leyndarmál í reikningunum,
annað en að staða félagsins er
mjög slæm og við kærum
okkur ekkert um að fjallað sé
mikið um það á meðan við er-
um að laga stöðuna," sagði
Haraldur.
Hann sagði að ástandið
væri ekki neinum einum að
kenna þótt hann og aðrir
hefðu vissulega gert mistök.
Fyrst og fremst væri um að
kenna tekjumissi vegna sam-
dráttar í sölu ferða, sem hefði
hafist um áramótin 1991 og
1992. „Þá hrundi þetta hjá
okkur og við vorum of sein að
átta okkur á því að þetta gaf
ekki neinar tekjur. Við áttuð-
um okkur hreinlega ekki á því
að tekjurnar gáfu okkur
möguleika á að hafa meira
starfslið en nú er nauðsynlegt.
Það starfslið var samnings-
bundið og við þurftum að
borga því laun þó að þessi
tekjuliður brysti," segir Har-
aldur Ólafsson.
Aðspurður sagði hann að
aðgerðir sem gripið væri til
væru fýrst og ffemst að fækka
starfsliði, en öllum fimm
starfsmönnum Norræna fé-
lagsins hefur verið sagt upp ffá
áramótum. Þrír starfsmenn
hafa verið eingöngu á vegum
Norræna ráðsins en tveir hafa
að hluta verið borgaðir af
Norrænu ráðherranefndinni;
starfsmaður sem hefur séð um
Nordjobb og annar á upplýs-
ingaskrifstofunni á ísafirði.
Félagið hefur að auki haft að-
stöðu í Norræna húsinu, sem
er alltof stór, og hefur þeirri
aðstöðu einnig verið sagt upp.
Með þessu ætlar félagið að
draga úr kostnaði, en halda
starfseminni gangandi. Einnig
nefndi Haraldur tímaritið
Norræn jól, sem félagið hefur
gefið út fyrir jól með „gífurleg-
um kostnaði“. Útgáfu þess
verður hætt, enda var bók-
færður kostnaður af tímarit-
inu 1,1 milljónárið 1992.
Gríöarlegur ferðakostn-
aöur
Norræna félagið er þátttak-
andi í alls kyns samnorrænum
verkefnum og sækir fundi í
tengslum við það. Það vekur
þó óneitanlega athygli að
ferðakostnaður og dagpening-
ar eru vel á aðra milljón
króna. „Það er ekki hægt að
taka þátt í öllum þessum
fundurn þannig að það verður
skorið niður,“ segir Guðlaug-
ur Þorvaldsson ríkissáttasemj-
ari, annar tveggja félagskjör-
inna endurskoðenda. „Það er
mjög mikil samvinna milli fé-
laganna á Norðurlöndunum,
þátttaka í alls kyns þingum og
fleiru. Það er búið að ákveða
núna að spara í þessu öllu
saman. Það má segja að það
hafi verið seint í rassinn gripið
með að takmarka þetta, en ég
held að megi fullyrða að
stærsta skýringin er að ferð-
irnar bresta algjörlega og þá er
ekki hægt annað en að draga
saman seglin. Síðan er alltaf
álitamál hvað á að taka þátt í
miklu af fundahöldum,“ segir
Guðlaugur jafhframt.
Hár nefnda- og funda-
kostnaöur
Aðrir liðir vekja athygli í
þessum ársreikningum. Þegar
hefur verið getið rúmlega
einnar milljónar króna kostn-
aðar við útgáfu tímarits og
„ýmis kostnaður" og „annar
kostnaður" eru liðir upp á
hundruð þúsunda. Einnig má
nefna Afmæli landssambands-
ins, sem kostaði 620 þúsund
árið 1992, og formannafund,
sem kostaði um 700 þúsund
krónur. Biffeiðastyrkir námu
426 þúsund krónum, kostn-
aður vegna nefnda 310 þús-
undum og liðurinn „Gestir,
veitingar og gjafir" er upp á
130 þúsund krónur. Launa-
kostnaður er 3,5 milljónir
króna.
Hinir félagskjörnu endur-
skoðendur, Guðlaugur Þor-
valdsson og Björn Stefánsson
úr Keflavík, segjast hafa gert
munnlegar athugasemdir við
atriði í ársreikningnum frá
1991 en hafi ekki séð seinni
ársreikninginn fyrr en
skömmu fyrir birtingu. Þeir
hafi þó einkum gert athuga-
semdir við almenn atriði og
hversu stór hluti væri undir
„ýmis kostnaður“ og „annar
kostnaður“.
Útþensla í tíö viöskipta-
ráðherra
Sighvatur Björgvinsson var
framkvæmdastjóri félagsins
frá 1984 þar til í maí 1991,
þegar hann varð ráðherra. Á
þeim tíma jókst starfsemin til
muna, félögum fjölgaði tals-
vert vegna þess hve ferðir voru
á hagstæðum kjörum og um-
fang rekstrarins stórjókst.
Deilt er um hversu stóran þátt
Sighvatur á í því hvemig kom-
ið er, en fleiri em þeirrar skoð-
unar að hann eigi þar lítinn
hlut að máli og vandræðin séu
tilkomin á seinni tímum, þar
sem ekki hafi verið brugðist
rétt við gríðarlegu tekjutapi.
Ekki hafi verið skorið nógu
hratt niður það umfang sem
myndaðist í kringum rekstur-
inn í hans tíð, enda hafi verið
hagnaður þau ár sem hann
stýrði félaginu. Margir töluðu
einnig um að mikill dráttur
hefði orðið á bókhaldsskilum
frá honum, en hann segist
hafa skilað af sér í febrúar á
þessu ári.
„Gallinn við félagið eins og
það er uppbyggt er að útgjöld-
in eru að miklu leyti föst, en
öfugt við önnur norræn félög
er kostnaðurinn ekki borinn
af ríkinu. Félagið verður sjálft
að sjá um tekjuöflunina með
ferðaskrifstofurekstri,“ segir
Sighvatur. Hann telur erfitt að
draga úr kostnaði, þar sem fé-
lagið sé þátttakandi í samnor-
rænum verkefnum og verði
því að sækja fundi á meðan
það er aðili að verkeftiunum.
Ef það geri það ekki missi það
verkefni og þær tekjur sem
þau skila. „Þetta er því eigin-
lega hálfgerður vítahringur."
Hörð gagnrýni fjárhags-
nefndar
„Það er náttúrlega hörmu-
legt að þetta skuli vera svona,“
segir Guðlaugur Þorvaldsson
og bendir á að skera þurfi nið-
ur á öllum sviðum. Félagatal-
an hefur lækkað úr 7.000 í
rúmlega 5.000, enda voru
ódýrar ferðir forsenda fyrir
fjölgun félaga. I tillögum fjár-
hagsnefhdar er bent á að sækja
um ríflegan styrk til Reykja-
víkurborgar og draga mjög úr
gjöldum. Hætta með öllu
rekstri ferðaþjónustu, draga úr
launakostnaði og skrifstofu-
haldi, hætta með öllu að
greiða biffeiðastyrki og starfs-
menn njóti ekki fæðishlunn-
inda eins og verið hefur. Hætt
verði greiðslu dagpeninga og
ekki ráðist í útgáfustarfsemi af
neinu tagi. Nefndin gagnrýnir
harðlega seinagang við færslu
bókhalds og krefst þess að níu
mánaða uppgjör liggi fýrir hið
fýrsta.
Á fundinum kom einnig
fram hörð gagnrýni á hluta-
fjárkaup í ferðaskrifstofunni
Álís, en fjárhagsnefnd gat ekki
hafnað þeim kaupum „þar
sem viðskiptakrafa á hendur
Alís fellur niður samkvæmt
samningnum, verði honum
sagt upp eða hlutafjárkaupum
hafnað“. Formaðurinn, Har-
aldur Ólafsson, segist ekki vera
í nokkrum vafa um að það
takist að koma félaginu á rétt-
an kjöl. Það þurfi að grípa til
„mjög drastískra aðgerða, fýrst
og fremst með að segja upp
fólki og húsnæði og öðru
slíku, en miðað við margt
annað er þetta ekki óyfirstíg-
anlegt“, segir Haraldur. Stöð-
ug fundahöld eru þessa dag-
ana til að reyna að rétta fjár-
haginn við.__________________
PálmiJónasson
SlGHVATUR BJÖRGVINSSON. Framkvæmdastjóri félagsins þar til í apríl 199L
Þá voru umsvifin aukin en nú er skorið grimmt.
GUÐLAUGUR ÞORVALDSSON. Félagskjörinn endurskoðandi. „fllitamál hve taka
á mikinn þátt í fundahöldum erlendis."