Pressan - 21.10.1993, Side 10
70 PRESSAN
Fimmtudagurinn 21. október 1993
Einstök kæra frá 34 ára konu á Akureyri vegna skurðaðgerðar
Læknirinn var að
flýta sér vegna
veðméls“
EDWARD KlERNAN. Man ekki eftir þessu en neitar ekki ásökunum um veðmál.
ÓNAS FRANKLÍN. Hefði engin áhríf á framvindu skurðaðgerðarinnar.
34 ára kona á Akureyri hef-
ur sent landlæknisembættinu
kvörtun vegna viðskipta sinna
við lækni á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri. Telur kon-
an að hún hafi orðið að þola
veruleg óþægindi og tjón
vegna aðgerðar sem gerð var á
henni árið 1989. Umgjörð
þessarar aðgerðar telur hún
hafa verið mjög óeðlilega þar
sem viðkomandi læknir hafi
verið í kapphlaupi við tímann
vegna veðmáls sem hann
hafði í gangi við annan lækni
á Fjórðungssjúkrahúsinu.
„Læknirinn sagði mér frá
þessu veðmáli í heimsókn
minni til hans síðar,“ sagði
konan sem um ræðir, en hún
vill ekki láta nafhs getið. Hún
ber því við að hún hafi heyrt
við sjúkraskoðun eftir á hjá
lækninum Edward Kiernan,
sérfræðingi í kvensjúkdóm-
um, að hann ætti von á viskí-
flösku serii hann heíði unnið
til vegna veðmáls við annan
kvensjúkdómalækni, Jónas
Franklín.
Edward var spurður hvað
hæft væri í þessari frásögn.
„Ég geri ekki ráð fyrir að
hún sé að búa þetta til. Ég hef
sjálfsagt sagt þetta en að ég
hafi sagt það í fullri alvöru er
ekki rétt,“ sagði Edward í
samtali við PRESSUNA.
Eins og áður segir er langt
um liðið síðan umræddur
uppskurður átti sér stað. Það
var í nóvember árið 1989 sem
konan fór í einfalda aðgerð,
svokallaða ófrjósemisaðgerð.
Segist hún hafa skilið af við-
tölum við lækna að aðgerðin
yrði stutt og eftirköst lítil og
kemur það heim og saman við
ummæli þeirra sem hafa tjáð
sig um umfang slíkra aðgerða.
Á henni var hins vegar gerð
önnur aðgerð en áætíað var í
upphafi.
Langvinn sjúkrasaga
Sjúkrasaga konunnar hefur
hins vegar verið langvinn og
þreytandi síðan og segist hún
hafa verið nánast óvinnufær
fyrir vikið. Strax eftir aðgerð
hafi blæðingar og verkir verið
mun meiri en henni hafi verið
sagt að þeir gætu orðið, en að-
gerðir af þessu tagi eru taldar
það smávægilegar að sjúkling-
ur fer heim samdægurs.
í lýsingu sinni, sem hún
hefur sett saman fyrir for-
mann Neytendafélags Akur-
eyrar, Vilhjálm Inga Árna-
son, sem aðstoðar hana við
rekstur málsins, kemur fram
að erfiðleikar hennar hafa ver-
ið miklir. Eftir stöðuga verki
og lyfjameðferð neyddist hún
til að fara í aðra aðgerð í sept-
ember árið 1990 vegna sam-
grónings og sýkinga.
Lýsing hennar á ástandi
sínu í dag, nærri fjórum árum
eftir aðgerðina, er svona: „Ég á
enn í þessum veikindum og er
rúmföst tíu til fjórtán daga í
mánuði vegna hita, verkja og
mikillar ógleði, sem virðast
fylgja þessu. Þegar ég er svona
veik er ég alveg óvinnufær,
þ.e.a.s. ég er heimavinnandi
og get ekki sinnt því starfi þá
daga sem ég er svona slæm.“
Konan segist þegar í upp-
hafi hafa kvartað yfir ástandi
sínu, enda þurft mun meiri
læknis- og lyfjameðferð en
henni þóttí eðlilegt. Strax fyrir
tveimur árum talaði hún við
yfirlækni kvennadeildarinnar
og fyrir einu og hálfú ári hafði
hún samband við Matthías
Halldórsson aðstoðarland-
lækni. Það var hins vegar ekki
fyrr en í vor, þegar hún hafði
sett sig í samband við Vil-
hjálm Inga, sem hreyfing
komst á málið. I sameiningu
fengu þau viðtal hjá yfirlækni
kvennadeildarinnar, Kristjáni
Baldvinssyni. Kristján stað-
festi í samtali við PRESSUNA
að hann hefði farið yfir þetta
mál með þeim en vildi að
öðru leyti ekki tjá sig um ein-
staka þætti málsins. Kristján
sagði þó að í athugun sinni
hefði ekkert komið fram sem
benti til þess að læknarnir
hefðu staðið óeðlilega að mál-
um. Vilhjálmur benti hins
vegar á að læknarnir hefðu
aldrei verið spurðir beint út í
veðmálið og fjölda aðgerða.
Sjö aðgerðir á stutt-
um tíma
Konan telur að umræddan
nóvembermorgun fyrir fjór-
um árum hafi verið settar sjö
aðgerðir á dagskrá, þar af tvær
ófrjósemisaðgerðir. Með eðli-
legum vinnuhraða hefðu þess-
ar aðgerðir átt að standa fram
til klukkan 13.30, en þar sem
veðmálið gekk út á að ljúka
þeim fyrr hafi Edward viljað
vera búinn fyrir klukkan 11.30
og það tekist.
Édward sagðist eiga erfitt
með að rifja upp umræddan
dag fýrir fjórum árum, enda
tiltölulega nýlega sem hann
hefði frétt af því að konan
vildi rannsókn. Hann sagðist
þó treysta sér til að fullyrða að
ekkert hefði verið við vinnu-
hraðann að athuga.
Að sögn Edwards tekur slík
ófrjósemisaðgerð frá tuttugu
mínútum upp í hálftíma, allt
eftir ástandi sjúklings og að
því tilskildu að allt gangi vel.
Hann tók einnig ffam að þessi
tímasetning gæti auðveldlega
breyst, það væri eðli skurðað-
gerða. Þá sagði Edward að-
spurður að á milli tíu og
fimmtán mínútur tæki að
sótthreinsa skurðstofuna
milli aðgerða.
Neitar ekki veðmál-
inu
Eins og áður segir dregur
Edward frásögn konunnar
af veðmálinu ekki í efa, en
hún segist byggja hana á
ummælum hans sjálfs.
„Ég get ómögulega mun-
að eftir þessu en ég er ekki
að neita því að það sé
möguleiki að ég eða einhver
annar hafi sagt þetta og þá í
einhverju gríni. Ég held að
hún þurfi ekki að hafa
áhyggjur af því enda, ef ég
man rétt, þá var talað um
vínflösku eða svoleiðis. Ég
man ekkert um það en enga
vínflösku hef ég fengið eða lát-
ið annan hafa. Það hefur ekki
rist djúpt ef ég á annað borð
hef sagt það. Það sýnir bara að
óskaplega auðvelt er að mis-
skilja og snúa hlutum á verri
veg ef vilji til þess er fyrir
hendi,“ sagði Edward.
í gær náðist síðan samband
við Jónas Franklín og kom þá
fram að hann hefði fyrr um
morguninn farið yfir skjöl
vegna málsins ásamt Edward.
Sagðist Jónas ekki sjá neitt
óeðlilegt við framkvæmda-
hraðann. „Enda má segja að
sýkingarhætta sé meiri eftir
því sem uppskurðir standa
lengur.“
En er mögulegt að þið, þótt í
gamansemi vœri, hafið getað
varpað þessari veðmálshug-
myndfram?
„Já, sjálfsagt væri það, en
það hefði ekki átt að hafa áhrif
á framkvæmd verksins því
það þykir góð latína að vera
fljótur að gera aðgerðir,“ sagði
Jónas. Það kom einnig fram
hjá honum að þetta væri í
fyrsta skipti sem hann hefði
verið spurður beint um aðild
sína að veðmálinu.
Það kemur glögglega fram í
viðræðum við konuna að hún
telur ástand sitt eftir aðgerð-
ina mega rekja til hennar.
Einnig segist hún hafa heim-
ildir fyrir því að að minnsta
kosti ein önnur kona, sem var
skorin upp um svipað leyti,
hafi átt við samskonar eftir-
köst að stríða.
Matthías Halldórsson að-
stoðarlandlæknir staðfesti til-
vist kærunnar og sagði að hún
biði meðferðar. Hann benti
reyndar á að konan hefði ekki
valið stystu leiðina til að fá úr-
lausn sinna mála, þar sem
eðlilegast væri að fólk sneri sér
milliliðalaust til landlæknis-
embættisins.
En hvað finnst honum utn
þetta mál?
„Ég vil ekki tjá mig um ein-
stök mál, en ef um veðmál er
að ræða við slíkar kringum-
stæður þá er það mjög
ósmekklegt og fyrir neðan all-
ar hellur. Ég á þó bágt með að
trúa því, þama hlýtur einhver
missldlningur að vera á ferð-
inni.“
Siguröur Már Jónsson
Baáberinn
nashuatec P295
snara baáum þínum hratt ag
örugglega hvert sem er.
/ Úrval faxtækja fyrir venjulegan pappír
/ Faxtæki vinnustaáarins
V Faxtæki heimilisins
\'/ ■
OPTiMA Armúla 8, "s 679000