Pressan - 21.10.1993, Blaðsíða 14
SKOÐAN I R
14 PRESSAN
Fimmtudagurinn 21. október 1993
PRESSAN
Utgefandi Blað hf.
Ritstjóri Karl Th. Birgisson
Ritstjórnarfulltrúi Sigurður Már Jónsson
Markaðsstjóri Sieurður I. Ómarsson
Ritstjóm, skrifstofur og auglýsingar:
Nýbýlavegi 14 -16, sími 64 30 80
Faxnúmer: Ritstjórn 64 30 89, skrifstofa 64 3190,
auglýsingar 64 30 76
Eftir lokun skiptiborðs: Ritstjórn 64 30 85,
dreifing 64 30 86. tæknideild 64 30 87
Áskriftargjald 798 kr. á mánuði ef greitt er meö VISA/EURO
en 855 kr. á mánuði annars.
PRESSAN kostar 260 krónur í lausasölu
Fréttir af
framkomu
ráðamanna
Stærsti prentmiðill landsins, Morgunblaðið, hefur lagt til að
Alþingi ræði leiðir til að koma böndum á það sem blaðið kallar
óvandaðan fréttaflutning íslenzkra fjölmiðla. í framhaldinu hafa
stjórnmálamenn gert að umræðuefni hvernig þeir geti komizt
hjá fréttaflutningi sem þeim þykir ósanngjarn eða óþægilegur.
Hvor tveggja umræðan en tímabær, en vitlausar spurningar sem
spurt er.
Dæmi: Kemur það íjölmiðlum við ef ráðherra í ríkisstjórn Is-
lands verður sér til skammar á opinberum vettvangi, hvort held-
ur er vegna almenns skorts á mannasiðum eða vegna áfengis-
neyzlu? Á að segja frá því hvernig ráðamenn koma ffarn við er-
lenda gesti, þótt í lokuðum samkvæmum sé? Svarið við hvoru
tveggja er já, að því leyti sem það kemur störfum þeirra við.
Ólafur Ragnar Grímsson hefur vakið athygli á reglu, sem fylgt
er á Bretlandi, að framferði opinberrar persónu á opinberum
stað eigi að vera opinbert umræðuefni. Honum þykir sem vel-
sæmi ráðamanna sé ábótavant og ástæða sé fyrir fjölmiðla að
taka það til urnfjöllunar með brezku regluna í huga. Það væru
stórtíðindi í íslenzkri fjölmiðlun.
Brezka reglan þýðir í reynd að til dæmis þegar ráðamenn fara
út á meðal fólks geta þeir vænzt þess að athafnir þeirra fái sömu
athygli og það sem þeir gera í vinnutímanum. Ef þeir gera vel-
sæmi og góða siði að tíðu umræðuefni mega þeir búast við að
fylgzt verði með hvort þar fylgi athafnir orðum. Þetta er nokkuð
sem fylgir starfinu sem þeir hafa valið sér. Ef þeir þola það ekki
ættu þeir að fá sér aðra vinnu.
Fréttir af því, sem hér er kallað einkahagir ráðamanna, eru
daglegt brauð vestan hafs sem austan. Og það er ekki hin svo-
kallaða gula pressa ein sem telur slíkt skipta máli, heldur virtir
fjölmiðlar og vandaðir blaðamenn. Því er oftast borið við, þegar
þvíumlíkt kemst til umræðu hér, að íslenzkt þjóðfélag sé svo fá-
mennt og nálægð milli fólks slík að hér þurfi að gilda aðrar regl-
ur um fréttaflutning en annars staðar á Vesturlöndum.
íslenzkir fjölmiðlar koma þó þessum erlendu fréttum á ffarn-
færi og eru með því að segja fréttir af erlendum ráðamönnum
sem þeir myndu aldrei treysta sér til að segja af sínum eigin vald-
höfum. í því er fólginn tvískinnungur sem engin leið er að verja,
nema með vísan til fámennis og hefðbundins þýlyndis fjölmiðla
gagnvart ráðamönnum.
Valdhöfum er oft gerður bjarnargreiði með þögninni. I slíku
andrúmslofti þrífast gróusögur sem aldrei fyrr og saklaust fólk
verður fórnarlömb rætinna sögusagna af því að fjölmiðlar þora
ekki að lýsa staðreyndum máls. Þessa eru nýleg sorgardæmi af
íslenzkum ráðamönnum og fjölskyldum þeirra.
Með þögninni verður einnig til tvenns konar sannleikur: hinn
raunverulegi og hinn opinberi, sá sem allir þekkja en enginn
þorir að lýsa og sá sem valdhafar vilja að sé skráður. Það er aust-
ur-evrópskt fyrirbæri sem Morgunblaðið í slagtogi við ráða-
menn má ekki komast upp með að innleiða.
BLAÐAMENN: Bergljót Friðriksdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir,
Jakob Bjarnar Grétarsson, Jim Smart Ijósmyndari,
Kristján Þór Árnason myndvinnslumaóur,
Páll H. Hannesson, Pálmi Jónasson,
Sigríður H. Gunnarsdóttir prófarkalesari,
Snorri Ægisson útlitshönnuöur.
PENNAR Stjórnmát: Andrés Magnússon, Árni Páll Árnason, Einar
Karl Haraldsson, Guðmundur Einarsson, Hannes Hólmsteinn
Gissurarson, Hreinn Loftsson, Mörður Árnason,
Ólafur Hannibalsson, Óli Björn Kárason, Þórunn Sveinbjarnardóttir,
Össur Skarphéðinsson.
Listir: Einar Örn Benediktsson, mannlíf, Guömundur Ólafsson,
kvikmyndir, Gunnar Árnason, myndlist, Gunnar Lárus Hjálmarsson
popp, Kolbrún Bergþórsdóttir bókmenntir, Martin Regal leiklist.
Telkningar: Ingólfur Margeirsson, Kristján Þór Árnason,
Snorri Ægisson, Einar Ben.
AUGLÝSINGAR: Ásdís Petra Kristinsdóttir, Pétur Ormslev.
Setning og umbrot: PRESSAN
Rlmuvinnsla, plötugerð og prentun: ODDI
STJ0RNMAL
Vandinn bakvið jeppana
Nú er öldurnar farið að
lægja eftir jeppafárið, fjölmiðl-
ar og þjóðarsálin farin að ein-
beita sér að næsta máli, spila-
kassastríðinu. Hinir nafnlausu
subbuþættir ljósvakamiðlanna
eru komnir í sitt gamla horf;
nú eru það rjúpnafriðun og
spilakassar sem skapa ógn í
huga fastagesta þjóðarsálanna
síðdegis. Ef svo heldur fram
sem horfir koma viðtöl við
einhverja ríkisforstjóra eftir
nokkrar vikur eða mánuði,
þar sem þeir kvarta yfir
óábyrgri fféttamennsku og öf-
undarhjali og að því loknu fá
fjölmiðlarnir móral og ekkert
heyrist meira af sjálfstæðum
ríkisstofnunum fyrr en næsta
sukksaga kemur, einhvern
tima á næsta ári.
Málið er bara ekki svo ein-
falt. Jeppavitleysan er dæmi
um annað og verra; skort á
aga og aðhaldi jafnt í opinber-
um rekstri og einkarekstri.
hluta fjárlaga og að Ríkisend-
urskoðun fari yfir rekstur fýr-
irtækja sem ríkið á hlut í til að
tryggja hámarksarðsemr al-
mannafjár.
Með þessu mundi Ríkis-
endurskoðun tryggja eðlilegt
eftirlit með sjálfstæðum ríkis-
stofnunum, sem yrði svipað
og eftirlit stofnunarinnar með
þeim ríkisstofnunum sem
heyra beint undir fram-
kvæmdavaldið. Þegar kæmi
að eftirliti með fyrirtækjum
sem ríkið á hlut í þyrfti Rílds-
endurskoðun hins vegar að
nota svipuð vinnubrögð og
umboðsmaður hluthafa í
einkafyrirtæki.
t.d. verið a.m.k. til skamms
tíma hjá þeim fjölmiðlafyrir-
tækjum sem að ofan eru
nefnd.
Annað vandamál er að
tækis? Það er að mínu viti fúll
ástæða til að fara á ný yfir
reglur um frádráttarbæran
kostnað, svo tryggt sé að þær
reglur séu til að létta fyrirtækj-
alltaf á endanum.
Samt er þetta allt okkur að
kenna. Spéhræðslukerfið í
launamálum á Islandi, þar
sem aldrei má greiða al-
„Er nokkuð athugavert við að einkafyrirtœki setjijeppa undir
forsvarsmenn sína? Er ekki eðlilegt aðforstjóri Stöðvar 2 og
ritstjórar DVfái dýra bíla til umráða, fyrst fyrirtœkin ganga
vel? Útfrá prinsíppinu er einfalt að svara báðum þessum
spurningum játandi. “
Ríkisstofnanirnar
í’að er athyglisvert að þrátt
fýrir allt tal um spamað í rík-
isrekstri hefur sáralítið áunnist
í sparnaði hjá sjálfstæðum
stofnunum. M.ö.o.: Allt frá
1989 hafa ráðherrar staðið sig
með ágætum, en þeir geta
bara skorið niður hjá þeim
stofnunum sem heyra undir
þá beint. Stofnanir á A-hluta
fjárlaga sýna því mestan
sparnað. Sjálfstæðu stofnan-
irnar lifa að meira og minna
leyti sjálfstæðu lífi og lúta litlu
sem engu eftirlitsvaldi löggjaf-
ar- eða framkvæmdavalds.
önnur sérstök fyrirbæri eru
fyrirtæki eins og Landsvirkj-
un, sem ríkið á hlut í og hefur
í gegnum árin sólundað fé af
sérstakri hugkvæmni.
Það er full ástæða ti! að
hvetja fjármálaráðherra og
fjárlaganefnd Alþingis til að
gangast fýrir lagabreytingum
sem tryggja að Ríkisendur-
skoðun endurskoði bókhald
sjálfstæðra ríkisstofnana á
sama hátt og hún fer yfir
rekstur stofnana á A- og B-
Einkafyrirtækin
Þá kemur að næsta þætti
málsins. Er nokkuð athuga-
vert við að einkafýrirtæki setji
jeppa undir forsvarsmenn
sína? Er ekki eðlilegt að for-
stjóri Stöðvar 2 og ritstjórar
DV fái dýra bíla til umráða,
fýrst fýrirtækin ganga vel?
Út frá prinsíppinu er einfalt
að svara báðum þessum
spurningum játandi. Þær
varpa hins vegar ljósi á tvennt
sem máli skiptir í þessu sam-
bandi: Reglur um kostnað
sem er frádráttarbær frá skatti
og eftirlit hluthafa með arð-
semi hlutafjár.
Byrjum á hluthöfúnum. Er-
lendis sér virkur hlutabréfa-
markaður um að veita stjórn-
endum aðhald og koma í veg
fyrir bruðl í rekstri. Hér á
landi eru fá fyrirtæki með
dreifða hlutafjáreign og hluta-
bréfamarkaður varla til. Því er
það svo í flestum fýrirtækjum
að rekstur þeirra og hlutafjár-
eign er í höndum nokkurra
vildarvina sem skipta með sér
kökunni. Þannig hefur það
þrátt fýrir að hlutabréfamark-
aður gæti þróast hér kann að
vera að virkni hans mundi
alltaf líða fýrir fámennið hér.
Eru margir Islendingar sem
geta séð það fýrir sér að standa
einir upp á hluthafafúndi í ís-
lensku fyrirtæki og gera at-
hugasemd við hækkun launa
stjórnarmanna? Ég veit um
nokkra sem hafa guggnað á
því.
Skattareglurnar ýta svo aft-
ur undir sóun og bruðl. Af
hverju er ekki sett hámark á
verð bifreiða sem fyrirtæki
geta keypt og notið skatt-
hlunninda út á? Af hverju er
boð í laxveiðiferð ekki fram-
talsskylt sem laun hjá þeim
sem fer í veiði á kostnað fýrir-
um eðlilega starfsemi en ekki
til að opna fýrir óeðlilegt
bruðl.
Skipta jeppar máli?
Það er ljóst að jeppakaup
fyrir stjórnendur sem aldrei
þurfa að fara af mölinni er
dæmi um brenglað verð-
mætamat og sýnir hversu
langt við eigum enn í að njóta
ábatans af frjálsum viðskipt-
um. Óhófleg yfirbygging
einkafyrirtækja í skjóli klíku-
eignar á hlutabréfum leiðir
einungis til þess að neytendur
borga reikninginn. Yfirbygg-
ing bankanna er fjármögnuð
af vöxtum þeirra sem borga af
lánunum sínum. Við töpum
mennileg laun, leiðir til þess
að fela þarf launagreiðslur.
Feluleikurinn eykur svo hætt-
una á bruðli, því enginn hefúr
í raun yfirsýn yfir það sem
greitt er. Þjóðin sýndi, svo
ekki varð um villst, að hún vill
áfram þennan feluleik þegar
hún lét fallerast af lýðskrum-
urunum sem kröfðust laga-
setningar til að eyðileggja nið-
urstöðu Kjaradóms í fyrra-
sumar. Með þeim gjörningi
tókst enn um sinn að fram-
lengja tíma pukurs með
launagreiðslur og búa til nýjar
hryllingsmyndir tvískinnungs
í launamálum, eins og dæmin
sanna._________________________
Höfundur er lögfræðingur.
FJÖLMIÐLAR
Var þetta það sem Hrafn vildi?
Jæja. Þá höfum við séð
rjómann af því sem boðið
verður upp á af innlendri
dagskrárgerð hjá Sjónvarpinu
í vetur. Ég beið nolckuð
spenntur af því að ég var í
grundvallaratriðum sammála
því sem Hrafn Gunnlaugsson
boðaði í örlagaríkum sjón-
varpsþætti í marz: annað fólk,
nýjar hugmyndir, líf, meiri
tengsl við mannlífið — allt
saman uppskxift að góðum
sjónvarpskokteil. I reynd
virðist tvennt það fýrsta hafa
orðið að veruleika, en sú
blanda er bæði bragðvond og
áhrifin lítil.
Ég hef áður lýst fýrstu við-
brögðum mfnum við Dags-
ljósi, þætti sem hugmynda-
leysið var farið að leka af strax
fyrstu dagana. Á súnnudag
bættist í leiðindaframleiðsl-
una eitthvað sem heitir Gestir
og gjörningar. Sú uppákoma
var vandræðalegri en tárum
taki, bæði stjómun og efnisat-
riði. Hugmyndin er í sjálfu
sér ekki alvitlaus, bara svo
sem ári of seint á ferðinni.
Kaffihús og barir hafa notið
vinsælda í Reykjavík nokkuð
lengi, en það tæki engan
„Kajfihús og barir
hafa notið vin-
sœlda í Reykjavík
nokkuð lengi, en
það tceki engan
nema Sjónvarpið
og kannski
Sunnudagsblað
Moggans heilt ár
aðfatta það og
bregðast við því. “
nema Sjónvarpið og kannsld
sunnudagsblað Moggans
heilt ár að fatta það og bregð-
ast við því. Og hverjir em þá
gestirnir þegar Sjónvarpið fer
á stúfana að skoða næturlífið?
Jú, Bubbi Morthens, Páll
Óskar, Beggi Páls og Hannes
Hólmsteinn. Og Jói barþjónn
sem hristi brennivín í fjórar
mínútur.
Þriðji kaflinn er SPK,
spurningaþáttur fýrir krakka.
Þar hefur minn gamli skóla-
bróðir Jón Gústafsson, tekið
að sér að stæla þann amríska
David Letterman, en með
vænni slettu af vandræðaleg-
um hallærisskap sem Jón ætl-
ar seint að losna við. Það er
rétt hugsanlegt að krökkun-
um sem taka þátt þyki þessi
framleiðsla skemmtileg og
rétt hugsanlegt að hægt sé að
hlæja tvisvar — jafnvel tíu
sinnum — þegar sama græna
gumsið hellist yfir fólk með
sama hætti. En ekld viku eftir
viku effir viku eftir viku —
tvisvar í viku.
Umræðuþáttur á sunnu-
dögum hefur
tapað í sam-
keppninni við
Stöð 2. Þegar
Sjónvarpið fór
af stað með
látum virðist
hafa runnið
upp fyrir
stöðvarfólld að
þar var ekkert
að gerast nema
kaup á tug-
milljónainn-
réttingum. Þá
var gamla
kanónan Páll
Magnússon
dregin fram í fréttatengda
þætti á sunnudögum sem
hefur alveg tekizt að jarða
umræðuþætti Sjónvarpsins á
svipuðum tíma. I saman-
burði verða þeir eins og mál-
fundir í menntaskóla — enda
umræðuefnin eldd ósvipuð
— og líða ýmist fýrir þátttak-
endúrna eða stjórnandann.
Hemmi Gunn er bara
Hemrni Gunn og verður það
áfram. Johnny Carson hélt
áfram í áratugi án þess að
þreytast verulega og Hemmi
hefúr alla burði til hins sama.
Þá er komið að gimsteinin-
um í þessum haug: þegar
þetta er skrifað er aðeins séð-
ur einn þáttur með Ingó og
Völu (af hverju skellir fólk
alltaf upp úr þegar nafnið á
þættinum er nefrit?), en þeir
lofa góðu. Vala er þekkt
stærð, en Ingólfur þyldr mér
hafa komið verulega á óvart.
Það er eins og hann hafi
aldrei gert annað en að
stjórna þáttum í beinni út-
sendingu — hann er afslapp-
aður og yfirvegaður, en samt
einbeittur. Eins og hann veit
er mér eldd ljúft að segja það
opinberlega, en þetta er með
betra sjónvarpsefni sem sézt
hefúr lengi.
Nú veit ég eldd hvursu
mildð af þessu efni er runnið
undan rifjum Hrafns Gunn-
laugssonar, en grunar þó að
hann ráði flestu því sem hann
vill ráða í slíku efnisvali hjá
Sjónvarpinu. Ef þetta er nið-
urstaða byltingarinnar sem
hann boðaði þá undrar mig
ekld að hann vilji hætta í vor
og snúa sér að einhverju
meira skapandi.
Karl Th. Birgisso