Pressan - 21.10.1993, Síða 24
AFRAM VALUR
24 PRESSAN
Fimmtudagurínn 21. október 1993
HATIÐ
I BÆ
Bubbleflies og
Jreahu RealisMc
Valsheimilib
vettvangur
ómældrar gleói
ó föstudaginn
Það er eitthvað að íslensku grámyglunni.
Aldrei þessu vant eru bara erlendar hljóm-
sveitir hérna með tónleika mánuð eftir
mánuð. I september skemmtu hinir frá-
bæru Dog Faced Hermans og annað kvöld
kemur enska bandið Freaky Realistic og
heldur eina tónleika í Valsheimilinu við
Hlíðarenda. Bæði hafa böndin vakið vænt-
ingar og bæði eru þau að gefa út sína fyrstu
plötu. Ég fékk Kidda kanínu í Hljómalind-
inni og Dabba til að segja mér meira. Kiddi
stendur á bakvið tónleikana og útgáfu
Bubbleflies-plötunnar en Dabbi spilar á gít-
ar í Bubbleflies.
Bubbleflies: Ekki úti i móa
með peiastikk
Það er langt síðan hljómsveit hefur verið
peppuð upp með loforðum um ferskan tón
og frískari tíma. Hljómsveitin Bubbleflies,
sem spratt upp á þessu ári, hefúr það orð á
sér að vera frískari en önnur bönd og hafa
eitthvað nýtt til íslensku poppmálanna að
leggja. Fyrsta plata sveitarinnar, hin nýút-
komna „The World is still alive“, er próf-
steinn á yfirlýsingarnar.
Hvað hefur Bubbleflies nýtt fram að
færa?
„Við blöndum saman danstónlist og
rokki,“ segir Dabbi. „Það er kannski ekki
mjög nýtt, en hérna heima hefur ekkert
verið gert af því.“
Er íslensk tónlist stöðnuð?
„Maður verður að passa sig þegar þessu
er svarað. Ég persónulega er orðinn mjög
þreyttur á henni. Það góða sem hefur verið
að gerast hefur aldrei komist almennilega
upp á yfirborðið. Það er búið að vera að
blóðmjólka sömu kýrnar alltof lengi.“
„Þótt við séum ekki að gera neitt nýtt þá
komum við að minnsta kosti með nýja
strauma inn í íslenska tónlist,“ segir Kiddi.
„Bubbleflies eru að færa íslenska dægur-
tónlist að því sem er að gerast erlendis.
Danstónlistin er að koma inn alls staðar.
Nú er fönk og dansbít allsráðandi. Það er
því ekki fráleitt að segja að þetta sé tíma-
mótaplata fýrir íslenska tónlistarsögu, burt-
frá því hvort þetta er gott efni eða vont.
Við erum búnir að opna nýja hurð.“
En er þessi tónlist eitthvað ísletisk? Er þetta
ekki bara stœling á ensku dansrokki?
„Er blús eitthvað íslenskur? Við höfum
fengið krítík fýrir að við séum að stæla út-
lenska tónlist. Við hlustum á útlenska tón-
list en það er ekki eins og við séum að
reyna að gera tónlist eins og Ameríkanar
eða Englendingar. Við fáum kannski þenn-
an stimpil því ekkert íslenskt efni hefur
hljómað svona áður. Hvað er íslensk tónlist
svo sem? Við gætum setið úti í móa ein-
hvers staðar með pelastikk og fiðlur...“
„Bubbleflies eru að taka skref fyrir ís-
lenska tónlist sem ætti að taka tíu ár. Það
hafa verið léttar tilraunir eins og „Icerave"
og „Núll og nix“, en þetta er fýrsta platan
sem gerð er sem heil dansplata. Hún ein-
kennist af ofsafengnu fálmi í stílum og
stefnum."
„Þetta bít (Dabbi lemur á lærið á sér),
sem Stone Roses komu með fyrir sirka
þremur árum, er komið inn í allt; jafhvel
lög hjá íslenskum böndum eins og Sól-
inni.“
Er þá ekki stutt í að þetta verði staðnað
fyrirbceri?
„Það er hætta á því, nema ný element
komi inn í tónlistina. Straumarnir eru að
færast frá sixtís-filingnum yfir í seventís-
fílinginn. Fyrir nokkrum árum voru allir
með Rickenbackerinn, dinglum-danglandi
eitthvað, en nú er seventís-fönkið komið
mikið inn í þetta.“
Lýsið plötunni. Er þetta þroskað byrjenda-
verk Dabbi?“
„Nei. Bílskúrsáhrifin eru allsráðandi á
þessari plötu hjá okkur. Hún kemur úr öll-
um áttum. Það skín í gegn að þetta eru bara
fjórir strákar að prófa sig áfram. Ég var
hræddur við að hún yrði alltof geðklofa, en
þegar hlustað er á hana er einn geisli sem
skín í gegnum hana alla; þessi fílingur í
okkur. Ég man eiginlega ekkert eftir að hafa
gert þessa plötu þvf þetta gerðist svo
fljótt og var svo gaman.
Við fórum af stað
með nánast ekk-
ert í höndun-
um, bara
grunna að
þremur
lögum,
en þetta
vatt ótrú-
lega vel
upp á sig.“
„Bubblefli-
es rúmar hug-
myndir þeirra
allra,“ segir
útgefandinn.
„ F r a m t í ð
Bubbleflies
er algjörlega
opin, ég sé fýrir mér karlakór. Þeir eru opn-
ir fýrir öllu, þeir eru vísir til alls.“
Bubbleflies er þá stúdíóband?
„Nú erum við orðnir læfband. Við höf-
um verið að æfa með tveimur trommurum
og bassaleikara og það verður ekkert
mæmað.“
„Það er helvíti grúfí hvað þeir hafa
FREAKY REALISTIC. Hafa fengið fré-
bæra dóma fyrir tónleika sína.
smollið saman. Á þriðju æfingu var komið
þetta pjúra grúf og bara góð hljómsveit, en
samt eru svona margir aðilar í dæminu.
Bandið er orðið mjög góð heild og fsland
þarfnast nýrra poppstjarna. Ég held að
Bubbleflies sé málið.“
Glöð og gröð sveimhátið
Það er óhætt að bóka mikið fjör í Vals-
heimilinu annað kvöld. Freaky Realistic
hafa vakið mikla eftirtekt á Englandi upp á
síðkastið með smáskífum. Sérstaklega hefur
lagið „Koochie Ryder“ gert það gott, enda
frábært popplag. Hljómsveitin hrærir,
líkt og Bubbleflies, saman
danstaktinum alls-
ráðandi og rokki
og poppi og
hefur mjög
gott vald
á að
h n o ð a
s a m a n
grípandi
laglínum.
F y r s t a
breiðskífan,
„Frealism“,
er vægast
sagt þétt
v e r k ,
s ö n n
partíplata
sem virk-
ar sterkt á lappirnar og heilabúið. Stuðið
hefst kl. 19.30 og munu Bubbleflies, T-
World og ýmsir diskósnúðar, þ.á m. DJ
Shakra sem hingað hefur komið áður, hita
mannskapinn upp fýrir Freaky.
Kiddi, tjáðu þig nú um tónleikana með
stórum lýsingarorðum.
„Þetta verður risastór og glæsileg sveim-
hátíð þar sem þtjú bönd munu trylla lýð-
. - . inn og leysa úr læðingi þau óskilgetnu öfl
sem trylla okkur í dagsins amstri. Fólk mun
koma út annað og betra.“
Segðu okkurfrá Freaky Realistic.
„Þetta er sirka eins og hálfs árs enskt
band. Þau eru þrjú í bandinu. Nýlega lentu
rapparinn Michael Lord og aðalmaðurinn
Justin Anderson í slagsmálum og var Lord
rekinn í kjölfarið. f staðinn kom Ricky gít-
arleikari sem ku vera tvífari Adams Ant.
Aki Omori er söngkona og seiðandi dans-
ari en hingað koma einnig bassaleikari og
trommari. Þau virka mjög sterkt á mann,
maður verður kátur og hamingjusamur og
vill dansa. Bandið hefur fengið frábæra
dóma í bresku pressunni og þá sérstaklega
fýrir tónleika. Þetta er einfaldlega band sem
gerir mann glaðan og graðan. Hingað kem-
ur breska pressan — NME, Melody Maker,
Select — og bandið lofar góðum tónleik-
um.“
Hvað á svo að gera við bresku pressuna?
„Þau koma með okkur í Bláa lónið og
svona, éta með okkur pítsur og drekka með
okkur bjór. Síðan göngum við þannig frá
þeim að þeir skrifi eitthvað fallegt um okk-
ur, bæði Bubbleflies, Freaky og Bláa lónið.
Og náttúrlega íslenska æsku, sem kann
svona vel að skemmta sér.“
Hvemig kom upp á að Freaky vildu koma
hingað?
„Þetta byrjaði með því að þau hittu
Björk í einhverjum sjónvarpsþætti. Eftir
þáttinn vindur Björk sér að þeim og segir
að þau séu band sem gæti orðið vinsælt á
íslandi, þau spili þannig músík. Þau líta
náttúrlega stórt á Björk og þeim finnst
þetta sniðugt. DJ Shakra, sem býr í sama
hverfi og þau úti í London, kemst að því að
ég er mikill Freaky-aðdáandi og „Koochie
Ryder“ er búin að vera ein söluhæsta tólf-
tomman í Hljómalind. Hann segir þeim að
þau eigi aðdáendur uppi á fslandi og þau
hafa samband og finnst kjörið að starta
stóru plötunni hér.“
Hvað standa tónleikamir lengi?
„Til sirka eitt. Síðan getur fólk sveimað
um öskjuhlíðina og heimsótt kanínumar.
En það verður að passa sig á flössurunum!"
Gunnar Hjálmarsson
BUBBLEFLIES. Komnir úr stúdíóinu, tilbúnir á sviðið.
i
i
!
i
1
i
TÓNLIST
í millivigtinni
„Síðustufimm lögplötunnar gœtu þess
vegna verið með Chris Rea eða Magnúsi
Eiríks; miðaldra ogvcerukœrt millivigt-
arpoppfyrir skrifstofufólk. “
ORRI HARÐARSON
DRÖG AÐ HEIMKOMU
JEPSEN/JAPIS
★*1/2
Eina blaðið sem Orri Harð-
arson brýtur í íslenskri tónlist-
arsögu með fýrstu plötu sinni
er að vera yngstur til að gefa út
plötu með frumsömdu efni.
Hann er tvítugur, en það heyr-
ist ekki á plötunni. Hér skín
ekki í gegn kraftur og æsingur
æskumanns. Hér er ffekar eins
og lífsreyndur og sigldur mað-
ur sé á ferðinni. Kannski er það
* í lagi, en persónulega hefði ég
viljað heyra meiri æsing, kraft
og nýjungagimi. Það er eins og
Orri hafi sætt sig við að koma
lögum sínum á framfæri í
ágætum poppbúningi. Og það
hefúr honum tekist.
Lögin tíu sem Orri setur hér
ffam rista ekki djúpt þótt þau
séu ágæt. Þetta er notaleg
kertaljósatónlist, margflutt
popp eftir bókinni. Orri hefur
samið lögin á kassagítar og hef-
ur ekki stórkostlegar hug-
myndir um útsetningar. Jón
Ólafsson var fenginn til að
pæla í hverju mætti bæta við og
eins og við mátti búast úr þeirri
áttinni varð yfirbyggingin
smekkleg en ekki ýkja fersk.
Lögin koma aldrei á óvart en
hér er margt þokkalegt.
„Dauðir dagar“, „Jólalag" og
„Hamingjusöm á ný“ eru engir
killerar, þessi lög fljóta án sýni-
legrar áreynslu að endapunkti
og melódían í þeim er ekki
nógu sterk til að vekja mikla
effirtekt. Það leynist þó margt
gott í þessum lögum og þau
sýna lagahöfund sem er til
margs líklegur með ffekari pæ-
lingum. „Lítið sætt popplag11 er
nákvæmlega það, og gott sem
slíkt, og í „AUt sem er“ víkur
fágun atvinnupoppmennsk-
unnar fyrir frískandi gusti
hrárra gítara með góðum ár-
angri, enda lagið vel samið og
grípandi. Eftir þetta sýnishom
af hráum Orra — þeim Orra
sem hagar sér eins og hann sé
tvítugur — tekur hinn bráð-
þroska rauðvíns-Orri aftur til
starfa og síðustu fimm lög plöt-
unnar gætu þess vegna verið
með Chris Rea eða Magnúsi
Eiríks; miðaldra og værukært
millivigtarpopp fyrir skrifstofú-
fólk. Gott sem slíkt en of vana-
fast og margendurtekið til að
eiga mikinn séns í yfirvofandi
flóði.
Rödd Orra er frekar gufúleg.
Hann tjáir sig ekki af mikilli til-
finningu en kemst svo sem
þokkalega ffá sinu í því tónlist-
arumhverfi sem hann hefur
valið sér. Margreyndir atvinnu-
menn sjá um undirleikinn. Þar
gengur allt eftir áætlun og lítil
áhætta tekin til að brjóta upp
lögin með stælum. Hin sautján
ára Valgerður Jónsdóttir syng-
ur með Orra í velflestum lög-
unum og er örugg og efnileg.
Textamir em þokkalegir og
passa svo sem ágætlega í þessa
millivigt. Þetta em nánast allt
mansöngvar í þátíð, um horfh-
ar ástir sem gengu ekki upp.
Það er oftast leiðinlegt að
Jilusta á menn væla um fyrr-
verandi kærustur og stundum
fellur Orri í þann pytt að væla
yfir sig á ljóðrænu klisjunótun-
um. Orri er þó heiðarlegur og
opinn og það þarf kjark til að
deila jafnpersónulegum tilfinn-
ingum með hlustandanum.
I heild er platan ágætt inn-
legg og nauðsynlegt. íslensk
tónlistarflóra er að verða ansi
litlaus og því er það gott mál
þegar nýir menn koma og
bæta smááburði á engið. Þótt
Orri sé ekki byltingarkennt
framlag er hann þó efnilegur
og á vonandi effir að láta heyra
í sér aftur í nánustu ffamtíð.
POPP
FIMMTll DAGU R I N N
21 . OKTÓBER
• Haraldur Reynisson,
trúbadorinn lífseigi, heldur
útgáfutónleika á Tveimur
vinum. Undir hömrunum
háu heitir geisladiskurinn
sem inniheldur frumraun
kappans.
• Sniglabandið heldur
annálaða hausttónleika
sína á Hressó. Auk pilt-
anna prúðu koma fram
Gary Snider, Kanadamað-
ur sem kýs að búa í Dan-
mörku og ætlar að leika
listir sínar á gítar. Ekki er
allt búið enn, því margir
fleiri troða upp, þar á með-
al einettinn Panik og Einar,
hevimetalsveitin Blóðmör
og dansbandið Júdó og
Stefán.
• Siggi Björns, trúbador-
inn góðkunni, sest niður
með gítarinn sinn á Kaffi
Amsterdam. Þetta er síð-
asta helgin hans hér heima
áður en hann fer til Köben
og engin von til að heyra
aftur til hans eða sjá fyrr en
næsta vor.
• Tregasveitin tekur á í
Djúpinu í kvöld. Þeim nota-
lega stað í kjallara Horns-
ins. Þar verður hún og að
viku liðinni.
• Gildran, eina hevírokk-
grúppan af eldri kynslóð-
inni, verðurá Gauki á
Stöng. Eini gallinn er sá að
þeir mættu vera síðhærðari
og sætari.
• Borgardætur, Ellen
Kristjánsdóttir, Berglind
Jónasdóttir og Andrea
Gylfadóttir, hverfa aftur til
fortíðarinnar með tilheyr-
andi söng á Cancun.
• Einar Jónsson trúbador
á Ijúfu nótunum á Dans-
barnum. Þar bjóðast mönn-
um jafnframt afnot af „opna
míkrófóninum", en hann
gerir fólki með sýniþörí
kleift að stíga á stokk og
segja brandara, flytja vísur
nú eða taka lagið. Exhibi-
sjónistar sameinist.
• Páll Óskar og Milljóna-
mæringarnir draga sjálf-
sagt heilmarga á Ommu Lú
í suðræna sveiflu. Við vit-
um lítt um hvort Palli er
jafnhrifinn af babes og for-
veri hans Bogomil Font.
• Vinir vors og blóma
halda enn í þetta eina lag
sem þeir hafa gert vinsælt.
Eitthvað hafa nöfn meðlim-
anna skolast til því nú heita
þeir Bæks, Gúnmark,
Stöneveld og Nílsmaster.
Fremur hallærislegt en
engu að síður á Gauknum.
• Snæfríði og stubbana
þekkja allir á skírskotuninni
í Mjalihvíti og dvergana sjö.
Alúðleg sveit sem verður á
Fógetanum.
• Paparnir færa sig nú um
set og troða upp á Cancun.
• Sssól-drengirnir enn
við sama heygarðshornið á
Tveimur vinum. Skyldi
Helgi fara úr að ofan?
• Jökulsveitin bræðir
stúlknahjörtun á Blúsbarn-
um.
• Siggi Björns trúbador
spilar rassinn úr buxunum
á Kaffi Amsterdam. Fáum
ekki að heyra aftur til hans
fyrr en næsta vor. Nú er
það Köben sem blífur.
• ET-bandið fær menn til
að tjútta á Dansbamum.
Nú er lag að ná úr sér
hausthrollinum.
LAUGARDAGU R I N N
23. OKTÓBER
• Saga Class og Er það
satt sem þeir segja um
landann; sýningin sem
byggist á léttri úttekt á ís-
lenska smáborgaranum
enn og aftur á Hótel Sögu.
Ólafía Hrönn Jónsdóttir
heldur sýningunni uppi;
stúlkan er óborganlega
fyndin. Mælum með henni.
• Vinir vors og blóma aft-
urá Gauknum.
• Ungt fólk með hlutverk
hefur upp raust sína í há-
tíðarsal Menntaskólans við
Hamrahlíð. Alls munu heyr-
ast þar 28 frumsamin lög úr
smiðju menntskælinga,
sem reyna allt til þess að
slá við Söngvakeppni fram-
haldsskólanna og ekkj síst
Júróvisjónkeppninni. Óneit-
anlega mikil gróska. Hátíð-
in er öllum opin. Hve glöð
er vor æska.
• Paparnir enn og aftur á
Cancun.
• Snæfríður og stubb-
arnir frá Þorlákshöfn. Allt
að því væmnir á Fógetan-
um.
• Jökulsveitin aftur og
nýbúin á Blúsbarnum.
• Siggi Björns kveður
landann á Kaffi Amsterdam
og snýr aftur til baunans.
Nú er að bíða eftir vorinu.
• ET-bandið boðar dans-
skemmtun á Dansbarnum.
Fram með tjútttútturnar.
• Combó Ellenar Kristjáns
leikur bæði á sunnudag og
mánudag á Gauki á Stöng.
SVEITABÖLL
• Kjallarinn, Akureyri.
Hljómsveit Rúnars Þórs
mætir í öllu sínu veldi.
• Inghóll, Selfossi.
Hljómsveitin Spark spilar
með Óla Óla og félögum,
sem flestir Sunnlendingar
ættu að kannast við.
• Sjallakráin, Akureyri.
Hljómsveit Rúnars Þórs aft-
urog nýbúin.
• Hótel Valaskjálf, Egils-
stöðum. Stjórnin, með
Siggu Beinteins hina bros-
mildu fremsta í flokki,
skemmtir unga fólkinu. Þið
komist inn sem eruð orðin
sextán.
LAUGAR DAG U R I N N
23.OKTÓBER
• Inghóll, Selfossi.
Todmobile kemur færandi
hendi alla leið til Selfoss
þar sem sveitin á miklu
fylgi að fagna. Bónusball,
þvi það kostar ekki nema
999 krónur inn. Kreppukjör.
• Þotan, Keflavík. Sssól-
sveinarnir láta Ijós sitt
skina, nú suður með sjó.
• Sjallinn, Akureyri.
Hljómsveitin Karma frá Sel-
fossi nú mætt til leiks norð-
an heiða. Kjallarinn, Akur-
eyri. Hljómsveit Rúnars
Þórs lætur ekki deigan
síga.
• Hótel Valaskjáif, Egils-
stöðum. Stjórnin skemmtir
fullorðna fólkinu. Vínveit-
ingaleyfi og því neyðast
táningarnir sem ekki fengu
nóg á föstudeginum til að
snua sér annað.