Pressan - 21.10.1993, Qupperneq 27
Fimmtudagurinn 21. október 1993
TVOFA LDU R TIM
PRESSAN
27
’tyífncióvef't a/f látw
Sýningar Leikfélags Reykjavíkur á
ádeiluverkinu Englum í Ameríku eftir
Bandaríkjamanninn Tony Kushner,
í leikstjórn Hlínar Agnarsdóttur,
hefur veriS beSiS meo nokkurri eftir-
væntingu, en leikritiS hefur vakiS gif-
urlega athygli beggia vegna Atlants-
ála frá því þaS var frumsýnt í Bqnda-
ríkjunum fyrir tveimur árum. Árni
Pétur Gu&jónsson er einn leik-
enda í Englum í Ameríku og kveSst
hann sannrærSur um aS sýning Borg-
arleikhússins eigi eftir aS verSa mjög
umdeild.
„Þetta er geysilega magnaS verk
sem hefur hvarvetna slegiSj gegn og
vakiS mikiS umtal," segir Arni Pétur.
„VerkiS segir frá nokkrum ólíkum per-
sónum, sem tengjast innbyrSis er pær
kynnast sjúkdómnum alnæmi af eigin
raun. ViS erum fimm karlmenn sem
tökum þátt í uppfærslunni og leikum
allir homma. Tveir ver&a fyrir þvi aS
veikjast af alnæmi og leikritiS fjallar
um átökin sem eiga sér staS í kjölfar-
iS á milli persónanna; annars vegar
alnæmissjúklinganna oq hins vegar
aSstandenda þeirra. Englar i Ameríku
jalla fyrst og fremst um ástir, svik og
órdóma; nauSsyn þess aS vera trúr
3ví sem maSur elskar og hversu erfitt
3aS reynist í nútimaþjóSfélagi aS
vera hreinn og beinn í samskiptum
viS annaS fólk."
Árni Pétur segir Engla í Ameríku
vera geysileqa mikilvægt verk sem
eigi erindi tií allra, ekki síst okkar
Islendinga. „ÞaS er löngu orSiS
tímabært aS viS látum af tepru-
skapnum varSandi homma og al-
næmi. Sjúkdómurinn er orSinn aS
stóru vandamáli hér sem annars
staSar,og ekki seinna vænna fyrir
okkur Islendinga a& horfast i augu
viS þaS. ÞaS vill svo til aS viS sem
tökum þátt í sýningunni höfum öll
misst góSa vini úr alnæmi og því
stendur efnj verksins okkur ákaf-
lega nærri. I rauninni má segja aS
þátttaka okkar í uppfærslunni sé
viss yfirlýsinq frá okkur um aS viS
stySjum viS oak þeirra sem glíma
vio alnæmi og fordómana því fylgj-
andi."
Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir
Engla í Ameríku annaS kvöld,
fþstudagskvöld, en lei.kendyr auk
Árna Péturs eru Elva Osk Olafs-
dóttir, Ellert A. Ingimundar-
son, Jakob Þór Einarsson,
Jón Hjartarson,, Maanús
Jónsson, Stejnunn Ólafsaóttir
og Margrét Olafsdóttir.
ARNIPÉTUR GUÐJÓNSSON. Leikur einn homm-
ann í ádeiluverkinu Englum í Ameríku.
LEIKLIST
Afturgöngur kveðnar niður
AFTURGONGUR
FRÚ EMILl'A
★
MARTIN
REGAL
Ef Brúðuheimili er um
konu sem gefst upp og fer ffá
eiginmanni sínum, þá er
Afturgöngur um konu sem
gefst upp og kemur aftur
heim til hans. Eins og Ibsen
sagði sjálfur: „Á eftir Nóru
varð Frú Alving nauðsynlega
að koma,“ enda sá hann
Brúðuheimili sem eins konar
inngang eða undirbúning
íyrir Afturgöngur. í báðum
verkum snýst harmleikurinn
um þjáningu eiginkonunnar.
Sýningin á Afturgöngum
hjá Frú Emilíu, í leikstjórn
Sigríðar Margrétar Guð-
mundsdóttur, virðist þó ekki
geta gert upp við sig hvað
harmleikurinn snýst um og
fellur í gömlu gildruna að
túlka öll leikrit Ibsens sem
klassísk (og þess vegna dauð)
verk sem skipta okkur engu
máli nema kannski á söguleg-
an hátt. Til hvers að velja leik-
rit eftir Ibsen ef svona er farið
með það? Er þetta kannski
dæmi um að leyfa textanum
að tala fyrir sig með engri
túlkun? Þeir sem halda að
slíkt sé hægt ættu frekar að
lesa Ibsen en reyna að setja
upp sýningu.
Þröstur Guðbjartsson leik-
ur prestinn af miklum krafti
og húmor en er ekki Séra
Manders fyrir fimmaura.
Hvað er þessi fáránlega figúra
(nánast trúður) að gera í leik-
ritinu? Hræsni og hugleysi
eru einkenni hans, ekki
gamansemi. Ari Matthíasson,
sem leikur Ósvald, er reiður
og sorgmæddur til skiptis, en
virkar oftast einum of hress
fyrir ungan mann sem bíður
dauðans. Ef ég þekkti ekki
hún þarf endilega að syngja
einhverja bamavísu yfir deyj-
andi syni sínum, af hverju þá
„Það var gömul kona sem
gleypti mý“? Hvernig væri
„Allir krakkar“ eða „Gamli
Nói“?
Leikmyndin og húsið sjálft
endurspegla tómleikann í
þessu verki. í upphafi leikrits-
ins sjáum við Regínu skera
hausinn af einhverjum blóm-
um, en þegar blómin eru far-
„En það er ekki nógað setja uppfrœg
verk í nafni menningarinnar. Það þarf
einnig að takast á við þá erfiðleika
sem þessi verk skapa á sviði, annars
ganga þau aldrei upp. “
leikritið mundi ég halda að
þessi Ósvald gæti náð mjög
háum aldri. Jóna Guðrún
Jónsdóttir, sem leikur Re-
gínu, byrjar ágætlega sem
stúlka sem gerir sér of miklar
vonir, en það vantar samt
smákynþokka í hlutverkið til
að Regína verði trúverðug.
Sigurður Skúlason leikur Jak-
ob Engstrand (föður Regínu)
mjög vel, enda er rödd hans
sú eina sem nær lengst út í
sal. Ég hef ekkert á móti því
að leikarar snúi í okkur baki,
en við verðum að geta heyrt í
þeim!
Margrét Ákadóttir leikur
Frú Alving af mikilli dýpt
framan af, en þessi mikilvæga
persóna virðist nánast gufa
upp í ofleik einmitt á þeirri
stundu sem hún á að hafa
sem mest áhrif á okkur. Ef
in er lítið annað að horfa á en
borð, sófi og nokkrir stólar.
En þessi táknræna leikmynd
er ekki nóg tíl að lýsa kuldan-
um og hræðslunni sem eru
ríkjandi í verkinu.
Frú Emilía virðist vilja ráð-
ast í stórverkefni með því að
sýna leikrit eftir Ibsen,
Tsjekov, o.fl. og hefúr ýmis-
legt gert mjög vel hingað til.
En það er ekki nóg að setja
upp ffæg verk í nafhi menn-
ingarinnar. Það þarf einnig að
takast á við þá erfiðleika sem
þessi verk skapa á sviði, ann-
ars ganga þau aldrei upp.
Draumur á
Lúkasarmessunótt
DRAUMUR A JONSMESSU-
NÓTT
NEMENDALEIKHÚSIÐ
★★★
Draumur á Jónsmessunótt
er mjög gott dæmi um „tvö-
faldan tíma“ (double time) í
verkum Shakespeares og þess
vegna ekkert verra að setja
það upp á vitlausum árstíma.
Okkur er sagt í upphafi leik-
ritsins að atburðarásin standi
yfir í fjóra daga en henni er í
rauninni lokið eftir rúmlega
tvo tíma. Guðjón Pedersen
notar ýmis brögð til að
„hraða“ tímanum í þessari
sýningu og í flestum tilfellum
tekst honum mjög vel upp.
Hann og Grétar Reynisson
leika sér einnig að rýminu
með því að breyta Lindarbæ í
langan mjóan sal, þannig að
allir áhorfendurnir sitja í betri
sætunum. En Guðjón virðist
ekki vilja láta þar við sitja. All-
ir leikendurnir skipta um
hlutverk tvisvar (sumir þrisv-
ar) og nokkrir karlar verða að
kvenmönnum í þessari upp-
setningu. Allt gerir þetta mál-
in bæði flókin og skemmtileg
og sannar það einu sinni enn
hversu marga möguleika leik-
rit Shakespeares bjóða upp á.
Það væri ósanngjarnt að
nefna ákveðna leikara í sýn-
ingunni. Sá sem leikur Spóla
(eða sú í þessu tilfelli) fær oft-
ast meira lof en hinir, enda
býður þetta hlutverk upp á
svo margt skemmtilegt og
fyndið. En allir leika vel og
hressilega og mikið byggist
upp á frábæru samspili
þeirra. Það eina sem mér
fannst ekki takast nógu vel
var samband Óberons og
Bokka. Það er snjöll hug-
mynd að breyta Bokka í per-
sónu sem er hálfur karlmað-
ur og hálfur kvenmaður, en
það hefði verið betra að láta
Bokka hreyfa sig aðeins hrað-
ar. Raddbeiting og hreyfingar
Bokka eru oft bæði of hægar
og tilgerðarlegar, en það sýn-
ist mér ekki vera þessum
ágæta leikara að kenna.
„Ein afbetri sýn-
ingum í Reykjavík
um þessar mundir.a
Talið sem stendur yfir á
meðan „harmleikurinn“ Pýr-
amus og Þispa er fluttur var
kannski fyndið á tíma Shake-
speares en er það ekki lengur.
Að mínu mati hefur leikstjór-
inn alveg rétt fyrir sér í að
sleppa stórum hluta af þessu
tali og bæta endinn á annan
hátt. En að sleppa lokaatrið-
inu líka, þar sem Bokki og
Óberon leggja blessun sína
yfir mannheima, finnst mér
vera mistök.
Sýningar hjá Nemendaleik-
húsinu eru oft mjög góðar
þar sem leikararnir vilja
sanna sig og leikstjórar þora
að taka áhættu. Draumur á
Jónsmessunótt er engin und-
antekning. Ein af betri sýn-
ingum í Reykjavík um þessar
mundir.
KLASSIK
FIMMTUDAGURINN
21 . OKTÓBER
FOSTUDAGURINN
22. OKTÓBER
• Englar í Ameríku. Leikfé-
lag Reykjavíkur frumsýnir hið
fræga verk Tonys Kushner í
leikstjórn Hlínar Agnarsdótt-
ur. Leikritið fjallar um alnæmi,
fordóma, ástir og svik. Leik-
endur eru Árni Pétur Guð-
jónsson, Elva Ósk Ólafsdótt-
ir, Ellert A. Ingimundarson,
Jakob Þór Einarsson, Jón
Hjartarson, Magnús Jónsson,
Margrét Ólafsdóttir og Stein-
unn Olafsdóttir. Borgarleik-
húsinu kl. 20.
• Kjaftagangur. Gamanleik-
ur Neils Simon. Leikstjóri er
Asko Sarkola en meðal
helstu leikenda eru Lilja Guð-
rún Þorvaldsdóttir, Örn Árna-
son, Tinna Gunnlaugsdóttir
og Pálmi Gestsson. Þjóðleik-
húsinu kl. 20.
• Astarbréf. Tvíleikur A.R.
Gurneys í leikstjórn Andrésar
Sigurvinssonar. Sögð er
áhrifamikil ástarsaga tveggja
einstaklinga, eins og hún birt-
ist í ævilöngum bréfaskiptum
þeirra. Leikendur eru Herdís
Þorvaldsdóttir og Gunnar
Eyjólfsson. Þjóöleikhúsinu,
litla sviöinu, kj. 20.30.
• Coppelía. íslenski dans-
flokkurinn sýnir þennan
klassíker í uppfærslu Evu
Evdakimovu. í aðalhlutverk-
um eru Lára Stefánsdóttir,
Eldar Valiev, Paola Vijlanova
og Mauro Tambone. Islenska
óperan.
• Afturgöngur. Leikhúsiö
frú Emilia. Héðinshúsinu kl.
20.
• Afturgöngur. Leikfélag
sýnir verk Henriks Ibsen i
leikstjórn Sveins Einarsson-
ar. Leikendur eru Sigurður
Karlsson, Sunna Borg, Krist-
ján Franklín Magnús, Þráinn
Karlsson og Rósa Guðný
Þórsdóttir. Akureyri kl. 20.30.
• Sinfóníuhljómsveit ís-
lands flytur þrjú verk; Sig-
urð Jórsalafara eftir Edvard
Grieg, Píanókonsert nr. 2 eft-
ir PjotrTsjakofskíj og Kale-
vala-svítu eftir Uuno Klami.
Hljómsveitarstjóri er Petri
Sakari, einleikari Pascal De-
voyon. Háskólabíói kl. 20.
LEIKHÚS
• Ferðalok. ★★★ Þrátt fyrir
nokkra galla finnst mér þessi
sýning mjög athyglisverð.
Leikritið er sterkt og tilfinn-
ingaríkt, snjallt í uppbyggingu
og fullt af skemmtilegum at-
riðum. Mæli með, hiklaust,
segir Martin Regal í leikdómi.
Þjóðleikhúsinu, smiðaverk-
stæði, kl. 20.30.
• Elín Helena. ★ Fyrir utan
nokkrar vel samdar og vel
leiknar senur fannst mér Elín
Helena alls ekki sérstakt leik-
rit. Án þess að lýsa atburða-
rásinni leyfi ég mér að segja
að sagan sjálf sé langt frá þvf
að vera merkileg og upp-
bygging hennar bæði fyrirsjá-
anleg og langdregin. Borgar-
leikhúsinu, litla sviðinu, kl.
20.
• Býr íslendingur hér?
★★★ Þegar ég fór heim var
mér heist í huga mikil eftirsjá
eftir Leifi Muller, sem mér
fannst ég hafa kynnst vel þar
á sviði. Þessi sýning er ekki
fyrir alla, en samt fyrir fleiri en
hafa lesið samnefnda met-
sölubók. íslenska leikhúsið.
Tjarnarbíói kl. 20.
• Draumur á Jónsmessu-
nótt. Nemendaleikhúsið sýnir
verk Williams Shakespeare í
leikstjórn Guðjóns Pedersen.
Leikendur eru Guðlaug Elfsa-
bet Ólafsdóttir, Hilmir Snær
Guðnason, Sigrún Ólafsdótt-
ir, Þórhallur Gunnarsson,
Katrín Þorkelsdóttir, Benedikt
Erlingsson, Halla Margrét Jó-
hannesdóttir og Margrét Vil-
hjálmsdóttir. Lindarbæ kl. 20.
• Afturgöngur. Leikhúsið
Frú Emilía sýnir verk Henriks
Ibsen í leikstjórn Sigríðar
Margrétar Guðmundsdóttur.
Leikendur eru MargrétÁka-
dóttir, Ari Matthíasson, Þröst-
ur Guðbjartsson, Sigurður
Skúlason og Jóna Guðrún
Jónsdóttir. Héðinshúsinu kl.
20.
LAUGAR DAG U RIN NI
23. OKTÓBER
• Ronja ræningjadóttir.
Barnaleikrjt Astrid Lindgren í
leikstjórn Ásdísar Skúladótt-
ur. Með aðalhlutverk fara
Sigrún Edda Björnsdóttir og
Gunnar Helgason. Borgar-
leikhúsinu kl. 14.
• Spanskflugan. ★ Ég vona
að sýningin batni verulega
sem fyrst svo einhverjir geti
haft gaman af þessu, en ég
efast samt um að Spansk-
flugan eigi eftir að lifa mjög
lengi. Borgarleikhúsinu kl. 20.
• Elín Helena. ★ Borgarleik-
húsinu, litla sviðinu, kl. 20.
• Þrettánda krossferðin.
★★ Perlurnar eru margar, en
bandið,á milli þeirra er alit of
langt. A þessari löngu sýn-
ingu missti ég þó sjaldan
áhuga og aldrei þolinmæð-
ina. Þjóðleikhúsinu kl. 20.
• Ástarbréf. Þjóðleikhúsinu,
litla sviðinu, kl. 20.30.
• Býr íslendingur hér?
★★★ íslenska leikhúsið.
Tjarnarbíói kl. 20.
• Fiskar á þurru landi.
Skondið og vel sniðið leikrit.
Annar leiksigur Árna Ibsen
og Andrésar Sigurvinssonar.
Missið ekki af þessu. Nú eru
síðustu forvöð. islensku
óperunni kl. 20.30.
• Draumur á Jónsmessu-
nótt. Nemendaleikhúsið.
Lindarbæ kl. 20.
• Afturgöngur. Leikfélag
Akureyrar. Akureyri kl. 20.30.
SUNNUDAGURINN
24. OKTÓBER
• Ronja ræningjadóttir.
Borgarleikhúsinu kl. 14.
• Englar í Ameríku. Borgar-
leikhúsinu kl. 20.
• Elín Helena. ★ Borgarleik-
húsinu, litla sviðinu, kl. 20.
• Ferðalok. ★★★ Þjóðleik-
húsinu, smíðaverkstæði, kl.
20.30.
• Dýrin í Hálsaskógi. Sýn-
ingar hafnar að nýju á barna-
leikriti Thorbjörns Egner.
Leikstjóri er Sigrún Valbergs-
dóttir en með aðalhlutverk
fara Sigurður Sigurjónsson
og Örn Árnason. Þjóðleikhús-
inu kl. 14 og 17.
• Coppelía. Islenski dans-
flokkurinn. íslensku óperunni.
• Draumur á Jónsmessu-
nótt. Nemendaleikhúsið.
Lindarbæ kl. 20.
• Standandi pína. ★★★ Er
það ekki einmitt það sem litlu
ieikhúsin hafa stundum fram-
yfir þau stóru, að geta leyft
sér að koma aðeins nær
áhorfendum og draga þá bet-
ur inn í atburðarásina og
andrúmsloftið? Spennandi og
athyglisverð sýning. Frjálsi
leikhópurinn. Tjarnarbíói kl.
20.
• Júlía og Mánafólkið. Leik-
hópurinn Augnablik sýnir
barna- og fjöiskylduleikrit eftir
Karl Aspelund og Friðrjk Er-
lingsson. Leikstjori er Asta
Arnardóttir en leikendur Bára
Lyngdal Magnúsdóttir, Björn
Ingi Hilmarsson, Erling Jó-
hannesson, Harpa Arnardótt-
ir og Kristín Guðmundsdóttir.
Héðinshúsinu.
• Ferðin til Panama. Leikfé-
lag Akureyrar sýnir barnaleik-
rit byggt á sögum eftir þýska
barnabókahöfundinn Jano-
sch. Leikstjóri er Ingunn
Jensdóttir. Leikendur eru Að-
alsteinn Bergdal, Sigurþór Al-
bert Heimisson, Dofri Her-
mannsson og Arna María
Gunnarsdóttir. Samkomuhús-
inu Akureyri kl. 14 og 16.