Pressan - 21.10.1993, Qupperneq 30
í Þ R ÓTTI R
30 PRESSAN
Fimmtudagurinn 21. október 1993
Barnungir snillingar hleypa heimdraganum
Stopliö Evrópu
fylgjast með
Unglingar erlendis:
Andri Sigþórsson f. 1977 KR/Bayern Múnchen
Guðni Rúnar Helgason f. 1976 Völsungur/Sunderland
Sigurvin Ólafsson f. 1976 ÍBV/Stuttgart
PállPálsson f. 1976 Fram/Twende
EiðurSmáriGuðjohnsen f. 1978 Valur/Ekeren
Halldór Hilmisson f. 1977 Valur/Ekeren
Björgvin Magnússon f. 1976 Werder Bremen
Undanfarið hafa fjöl-
margir af okkar efnileg-
, ,-jjstu unglingum dvalið er-
lendis hjá stórliðum Evr-
ópu við æfingar. Margir
þessara pilta verða þar
vetrarlangt en aðrir hafa
stoppað um skemmri
tíma.
Fyrstan má nefna Björg-
vin Magnússon hjá Wer-
der Bremen, en hann er
búsettur í Þýskalandi og
er samningsbundinn
þýsku meisturunum.
Björgvin var uppgötvaður
af íslenska unglingalands-
liðinu þegar fréttist af af-
rekum hans hjá Bremen.
Vonarpeningur KR-inga,
Andri Sigþórsson, er nú
hjá Bayern Munchen og
hefur staðið sig frábær-
lega, enda mikill marka-
skorari. Þriðji „Þjóðverj-
inn" er Sigurvin Ólafsson,
bróðursonur Ásgeirs Sig-
urvinssonar, sem að sjálf-
sögðu er hjá Stuttgart.
Það vakti mikla athygli
þegar fréttist að ungur
Húsvíkingur, Guðni Rúnar
Helgason, væri að fá
samning hjá Sunderland,
sem er eitt af ríkustu og
^•fornfrægustu liðum Eng-
lands. Hann hefur komist
á unglingasamning og
stendursig vel.
Belgar og Hollendingar
hafa þróaðasta njósna-
kerfi Evrópu þegar efni-
legir knattspyrnumenn
eru annars vegar. Við ís-
lendingar höfum orðið
varir við það. Þeir Eiður
Smári Guðjohnsen og
Halldór Hilmisson úr Val
hafa verið hjá Ekeren í
—
ElÐUR SMÁRIGUÐJOHNSEN: Kominn
heim frá Ekeren en þeir hafa áhuga.
Belgíu, en þar er fyrir
einn efnilegasti leikmað-
ur okkar fyrr og síðar;
Guðmundur Benedikts-
son. Þeir eru nú komnir
heim en Ekeren-menn
munu hafa sýnt Eiði
BJÖRGVIN MAGNÚSSON: Hjá Werder
Bremen er einn þriggja unglinga hjá
þýskum stórliðum.
Smára mikinn áhuga.
Hann er sonur Arnórs eins
og allir vita.
Allir hafa þessir strákar
verið í unglingalandslið-
um okkar nema Páll Páls-
son, en það kemur ekki í
PÁLL PÁLSSON: Hjá Twende í Hol-
landi.
veg fyrir dvöl hans hjá FC
Twende í Hollandi, þar
sem hann hefur verið við
æfingar.
GEORGHE MURESAN. Er kominn á samning við
Washington Bullets. Þessi 2,32 metra hái Rúmeni er
hæsti leikmaður sem komið hefur í NBA-deildina.
Hann vakti fyrst athygli á
heimsmeistaramóti unglinga í
Edmonton í Kanada árið
1991. Síðan hafa öll helstu
körfuknattleikslið heims fylgst
með Rúmenanum Georghe
Muresan af vaxandi áhuga. Já,
vaxandi er kannski rétta orð-
ið, því hann er ekki hættur að
stækka þótt hann sé kominn á
Stærsti leikmaður sem
nokkurn tímann hefur
tomið nólægt NBA
uppskurð í Bordeaux í Frakk-
landi. Uppskurðurinn heppn-
aðist ágætlega en það blasir þó
við að frekari meðferðar er
þörf. Muresan þarf að gangast
undir geislameðferð og í raun
er engin leið að segja til um
hvemig honum reiðir af.
Þrátt fyrir þetta voru for-
ráðamenn Washington Bull-
ets fullir áhuga á að fá þennan
risa. Að lokum gerðu þeir
samning við Muresan sem
færir honum 12 milljónir í
laun. Kannski ekki há upp-
hæð, en báðir aðilar líta svo á
að þetta sé aðeins byrjunin.
John Nash, framkvæmda-
stjóri Bullets, segir að Mures-
an verði í liðinu þegar NBA-
deildin byrjar í nóvember þótt
búast megi við að hann vermi
bekkinn fyrst um sinn. Nash
tók ffam að ekki væri við því
að búast að Muresan gerði
neinar rósir til að byrja með,
en ef hann fengi eðlilegan bata
og þjálfun mætti búast við að
hann gerði rósir í framtíðinni.
„Svona risar eru sjaldgæfir,“
sagði Nash.
22. árið og orðinn
2,32 metrar á hæð.
Þessi endalausi
vöxtur hefur
reyndar vakið
áhyggjur manna
og varð meðal
annars til þess að
forráðamenn
Barcelona kröfð-
ust þess að Mures-
an færi í heila-
skoðun áður en
þeir skrifuðu und-
ir samning við
hann.
Barcelona bauð
honum samning í
sumar upp á um
270 milljónir
króna til næstu
fimm ára. Mures-
an hefur leikið með franska
liðinu Pau Orthez undanfarið.
I heilaskoðuninni fannst
svo ástæða þess að Muresan
var enn að stækka. Æxli við
heiladingul stuðlaði að óeðli-
legri vaxtarhormónafram-
leiðslu, sem enn var virk.
Barcelona setti tilboð sitt í
biðstöðu og Muresan fór í
Hvernig er liðið sem Þórður fer í?
Uppeldismiðstöð frekar en storveldi
AUt bendir til þess að sóknar-
maðurinn snjalli Þórður Guð-
jónsson semji við fyrstudeildar-
liðið VFL Bochum í J>ýskalandi.
Lið Bochum er nú efst í deild-
r inni og stefhir upp.
Það hefur verið hlutskipti
liðsins að ferðast reglulega á
milli Bundesligunnar og fyrstu
deildarinnar án verulegra af-
ÞÓRÐUR GUÐJÓNSSON. Fer í væn-
lega uppeldismiðstöð.
reka. Margir leikmenn hafa
komist til þroska hjá liðinu eftir
að njósnarar þess uppgötvuðu
þá hjá minni liðum. Þar má
nefna Stefan Kuntz, Christian
Schreier og Uwe Leifeld. Boc-
hum er meðalstór borg, mitt á
milli Essen og Dortmund. Völl-
ur liðsins heitir Ruhrstadion og
tekur 55 þúsund áhorfendur.
STORY FROM BROOKLYN
INDVERSKA PRINSESSAN LEONCIE
í fyrsta sinn á íslandi; 16 laga
danstónlist á geisladisk, til sölu í
Hljómalind, Austurstræti 8, og
Kryddkofanum, Hvrefisgötu 26.
Söngkonan Indverska, Leoncie,
vill skemmta um land allt.
Sími: 91 - 42878
Gamli maðuninn aldrei betri
Unglingurinn ógnaði Páli sem hrökk í gang
„Þetta er bara að smella
saman hjá öllu liðinu. Ég hef
kannski spilað þessa leiki vel
og svo tekur einhver annar við
næstu leiki, það kemur maður
í manns stað og ef ég klára það
ekki þá klárar það bara ein-
hver annar. Það hefur kannski
verið hlutskipti mitt í tveimur
síðustu leikjum að gera hlut-
ina,“ segir Páll Olafsson,
handknattleiksmaður í Hauk-
um.
Haukarnir hafa leikið liða
best það sem af er vetri og
unnið alla sína leiki, gegn FH,
Stjörnunni, Val og KA. Páll
Ólafsson hefur ekki síst verið
maðurinn á bak við velgengn-
ARON KRISíJÁNSSON. Unglingalands-
liðsmaðurinn sem hræddi Pál í gang.
ina og hefur skorað 27 mörk,
þar af 9 úr vítaköstum. Eink-
um stóð hann sig vel í síðustu
tveimur leikjum, skoraði 9
mörk í hvorum leik. Ein skýr-
ingin á góðu gengi Páls er að
unglingalandsliðsmaðurinn
Aron Kristjánsson hefur spil-
að vel að undanförnu og var
Páll því farinn að óttast um
stöðu sína í liðinu, þar sem
þeir keppa um sömu stöðuna.
„Já, það er rétt. Fyrir tíma-
bilið, þegar verið var að ýja að
því að Aron væri að komast í
svaka form, þá sagði ég það
nú meira í gamni en alvöru að
ég ætlaði að láta hann hafa
fyrir því að komast í liðið,“
segir Páll og hefur að mestu
tekist það. Aron er einn af
okkar efnilegustu handknatt-
leiksmönnum. Hann er 21
árs, alinn upp í Haukum og
hefur leikið afar vel með ung-
lingalandsliðinu.
Páll segir að það sé enginn
galdur á bak við velgengnina
en þeir hafi æft vel og undir-
búningurinn verið með öðr-
um hætti, þeir hafi m.a. tekið
upp blóðsýrumælingar.
„Annars gengur liðinu vel og
þá gengur manni sjálfum oft
vel.“ Haukarnir misstu Kon-
ráð Olavsson, sem reyndar
spilaði aðeins í úrslitakeppn-
inni, og markmanninn Leif
1
Dagfinnsson. Hins vegar
fengu þeir markmanninn
Bjarna Frostason úr HK, sem
hefur spilað mjög vel, og línu-
manninn Erling Richardsson
írá Vestmannaeyjum, en línu-
spilið var
ákveðinn
h ö fu ð -
verkur á
síðasta
tímabili.
„Ég er
alltaf að
til hvernig haustið kemur út
næsta ár, hvernig maður kem-
ur undan sumri! Annars er
mótið bara rétt að byrja og
það verður að koma í ljós
hvað maður heldur þetta lengi
út. Ég er í fínu formi núna,
kannski í það þyngsta, en
maður seiglast þetta
áfram.“
PÁLL ÓLAFSSON. Haukar
hafa unnið FH, Stjörnuna,
Val og KA og gamli maður-
inn hefur spilað manna
best.
það í mörg
Ég spila
þ e t t a
tímabil
og svo
ætla
að
t i
Maður