Pressan - 21.10.1993, Page 32
-
/
MW
Fimmtudagurinn 21. október 1993 42. tbl. 4. árg.
260 krónur
í lausasölu
(Vikuritíd
PRESSAN fylgir
án endurgjaldsj
Ný fyrirspurn frá Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur
fá upplýs-
ingar um skó-
stærð Hrafns
Gunnlaugssonar
„Menntamálaráðherra
er ekkert of góður til
að svara þessu," sagði
Ingibjörg Sólrún.
Bílamál bankastjóranna taka nýja stefnu
Fá mini bfla
Þessi mynd var tekin þegar Jón
Sigurðsson kom út úr líkams-
ræktarsal Seðlabankans meö
nýja bílinn. í salnum hefur verið
komið fyrir bílabraut.
Starfsmaöur fjármála-
ráðuneytisins í lífshættu
Sofnaði í
gufubaðinu
Brandur Sigþórsson, lektor í
hagvísindadeild Háskólans, er
arkitekt hugmyndarinnar.
Háskóli íslands
færir út kvíarnar
Sótti um
einkaleyfi
á heppni
Reykjavík. 20. október.
Þessi mynd var tekin af Þórði við fjárlagagerðina.
Arnarhvoli, 20. október.
Þórður Sveinbjömsson, starfsmaður hagsýsludeildar fjár-
málaráðuneytisins, liggur nú þungt haldinn á Borgarspítalan-
um. Svo virðist sem Þórður hafi ofgert sér í gufubaði ráðu-
neytisins og að lokum sofnað þar með ffamangreindum af-
leiðingum.
„Ég tók eftir því fljótlega við fjárlagagerðina að Þórður var
mikið fjarverandi, enda með heldur leiðinlegan málaflokk, þar
sem er niðurskurður ríkisstofnana," sagði Steingrímur Ari Ara-
son, aðstoðarmaður fjármálaráðherra.
Félag skotveibimanna í sárum eftir
rjúpnabannið
Vílja fá að skjóta á
fljugandi furðuhluti
„Út um allt þjóðfélagið er fólk
sem er heppið án aðstoðar Háskól-
ans. Það segir sig sjálft að slíkt geng-
ur ekki til lengdar,“ sagði Svein-
bjöm Bjömsson háskólarektor, en
Háskólinn hefur sótt um einkaleyfi
á heppni á I slandi.
„Við vitum ekki enn hvemig þetta
verður í ffamkvæmd, enda aðalatrið-
ið að ná því á undan öðrum. Mér
finnst vel við hæfi að æðsta mennta-
stofnun ríkisins hafi einkaleyfi á
þessu,“ sagði Ragnar Ingimarsson,
forstjóri Háskólahappdrættis.
Samkvæmt heimildum GULU
PRESSUNNAR er ætlun háskóla-
manna að setja á stofn Heppnistofh-
un Islands, sem selur landsmönnum
gæfu og gengi.
„Ég get til dæmis fullvissað há-
skólastúdenta framtíðarinnar um að
þeir komast ekki í gegnum skólann
án okkar hjálpar," sagði Sveinbjöm.
Mötuneyti
Seðlabankans
Fékk
■
verðlaun
matreiðslu-
meistara
„Staöfesting á aö
við erum á réttri
leid, “ segir Jón
Sigurdsson sedla-
bankastjóri.
Eigandalaus Porsche í tollinum
Enginn bankastjóranna
kannast við að hafa
pantað hann
„Eg er viss um að umræðan að undanförnu hefur stuðlað að því
að bankastjórinn sem pantaði Porschinn vill ekki gefa sig fram,"
sagði Þórður Skúli Hafþórsson tollvörður.
Hrun á listaverkamarkaöinum
Hér má sjá fréttamennina Olaf Jóhannsson og Eggert Skúlason svipast um eftir fijúgandi
furðuhlutum. í baksýn má sjá nokkra nýaldarsinna veifa hvítum flöggum.
Seðlabankinn
ákvað að skila
málverkunum