Morgunblaðið - 09.06.2004, Side 49
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 2004 49
2004INNRITUN NÝNEMA
Nú stendur y r innritun nýnema við Verzlunarskóla Íslands fyrir veturinn 2004 - 2005 sem
er 100. starfsár skólans. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans og á heimasíðu hans
www.verslo.is
Opið hús verður miðvikudaginn 9. júní n.k. í
Verzlunarskóla Íslands milli klukkan 15 og 18. Þar verða
námsráðgjafar og kennarar skólans til viðtals og taka á
móti umsóknum.
Nemendur kynna félagslí ð í máli og myndum og gestir
geta skoðað húsakynni skólans.
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00, föstudaginn 11. júní.
eðlisfræðisvið
líffræðisvið
tölvusvið
alþjóðasvið
hagfræðisvið
viðskiptasvið
félagsfræðabraut
viðskiptabraut - hagfræðisvið
náttúrúrfræðibraut - líffræðisvið
náttúrufræðibraut
málabraut
viðskiptabraut
Stúdentspróf á þremur árum
Nemendur geta valið milli fjögurra mismunandi brauta.
Einnig gefst nemendum kostur á að taka stúdentspróf
á þremur árum á viðskiptabraut - hagfræðisviði og
náttúrufræðibraut - líffræðisviði.
SKÓLI
MEÐSÉRKENNI
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS
Á HAUSTMÁNUÐUM stendur til
að setja upp heljarinnar söng-
sýningu í Broadway undir yf-
irskriftinni Með næstum allt á
hreinu. Eins og nafnið gefur til
kynna er til staðar skyldleiki við
kvikmyndina Með allt á hreinu
sem Stuðmenn og Grýlurnar
gerðu ódauðlega fyrir rúmum
tveimur áratugum.
Valgeir Guðjónsson er listrænn
stjórnandi verksins og óhætt að
segja að hann sé á heimaslóðum
þar sem hann á drjúgan hlut í
laga- og textasmíðum sem bæði
verkin byggja á.
Sýningin mun fyrst og fremst
byggjast á tónlistinni úr Með allt á
hreinu en spunnið í nýjan sögu-
þráð. Önnur tónlist úr ranni Stuð-
manna fléttast inn í. Valgeir tekur
fram að ekki sé verið að end-
urtaka kvikmyndina enda er
vinnuheiti sýningarinnar Með
næstum allt á hreinu. Áherslan
verður á tónlistina ásamt leik og
ýmsu skopi.
Valgeir sagði aðstandendur sýn-
ingarinnar hafa komið auga á
áhugaverða leið til að skoða lögin
og textana í nýju ljósi sem byði
upp á ómæld skemmtilegheit.
Valgeir sagði val í hlutverk og
hljómsveit standa yfir en ekkert
væri enn birtingarhæft í þeim efn-
um, nema hvað landsþekkt lista-
fólk væri inni í myndinni.
Aðspurður hvort Stuðmenn
yrðu í einhverjum hlutverkum
sýningarinnar svarar Valgeir neit-
andi. „En andi okkar mun svífa yf-
ir vötnum,“ bætir hann þó við.
Vinna við sýninguna er á byrj-
unarstigi en þó „er búið að ýta
bátnum úr vör“, eins og Valgeir
kemst að orði.
Áformað er að frumsýna í fyrri
hluta októbermánaðar og segist
Valgeir gera ráð fyrir að sýn-
ingum verði haldið áfram næstu 5
til 6 árin.
Söngsýning byggð á Með allt á hreinu í burðarliðnum
Með næstum allt á hreinu
Morgunblaðið/Sverrir
Valgeir Guðjónsson er Með næstum allt á hreinu.
BRESKA leikkonan Alex
Kingston segir að til standi að
láta hana hætta í þáttunum um
Bráðvaktina (ER), því hún teljist
ekki nógu ung til að leika í þeim.
Kingston hefur undanfarin sjö ár
leikið lækninn Elizabeth Corday í
þáttaröðinni, en henni var nýlega
tilkynnt að
samningur
hennar yrði
ekki endurnýj-
aður.
Í viðtali við
tímaritið Rad-
io Times segir
Kingston, sem
er 41 árs, að
aukin áhersla
sé nú lögð á unga leikara í þátt-
unum: „Svo virðist sem framleið-
endum og höfundum þáttarins
finnist ég tilheyra hópi ellismella
sem ekki eru lengur spennandi,“
segir Kingston …
ETHAN Hawke er aftur byrjaður
með kanadísku fyrirsætunni Jen
Perzow, þeirri sem Hawke átti að
hafa haldið við þegar hann var enn
giftur Umu Thurman.
Hawke og Thurman skildu á síð-
asta ári eftir að Perzow lýsti yfir
opinberlega að hún ætti í ást-
arsambandi við Hawke …
FÓLK Ífréttum