Morgunblaðið - 09.06.2004, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
VALDIR kaflar úr fjórum Íslend-
ingasögum, þeim Njálu, Eglu, Grettlu
og Gunnlaugs sögu ormstungu, eru
komnir út í sérstakri viðhafnarútgáfu
á rússnesku og með skreytingum þar-
lendra listamanna. Eru tvö fyrstu
eintök útgáfunnar nú til sýnis í
Hermitage-safninu í Pétursborg.
Gefnar eru út tíu númeraðar bækur,
og er hver þeirra bundin í kápu úr
kálfskinni og selskinni, og þær skreytt-
ar með gulli og gimsteinum. Alls tóku
sjö listamenn þátt í gerð bókanna, við
skrautritun, myndskreytingar og bók-
band. Útgáfa bókanna var samvinnu-
verkefni Hermitage-safnsins og útgáfu-
félagsins Rare books of St. Petersburg,
en rússneski auðjöfurinn Roman
Abramovitsj kostar framleiðslu þeirra.
Morgunblaðið/Ásgeir Ingvarsson
Rússnesk viðhafnarútgáfa
Íslendingasögur
skreyttar gulli
og gimsteinum
Íslendingasögur/6
JÓN Ólafsson, fyrrverandi stjórnar-
formaður Norðurljósa, er með ákvæði
í samningum sínum eftir sölu fyrir-
tækisins til Jóns Ásgeirs Jóhannes-
sonar um að hann eigi forkaupsrétt að
Skífunni. Norðurljós hafa selt allan
sinn hlut í Skífunni til Róberts Melax,
fyrrum stofnanda og forstjóra Lyfju,
fyrir hönd óskráðs félags.
Gert hefur verið ráð fyrir að hinn
nýi eigandi taki yfir fyrirtækið í byrj-
un júlí að lokinni áreiðanleikakönnun.
Þegar lokasamningur liggur fyrir á
Jón Ólafsson hins vegar kost á því að
ganga inn í tilboðið samkvæmt for-
kaupsréttarákvæðunum. Jón Ólafsson
hefur ekkert viljað tjá sig um hvort
hann nýti sér forkaupsréttinn en sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
hafa ýmsir aðilar lýst áhuga á Skíf-
unni.
Jón Ólafsson
á forkaupsrétt
að Skífunni
Á HAUSTMÁNUÐUM verður frumsýnd
ný íslensk söngsýning á stóra sviði Broad-
way byggð á Stuðmanna-myndinni Með
allt á hreinu.
Valgeir Guðjónsson, sem lengi var einn
aðallagahöfundur og liðsmaður Stuð-
manna, verður listrænn stjórnandi sýn-
ingarinnar en hann samdi stóran hluta
hinna sívinsælu laga sem hljómuðu í
myndinni.
Valgeir segir í samtali við Morgunblað-
ið að ekki sé verið að endurtaka kvik-
myndina enda sé vinnuheiti sýningarinnar
Með næstum allt á hreinu. Sýningin muni
fyrst og fremst byggjast á tónlistinni úr
Með allt á hreinu en spunnið í nýjan sögu-
þráð. Þá muni önnur tónlist Stuðmanna
einnig koma við sögu í sýningunni.
Með næstum/49
Söngsýning
byggð á Með allt
á hreinu
ÞAÐ var leikið af kappi á Miklatúni í gærdag
þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið
um. Mátti sjá krakka í loftköstum við alls kon-
ar kúnstir. Veðrið á að leika við höfuðborgar-
búa og aðra landsmenn næstu daga og spáð
er hlýju veðri og sólskini um nær allt land.
Morgunblaðið/RAX
Viðrar vel til útileikja hjá börnum í Reykjavík
SÍMINN, Og Vodafone, Norðurljós
og Val+ hyggjast öll hefja dreifingu
stafræns sjónvarpsefnis næstu
misseri og mikil aukning í framboði
á stafrænu sjónvarpsefni er vænt-
anleg. Fjöldi þeirra sjónvarps-
stöðva sem íslenskum áhorfendum
stendur til boða mun því fjölga á
næstunni en fyrirtækin semja við
erlendar sjónvarpsstöðvar um að
endurvarpa dagskrá stöðvanna til
áhorfenda.
Fyrirtækið Val+ mun hefja út-
sendingar sínar nú í sumar og hjá
Norðurljósum er fyrirhugað að
fara í loftið í haust. Skarphéðinn
Berg Steinarsson, stjórnarformað-
ur Norðurljósa, segir að þessa
dagana sé verið að skoða hvort það
markmið standist. Landssíminn
stefnir á að dreifa stafrænu sjón-
varpsefni með ADSL-tækni í haust
og bjóða notendum upp á gagn-
virkt sjónvarp og kvikmyndaveitu
í framtíðinni. Hjá Og Vodafone eru
uppi áform um að hefja slíka dreif-
ingu en engin dagsetning er komin
um hvenær af því verður.
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra kynnti auk þess í vetur
áætlanir um uppbyggingu dreifi-
kerfis fyrir starfænt sjónvarp hér
á landi en áætlað er að því verki
ljúki árið 2008.
Með stafrænum sjónvarpsút-
sendingum aukast gæði útsend-
ingarinnar auk þess sem hægt er að
senda út á mun fleiri stöðvum en
hingað til hefur verið mögulegt.
Þorbjörn Broddason, prófessor í
fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands,
segir að þótt aðgengi landsmanna að
erlendum stöðvum muni aukast mik-
ið í framtíðinni búist hann ekki við
því að þörfin fyrir innlenda dagskrá
og innlendar fréttir minnki.
Undirbúa aukið framboð
af stafrænu sjónvarpsefni
Fleiri/10
CHERIE Blair, lögmaður og for-
sætisráðherrafrú í Bretlandi, er
væntanleg hingað til lands í lok
ágúst sem sér-
stakur gestur
málþings á veg-
um Rann-
sóknastofu í
kvennafræðum
og lagadeildar
Háskóla Íslands.
Yfirskrift mál-
þingsins er Kon-
ur, vald og lögin
og verður mál-
þingið haldið hinn 27. ágúst. Annar
erlendur gestur málþingsins er
finnski lagaprófessorinn Anu
Pylkainen en hún starfar við Há-
skólann í Helsinki. Auk þeirra
verður fjöldi innlendra fyrirlesara.
Að sögn Kristínar Ástgeirs-
dóttur, verkefnastjóra málþings-
ins, tók Cherie Blair strax vel í að
koma þegar henni var boðið til
landsins, en þetta er í fyrsta skipti
sem hún heimsækir Ísland. Það var
Þórdís Ingadóttir lögfræðingur sem
hlustaði á frú Blair halda erindi í
New York í vor og hafði samband
við hana í kjölfarið.
Frú Blair hefur ferðast um heim-
inn og haldið erindi um þýðingu
þess að fjölga konum í dómarastétt
auk þess að fjalla um lög og sátt-
mála sem snúa að réttindum
kvenna. Þá hefur hún lengi starfað
sem lögmaður, bæði í Bretlandi og
við Mannréttindadómstól Evrópu.
„Blair er mjög þekktur lögmaður
og hefur fengist við mannréttinda-
mál og hefur langa reynslu af því að
vera kona í lögmannastétt,“ segir
Kristín Ástgeirsdóttir. „Hún hefur
ákveðnar skoðanir á því að það
skipti máli að konur séu t.d. dóm-
arar. Hinn svokallaði kvennaréttur
hefur lítið verið ræddur hérlendis
en erlendis hafa verið gerðar miklar
rannsóknir á því sviði.“
Cherie Blair gestur
á íslensku málþingi
Cherie Blair
BÓNUSKERFI bílatrygginga hjá
Tryggingamiðstöðinni verður lagt
niður og iðgjaldaskráin gerð að-
gengilegri og gagnsærri, segja for-
ráðamenn Tryggingamiðstöðvarinn-
ar um nýtt kerfi bílatrygginga sem
fyrirtækið hefur tekið upp og kynnt
var í gær. Allir bíleigendur greiða
sama iðgjald sem tekur þó mið af bú-
setu og gerð ökutækis en lendi þeir í
tjóni eru þeir krafðir um 15 þúsund
króna iðgjaldsálag fyrir tjón sem er
50 þúsund krónur eða meira.
Gunnar Felixson, forstjóri TM, og
Guðmundur Örn Gunnarsson deild-
arstjóri kynntu nýja kerfið í gær og
segja það gjörbreytt. Þeir sögðu nú-
verandi bónuskerfi í raun ónýtt og
því hefði verið ákveðið að leggja það
niður. Nýja fyrirkomulagið gerði ráð
fyrir 15 þúsund króna iðgjaldsálagi á
þá sem yllu tjóni yfir 50 þúsund
krónum. Ef slík tjón yrðu fleiri en
þrjú á ári áskildi TM sér rétt til að
leggja á sérstakt iðgjald.
Þeir segja breytinguna í raun
þýða að gjaldskrá skyldutryggingar
sé færð niður um 75% og gjaldskrá
kaskótrygginga um 50 til 60%,
hvort tveggja sem næmi há-
marksbónus.
Þeir segja nýja kerfið réttlátara
þar sem allir ökumenn sitji við sama
borð og greiði aðeins iðgjaldsálag
lendi þeir í tjóni. Með því er bæði
fallið frá bónuskerfinu og aldurs-
flokkaskiptingu sem verið hefur,
þ.e. að ungir bíleigendur geti skráð
bíla sína á foreldra til að njóta hag-
stæðari iðgjalda.
Leggja niður
bónuskerfi í bíla-
tryggingum
15 þúsund/Bílar 2
♦♦♦