Íslendingaþættir Tímans - 03.01.1976, Síða 18

Íslendingaþættir Tímans - 03.01.1976, Síða 18
Hallgrímur Ólafsson bóndi, Holti Mjög er það misjafnt, hvern árangur við sjáum af lifi okkar, er við stigum inn fyrir fortjaldið mikla, sem aðskilur lif og dauða. barna mun ýmislegt koma til svo sem erfðir og uppeldi og vafasamt hvort má sin meira, en þó freistast ég til að halda, að sá neisti, sem glæddur er i æsku af góðum for- eldrum og heimili, verði, þegar allt kemur til alls, drýgsta veganestið og lif okkar sé þannig i rauninni að nokkru mótað strax i æsku. Ævidagarnir geta verið „mæða og hégómi”, eins og stendur á einum stað i Daviðssálmum, en þeir geta lika komið til okkar fullir af fyrirheitum, sem við svo breytum i „gæfunnar gull og gleðinnar brag” með störfum okk- ar, með þvi að vinna i sveita okkar andlitis og með þvi að sýna lifinu trúnað i þeirri von að það eigi sér til- gang jafnt þessa heims sem annars. beir, sem þannig lifa og breyta, verða i' rauninni hamingjunnar börn, hvernig svo sem ævikjör þeirra eru að öðru leyti, vegna þess að þeir hafa uppgötvað þann sannleika, að hamingjan er fólgin i okkur sjálfum. bessar og aðrar hugleiðingar koma mér I hug er ég með þessum linum vil minnastHallgrims Ólafssonar bónda i Holti, sem lézt i Sjúkrahúsinu á Egils- stöðum 9. ágúst s.l. eftir langvarandi vanheilsu. Hallgrimur var fæddur á Skeggja- stöðum i Fellum 25. júni 1898, elztur fjögurra systkina, sem upp komust, en hin eru: Jón bóndi á Hafrafelli (látinn 1971), Guöriður fyrrum húsfr. á Asi, nú búsett i Egilsstaðakauptúni og Laufey húsfr. á Droplaugarstöðum. Foreldrar Hallgrims voru hjónin Ólafur Jónsson frá Skeggjastöðum og Guðlaug Sigurðardóttir frá Kolsstaðagerði á Völlum, en þau bjuggu fyrst i stað á Skeggjastöðum i sambýli við tvo bræð- ur Ólafs, bórarin og Hallgrim og fjöl- skyldur þeirra. Skeggjastaðaheimilið eins og það var nefnt, var fjölmennt, andleg mennt hélzt þar i hendur við dagleg störf, og þar var t.d. sönglist iðkuð meira en titt var á heimilum. bað kom i hlut Hallgrims að taka við búi föður sins aðeins sautján ára að aldri, en ólafur missti snemma heils- una og var meira og minna frá verkum þaðan i frá, siðustu æviárin gat hann aðeinshreyft sigum ihjólastól. Ólafur andaðistárið 1933. Sjúkdómurinn mun hafa veriðsvok. Parkinsonsveiki, sem menn þá kunnu ekki að greina né gefa ráð til. Arið 1914 ræðst fjölskyldan i það að reisa nýbýli á holtinu framan við Skeggjastaði, en þennan hluta úr jörð- inni hafði Ólafur haft frá byrjun búskapár sins. Var húsið fullgert fjór- um árum siðar og nefnt Holt. bað hús stendur enn. Við húsbygginguna munu fljótt hafa komið i ljós þeir eiginleikar, sem entust Hallgrimi alla tið, að hann var i bezta lagi laghentur og ósérhlif- inn að sama skapi. brátt fyrir erfiðleika og annir tókst Hallgrimi að komast til náms i Eiða- skóla haustið 1919 og stundaði þar nám i tvo vetur undir handleiðslu hins merka kennara og fræðimanns sr. Asmundar Guðmundssonar. Oft minntist Hallgrimur á islenzkutimana hjásr. Ásmundi, en hann var orðlagð- ur kennari i þeirri grein. bað fór ekki leynt, að þessir tveir veturhöfðu orðið Hallgrimi notadrjúg- ir, og ég þykistvita, að hugur hans hafi stefnt til frekara náms, en af þvi gat ekki orðið. Arið 1934 gekk Hallgrimur að eiga eftirlifandi konu sina, Elisabetu Jónsdóttur ljósmóður frá Hreiðars- stöðum, og tóku þau þá strax við bús- forráöum i' Holti og bjuggu þar alla sina búskapartið. Elisabet er greind kona og hlý, dugnaðarforkur til allra starfa, og ég hygg, að engum sem þekkt hefur til heimilisins i Holti, geti dulizt að þessi ráðahagur hafi orðið þeim báðum til gæfu, svo samhent hafa þau verið i lifsbaráttunni. Vegna starfa sinna sem ljósmóðir varð Elisabet að dveljast mikið af heimili, en hún hafði góða heimilis- hjálp, þar sem var móðir hennar, Sveinbjörg,sem var i Holti um tuttugu ár og til dauðadags, en einnig var Guð- laug, móðir Hallgrims, langtimum saman i Holti, en hún dvaldist til skipt- is hjá börnum sinum, eftir að þau fóru að heiman og stofnuðu sin eigin heimili. Allmargir kaupstaðarunglingar dvöldu sumarlangt i Holti, sumir fleiri en eitt, og mér er kunnugt um það, að dvölin þar varð þeim hollur skóli. Hallgrimur var bóndi af lifi og sál, það vildi hann vera og gekk að þvi starfi með þeirri atorku, sem honum var i blóð borin. Hann ræktaði tún, og i búskapartið hans jókst túniö frá þvi að vera spilda utan við heimreiðina og i það að ná fram að Teitará, sem er landamerki milli jarðanna Holts og Teigabóls. Mikið af þessu landi voru þýfðar mýrar, en hefur nú verið breytt i sléttan töðuvöll. Útihús voru reist úr varanlegu efni, fyrst fjós, sem áfast var við ibúðar- húsið, en siðan f járhús og hlöður og nú siðast byggt stórt nýtt fjós. Bústofn aukinn að sama skapi. En þrátt fyrir annriki við bústörfin gaf Hallgrimur sér tima til annarra starfa. Hann smiöaði flest til heimilis bæði úr tré og járni, renndi og skar út, og önnur heimiii nutu einnig góðs af. Nokkrar spunavélar og vefstóla smið- aði hann heima, m.a. fyrir kvenfélög á Héraði. Arið 1927 var reist vatnsrafstöð fyrir öll býlin á Skeggjastöðum. Rafrörin 18 islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.