Heimilistíminn - 12.12.1974, Blaðsíða 11
Þetta getið þið sjálf reynt næst þegar
þið eruð i samkvæmi með vinum ykkar.
En munið, að sá eða sú, þeir eða þær, sem
eru ófeimin og ráðrik, er það fólk, sem
fyrst litur undan, þegar horft er beint i
augu þess. Sjálfur geturðu komizt að þvi,
að þvi óöruggari sem þú ert með sjálfan
þig i samkvæminu, þeim mun færri
manneskjur liturðu beint framan i. Sá,
sem þjálfað hefur sig i að lesa af augum,
getur strax séð, hvernig þér liður i veizlu,
með þvi að athuga augnaráð þitt. Það
dugar ekkert að tala rólega eins og manni
sé sama um allt, þvi augun koma upp um
þig
Þá hefur verið marspurt að þvi á hvaö
stúlka liti fyrst, þegar hún hittir karl-
mann. Hún skoðar ekki allt andlitiö i
fyrstu umferð, heldur einbeitir sér að um-
hverfi augnanna, auganbrúnum og horfir
talsvert á umhverfi munnsins lika. Það
litur út fyrir að augnabrúnirnar séu það
mikilvægasta. Ef stúlku list vel á augna-
brúnir pilts, eru miklir möguleikar á þvi
að henni litist vel á afganginn af honum
lika.
Hins vegar er þvi haldið fram, að karl-
maður liti fyrst á augu stúlku — þó að
ýmsa gruni að hann horfi á sitthvað fleira.
Góð aðferð við „gagnkvæmt augnasam-
band” að minnsta kosti i veizlum, er að
horfa I augu mannsins yfir glas. Glas i
hönd er þrautreynt og gefst vel til nánari
kynna. Þá er gott að snúa samtalinu
þannig, að karlmaðurinn fái tækifæri til
aö tala um sjálfan sig, en þar sem annars
staðar er hægt að gera skyssur, eins og
dæmið um stúlkuna sannar, sem sat milli
tveggja karlmanna og vissi hreint ekkert
um hvað hún átti að tala. Hún tók það ráð
að spyrja: — Hvor finnst ykkur leiðin-
legri, leigubilstjóri eða þjónn? Ekki vildi
betur en svo til, að annar mannanna var
leigubilstjóri en hinn þjónn.
Loks er hægt að spyrja sjálfan sig að
þvi, hvað sé hægt að gera til að koma i veg
fyrir að augun spegli sálina. Það getur
komið fyrir, að mann langi ekkert til að
allir sjái, hvað maður hugsar eða hvernig
manni liður. Við þvi er svo sem ekki
annað að gera en halda sig i hálfmyrkri
eða ganga með sólgleraugu. En það siðar-
nefnda er ekki I tizku um þessar mundir
og auk þess er litið á sólgleraugu sem
öruggt merki um timburmenn. I siðustu
lög er hægt að sitja heima og nota simann,
ef maður þarf endilega að tala við
einhvern.
n