Heimilistíminn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Heimilistíminn - 12.12.1974, Qupperneq 26

Heimilistíminn - 12.12.1974, Qupperneq 26
ina. Þar er prjónað á sama hátt og vinstra megin, frá handveginum að hálsmálinu. Þegar það er búiö er hálsmálið komið og aftur farið að prjóna slétt og snúið yfir allar 66-70-74 1. A réttunni eru nú 2 sn, - 2 sl, - 2 sl á hvorum enda prjónsins. Þegar handvegurinn er 8-9-10 cm er aukið út beggja vegna á öðrum hvorum prjóni, 1, 1,1,1,1, 2, 2, 3lykkjur (á öllum stærðum). Þá verða 90-94-98 lykkjur á. Eftir það er haldið beint áfram, en á miðstærðinni er þó aukin út ein lykkja á báðum endum prjónsins á 3. hverjum cm tvisvar, (=98 1.) Þegar stykkið mælist 24-27-29 cm., er aukið út fyrir viddinni á pilsinu þannig: 1. umf: 1 sn., auKÍÖ eina 1 i, 2 sn, + 2 sl., auka eina i, 2sl, 2sn, auka, 2 sn +. Endur- takið frá + til + og endið á 2 sl, auka, 2 sl, 2 sn, auka, 1 sn. 2. umf: Aukið eina út ifyrstu 1, 4 sl + 5 sn, 5 sl +. Endurtakið frá + til +, endið á 5 sn, 4 sl, auka i siðustu 1. Haldið þá áfram með 5 sl og 5 sn, alls 6-7-9 cm. Þá er aukið á réttunni ein lykkja i hvorum jaðri hverrar sléttrar randar, þannig að út- koman verði 7 sl, 5 sn. Þegar pilsið er 12- 12-18 cm, er aukin út ein 1 i hvorri hlið snúnu randarinnar, þannig að það verði 7 og 7 af hvoru. A stærstu stærðinni er auk þess aukin i ein 1 á sléttu röndunum eftir 9 cm til viðbótar. En athugið jafnframt, þegar pilsið er 12-21-27 cm er röndin prjónuð i hinum litnum, 10 umf. Fyrsti prjónninn, þegar skipt er um lit verður alltaf að prjónast frá réttunni. Eftir það erhaldið áfram með aðallitinn, þangað til pilsið er 18-27-33 cm og þá er fellt af. Framstykkið: Byrjið einnig við hálsmálið á þvi og prjónið eins og bakið, nema hvað snúið er við þrisvar til viðbótar. (30-32-32 1). Annars er st.ykkið að öllu leyti eins og bakið. Ermarnar: Einnig er byrjað á þeim að ofanverðu. Fitjið 221 upp pg prjónið 2 sl og 2 sn. Aukið 21 út i hvorri hlið og siðan eina á öðrum hvorum prjóni. 6-8-10 sinnum og siðan til skiptis eina og tvær 1, þangað til 56-60-64 1 eru á. Þá er aukið i á öllum stærðum, 2, 2, 3, 4 1 á hvorri hlið ( =78-82- 86). Þegar mælast 2-3-4 cm frá handveg- inum, er tekin 1 lykkja úr á hvorri hlið og endurtekið á öðrum hverjum cm, 9-11-12 sinnum. Þegar ermin er 16-21-26 cm frá handvegi eru prjónaðir 10 prjónar af hin- um litnum (munið frá réttunni). Þegar ermin er 23-27-32 cm, er fellt af með sl og sn. Húfan: Fitjiðupp 101-101-107 1 og prjónið 1 sl og 1 sn. alls 2 cm. A næsta prjóni eru prjónað- ar 3 sl og 3 sn. en aukin ein i til skiptist eftir 8. og 10. 1. ( = 111-111-117) þá eru prjónaöir þrir prjónar en á 4. prjóni er aukin ein 1 i á hægri hlið sléttu randanna ( = 130-130-137). Þá eru prjónaöar á rétt- unni 4 sl, 3sn. og sl. yfir sl. og sn yfir sn. á röngunni. Haldið er áfram að auka út á 4. hverjum prjóni til skiptis i hægri og vinstri hliðsléttu randanna, þar til prjón- að er 6 sl, 3 sn - 6 sl, 3 sn - 7 sl, 3 sn á rétt- unni. Munið eftir röndinni i hinum litnum, þegar húfan mælist 6-6-7 cm. Þegar hún er 8-9-10 cm er tekið úr á fjóröa hverjum prjóni. Fyrst ein lykkja I hægri hlið á hverri sléttri rönd (meö þvi að taka 1 lausa af og draga yfir þá næstu ) þá er tekið úr á vinstri hlið sléttu randanna (prjóna tvær saman).í4æstersvo tekið úr i snúnu röndunum, þangað til 2 og 2 lykjur eru i röndunum og loks ein og ein. Af þeim eru prjónaðir 3 prjónar, en þá er garnið slitið og dregið gegn um lykkjurn- ar. Samsetning: Leggið öll stykkin milli blautra stykkja látið þorna alveg. Athug- ið, að þetta má ekki pressa. Saumið sam- an hægri öxlina og hálskantinn og einn cm af vinstri öxlinni á kjólnum. Saumið hlið- ar sauma og ermar. í fremra stykkið á vinstri öxlinni eru gerðar lykkjur og litlir hnappar saumaðir i bakstykkið. Saumið húfuna saman og búið til dúsk i kollinn úr aukalitnum. LjöT) Anna G. Bjarnadóttir: DRAUGAR Ýmsir draugar eru á sveimi allstaðar í þessum heimi. AAannsins börn þeir margoft æra og mannkyninu bölvun færa. Þeirra heitir þekkir margur? Þótti, Hroki, Brennuvaraur, Ágirnd, Hatur, Ofund, Lygi. Eigingirni á hæsta stigi._ Yfirgang i ótal myndum, andleg spilling, grúi af syndum. Grimmdin, Hefndin, Glæpur, AAæða, Girndin Ijót og Reiðin skæða. Trúarleysi til hins sanna er tilveruna skapti manna. Vanþakklætið vex af móði og valdafíkn i rikjum sjóði. Allir þessir árar sveima, Ölánið þeir með sér teyma. Farið burt svo friði náum og fækki öllum jarðarplágum. Farið allir norður, niður og notist þar sem eldiviður. Það er ekki þunqur vandinn, þar mun ykkar bíða: Fjandinn. j 26

x

Heimilistíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.