Heimilistíminn - 12.12.1974, Qupperneq 28
15. desember
Þú hefur mikinn áhuga á hibýlum og ert
rólegur og lætur litið yfir þér. Oft ferðu
þinar eigin leiðir, einkum ef um er að
ræða hugmynd, sem þú telur að sé þýð-
ingarmikil og eigi að komast i fram-
kvæmd. Þú hefur margar sérstæðar
skoðanir og gleðst, ef þær verða til ein-
hvers.
Stjörnurnar hafa úthlutað þér góðum
hæfileikum til að skilja fólk, og það sem
það gerir. Það fólk, sem er svo heppið að
vera fætt þennan dag, getur átt von á að
lifshlaup þess verði all óvenjulegt. Þú hef-
ur fengið marga hæfileika i vöggugjöf, og
ef þeir verða þroskaðir, muntu ná frama
og eiga hamingjurikt lif. Einkum á þetta
við um skrifað orð og talað. Ef til vill
verðurðu kennari, heimspekingur,
prestur eða sagnfræðingur. Ef þú starfar
ekki við neitt af þessu, verður eitthvað af
þvi áreiðanlega áhugamál þitt i
tómstundum.
Þú ert ekki sérlega tilfinninganæmur,
en leggur yfirleitt þær tilfinningar sem þú
hefur i starf þitt. Þú nýtur þess að sjá
annað fólk hamingjusamt og vilt gera
mikið til að hjálpa þvi að verða þaö.
Hjónaband þitt verður ánægjulegt, eink-
um ef þú sigrast á tilhneigingu þinni til
gagnrýni. Þú hugsar mikið um sjálfan
þig, en það orsakast af þvi, að starf þitt
krefst þin alls. Þær stundir koma, að
nauðsyniegt er aö þú sért einn, ef þú átt að
ná þeim takmörkum, sem þú hefur sett
þér.
16. desember
Enginn vafi er á þvi að þú hefur hæfileika,
og ef hann verður þroskaður, verðurðu
vlðfrægur. Þú ert einstæður, bæði i orðum
og gerðum. Ef þú hittir fyrir gamalt
vandamál, finnurðu að likindum alveg
nýja lausn á þvi. Þú notar afar sjaldan
þær aðferðir, sem venjulega er beitt við
hlutina.
Þetta getur verið gott og blessað, ef þú
býrð i borg eða á stað, þar sem breytingar
eru velkonar og viðurkenndar. 1 gagn-
stæöu tilliti verðurðu gagnrýndur,
kannski ekki alltaf með réttu, en það
getur þó skaðað þig. Sem betur fer hef-
urðu mikið sjálfstraust, en þarfnast þó
viðurkenningar. Þú kærir þig ekki um að
taka alltof mikið tillit til þess sem fólk
segir, að þú fyrirlitur smjaður. Hins veg-
ar þrifstu ekki, ef enginn hrósar þér.
Þú vilt gjarnan hitta nýtt fólk og sjá
nýja staöi. Þar sem þú hefur unun af
ferðalögum, er liklegt að þú ferðist mikið
á unga aldri. Þér hættir lika við að telja
grasið handan götunnar grænna, en það
sem þú gengur á. Þú tilheyrir þeirri
manntegund, sem breytir persónuleika
sinum og skoðunum við reynslu, og þess
vegna kemur sér vel fyrir þig að kynnast
sem flestu nýju.
17. desember
Sjálfstraust þitt er mikið, og þú trúir þvi
statt og stöðugt, að þú getir allt. Þig lang-
ar lika til að reyna allt. Möguleikarnir eru
lika góðir á þvi að þér takist flest I fyrsta
sinn, sem þú reynir. Ef hamingjan er ekki
með þér, reynirðu bara aftur á annan
hátt. Þú telur, að ef ekki heppnast, sé ein-
hverju öðru en þér um að kenna, ein-
hverju, sem þú ráöir ekki við.
Þú vilt gjarnan helga þig hlutum, sem
eru stórir og viðtækir, og þú lætur smá-
muni ekki skipta máli. Þvl stærra sem
viðfangsefnið er, þeim mun ánægðari ertu
með það. Þótt þú sért rólyndur og hlé-
drægur á ytra borðinu, hefurðu járnvilja
og nærð yfirleitt takmörkum þinum með
honum.
Þar sem þú ert hrein orkulind, er erfitt
að stöðva þig, áður en þú færð það sem þú
vilt. Þú ert ekki mikið fyrir að afsaka fólk,
sem gert hefur skyssur. Þar sem þú ert
stundvis og nákvæmur, ætlastu til að aðr-
ir séu það lika.
Þótt þú sért ástúðlegur að eðlisfari,
kemstu að þvi, að áhugi þinn á ástinni er
ekki mikill. Konur, sem fæddar eru þenn-
an dag, geta verið daðurkvendi. Frestaðu
ekki makavali of lengi, þvi þú uppgötvar
skyndilega, að þú ert orðinn gamall.
28