Heimilistíminn - 12.12.1974, Síða 33

Heimilistíminn - 12.12.1974, Síða 33
Gunhild Hesting: hann. Hann er þó frændi þinn. — Ég mundi gera það, ef hann hætti að snúa bakinu í mig. — Mér finnst að þú ættir samt að gera það, ráðlagði Bastian. — Það þýðir ekkert, hann talar ekki við mig. — Er það af þvi þú snýrð baki í hann? spurði Bastian. — óóó, stundi drekinn.—Já, það er af þvi ég sný baki i hann. — Þarna sér maður, sagði Bastian. — Þá held ég að ég geti ekki gert neitt fyrir ykkur. — Jú, hvislaði drekinn. — Þú mátt hætta að troða á vinstri kinninni á mér. — ó, fyrirgefðu, sagði Bastian. Hann hafði ekki gert sér grein fyrir, að hann stóð á vinstri kinn drekans. — Get ég annars gert nokkuð fyrir þig? — Áttu verkjatöflu? stundi 'drekinn. — Nei, því miður, svaraði Bastian. — Suss, hvíslaði drekinn. — Til hvers varstu þá eiginlega að koma hingað? —Jæ, en ég er að fara, svaraði Bastian. Og það var rétt hjá honum, þvi meðan hann sagði þetta, gekk hann nokkur skref afturá bak, án þess að gá að sér og áður en hann vissi af sér, steig hann út i loftið, svo hann sagði bara — Bless við drekann, en þá var hann dottinn niður á veröndina kring um Temusteri kinverska keisarans, rétt framan við trýnið á risastórum hvitum angóraketti, sem lá þar og deplaði aug- unum. — Bless? sagði hviti kötturinn spyrjandi. — Af hverju byrjar gesturinn á þvi að segja bless? — ó, afsakið, sagði Bastian, sem aldrei á ævinni hafði beðizt afsökunar svona oft á ein- um degi. — Afsakið, ég var að kveðja drekann, en ég datt svo hratt að ég hafði ekki tima til að segja góðan daginn á réttu augnabliki. Ég geri það hér með: — Góðan daginn. — Þá sagði hviti angórakötturinn. — Þessi gestur kemur fyrr til að kveðja og heilsa og þess vegna kemur hann bara seinna. Satt að segja er timinn afstæður. Bless! Góðan daginn! Velkominn! Ég er Chih-hu. — Það er erfitt nafn, sagði Bastian. —Já, það er það, sagði hviti kötturinn — en þú mátt gjarnan kalla mig Chiryoku no Tora. — Kærar þakkir, sagði Bastian. — Hvort tveggja þýðir það sama, þegar það er þýtt á hitt málið, hélt hviti angórakötturinn áfram — svo maður getur valið. Bara að ég sé ekki kallaður gamli rykfalini Tigur, þvi það sýnir virðingarskort og virðingarskortur er leiðindaeiginleiki, sem ekki aðeins skaðar fjöi- skyldulifið og virðinguna fyrir ellinni, heldur skapar almennt bil milii fólks. — Já, það er rétt, sagði Bastian og þóttist nú viss um að þessi köttur væri Visdómstígurinn. Bastian sagði nú Visdómstiginum hver hann væri og að hann hefði komið til bæjarins til að finna pabba sinn og fara sjálfur á sýningu Chih-hu svaraði: — Að leita að týndum föður sinum er virðingarvert, á skilið viðurkenningu, en að streitast við að komast á sýningu er hé- gómalegt, heimskulegt og tilgangslaust og sýnir skort á skynsemi. Hugsaðu um það! — Já, svaraði Bastian — það skal ég gera. Og svo settist hann niður tii að hugsa, meðan Visdómstigurinn Chih-hu reis upp og gekk inn i dimmt musterið. Hann ætlaði að fá sér te. Bastian sat kyrr. En hann var ekki vanur þvi að hugsa um sama hlutinn lengi i einu, svo hon- um hætti atitaf til að fara að hugsa um eitthvað annað en það, sem Visdómstigurinn hafði sagt. — Að streitast við að komast á sýningu er hé- gómlegt og heimskulegt, sagði hann við sjálfan sig og geispaði og deplaði augunum. Hann hafði iitið sofið nóttina áður. — Hegómlegt og heimskulegt, tautaði hann meðan ilmur allra 33

x

Heimilistíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.