Heimilistíminn - 12.06.1975, Side 20
Einkastjörnuspáin
11. júni
Þú ert snöggur upp á lagið og litur alltaf
björtum augum á lifið og tilveruna. Þar
með er þér auðveldur aðgangur að þvi
umhverfi, sem kann að uppgötva hæfí-
leika þina og meta þá. Sennilega geturðu
orðið ágætis leikari, en þú hefur lika rit-
höfundarhæfileika. Velgengni þin i lifinu
er mjög undir þvi komin, hvernig þú nýtir
hæfileikana, sem stjörnurnar hafa úthlut-
að þér. Þú hefur ekkert á móti þvi að
erfiða, og þú talar mikið, stunduð of mik-
iðtil að koma málum þinum i höfn. Þar
sem þú ert fæddur leikari, getur verið að
þú uppgötvir, að allir hæfileikar þinir
henta vel á leiksviðinu. Þar sem þú hefur
gaman af að ferðast, er liklegt að þú skoð-
ir mikinn hluta heimsins um ævina. Ef þú
velur þér starf, sem veitir þér möguleika
á ferðalögum, muntu una lifinu vel. Þú
getur meira að segja unnið þér inn pen-
inga meðan þú ferðast.
Þar sem þú ert alltaf að græða, verð-
urðu að likindum vel stæður. Þú tekur iðu-
lega áhættu i fjármálum, en þegar svo er,
eru það milljónir, en ekki smápeningar,
sem um er að ræða.
Þú ert rómantísk sál og elskulegur i við-
móti og átt i sífelldum ástarævintýrum,
en vandaðu makaval þitt og gættu þess að
makinn vilji hjálpa þér og styðja þig á all-
an hátt.
12. júni
Þegar þú tekur þér eitthvað fyrir hend-
ur, þarftu að hugsa þig vandlega um
fyrst, en þegar ákvörðunin er tekin, ertu
hinn þráasti. Þú stefnir að þvi að fá vilja
þfnum alltaf framgengt, hvaða aðferðir
sem þú notar. Það er vani þinn að reikna
alla hluti vandlega út fyrirfram og gefa
þér góðan tima, en framkvæma siðan
nákvæmlega eftir áætlunum. Þetta hefur
að sjálfsögðu i' för með sér, að þér gengur
meira en i meðallagi vel að gegna stöðum,
sem krefjast ákveðni og nákvæmni.
Auk þessa ertu einkar aðlaðandi og fólk
dregst ósjálfrátt að þér og vill veita þér
allan sinn stuðning. Þótt þú laðir þannig
að þér fólk, verðurðu aldrei mjög nájnn
vinur þess, nema eftir langa viðkynningu.
Þú átt alltaf að framkvæma sam-
kvæmt hugboði þinu, sem er óvenju
skarpt. Aldrei skaltu ákveða neitt, sem
gengur i berhögg við skoðanir þinar, þvi
þálendirðu ialvarlegum vandræðum. Að-
einsþegar þú fylgir innri röddu, finnurðu
leiöina að velgengni.
Góður smekkur þinn kemur i ljós á öll-
um sviðum. Heimili þitt verður fallegt og
fatnaður þinn af beztu gerð. Þú ert hrifinn
af góðri tóniist, bókmenntum og myndlist.
Ef þú safnar nægilega miklum peningum,
eru likur á að þú takir að þér unga lista-
menn og styrkir þá með þvi að kaupa verk
þeirra og koma á framfæri. Þannig get-
urðu gegnt miklu hlutverki i samtiðinni.
13. júni
Þar sem þú ert alhliða og slyngur, get-
urðu lagað þig að ólikustu aðstæðum og
starfað með alls kyns fólki. Liklegt er að
þér gangi vel snemma i lifinu. Stjörnurn-
ar hafa úthlutað þér mörgum hæfileikum,
og þú skalt reyna strax á unga aldri að
komast að þvi, hverjir þeirra munu hald-
beztir. Þú hefur góða rödd og talar og
syngur vel. Þú hefur leikhæfileika og upp-
götvar ef til vill, að leikhúsið er einmitt
þinn rétti vettvangur, bæði fyrir skapið og
hæfileikana.
Persónuleiki þinn er eins og segull, sem
dregur að sér fólk, og hugboð þitt er
sterkt. Þú getur oft sagt fyrir óorðna
hluti, og framkvæmir gjarna f samræmi
við það. Þetta er afar heppilegt fyrir þig,
þar sem það gefur þér möguleika á að
sigra keppinauta þína.
Þótt þú virðist stundum feiminn og sért
oft óstyrkur, mun sjálfstraust þitt aukast
með aldrinum.
A unga aldri ertu darumóragjarn, og
byggir skýjaborgir en þegar þú fullorðn-
ast, skaltu temja þér að breyta þeim i
raunveruleika. Það er ágætt að hafa
kenningar, en þær hafa ekki þýðingu fyrr
en framkvæmdir koma lika. Þar sem þú
ert heimakærog þykir vænt um fjölskyldu
þfna, mun hjónaband snemma á ævinni
fylla þig metnaði, en þú ert hamingju-
samur með maka og börnum, sem þú
getur deilt öllu með.
20