Heimilistíminn - 02.10.1975, Page 12
\ *
tm mz
Jhkí'si
VIÐ GRÆÐUM enga peninga á hljóm-
leikum okkar, segja þeir f Mud. — Það
eruaðeinsplöturnarsem gefa eitthvað
i aöra hönd. Þegar við erum á hljóm-
leikaferðalögum, eru við með allt að 32
menn i vinnu og það kostar skildinginn
að greiða þeim ölllim laun. Oft töpum
viö, jafiivel þótt uppselt sé á hljóm-
leikana.
Muder þekkt sem hljómsveitin, sem
kom fram i kjölfar Sweet og hefur
enda sömu menn til að semja lög fyrir
sig. En þeir likjast ekki Sweet. Þeir i
Mud hafa gjörólikan tónlistarsmekk.
Gitarleikarinn Rod Davis hallast frek-
ast að mjög þungri tónlist. Hann er
hæglátur persónuleiki, sem notar
flestar fristundir sinar til að iðka Yoga
og tók meðal annars þátt i yoga-
kennslu i brezka sjónvarpinu eigi alls
fyrir löngu.
Dave Mount, trommuleikari og grfn-
isti hljómsveitarinnar, kanp vel að
meta fbuðarniikla tónlist og einnig
Ray Stiles, sem leikur á bassann. Les
Gray, söngvarinn sér hins vegar lítið
ahnað en Elvis Presley og reynir af
öllum kröftum að tileinka sér stil hans.
Þremur þeirra finnst siðasta litla plat-
an „Secrets” sú bezta, sem þeir hafa
gert, en Rod Davis segist ekki .vera
feiminn við að lýsa þvi yfir, að hún sé
skelfileg. Nú er einnig komin ný LP-
plata frá Mud með góðum gömlu
lögum og bráðlega má sjá þá félaga i
kvikmynd með nafninu ,,You are
Ne\|er Too Young To Rock’n’Roll”.
12