Heimilistíminn - 02.10.1975, Page 18

Heimilistíminn - 02.10.1975, Page 18
M Tatarabuff með tómatsalati 3/4 kg nautahakk 1 stór laukur 1 glas kapers graslaukur 1/2 kg tómatar 1 lítill laukur stcinselja Saxið stóra laukinn smátt og jafnið saman við hakkið, ásamt 1—2 msk kapers, 1 tsk salti, 1/2 tsk sellerisalti, 1 krömdum hvft- lauksgeira, 1/4 tesk tabascosósu og 1—2 eggjum. Mótið úr þessu fjögur stór buff og steikið i smjörliki gokkrar minútur á hvorri hlið. Klippið graslauk og setjið 2 tsk sterkt sinnep út I smjörið. Bætið svo- litlu vatni I og hellið smjörinu yfir buffin. Skerið niður tómatana og litla laukinn og jafnið saman. Kryddið og berið með buff- inu. i Steiktar fiskbollur með púrrum og sveppum 1 dós fiskbollur 2—3 púrrur 1 rauður piparávöxtur 250 gr svcppir rjómi Skerið púrrurnar i stykki á ská og sjóðið þar til þær eru meyrar. Brúnið sveppina svolitið i smjöri, stráið 1 msk hveiti yfir og vætið með rjóma og svolitlu soði af súputeningi. Látið malla við hægan hita I 5 minútur. Kryddið með salti og pipar. Steikið fiskbollurnar létt i smjöri, leggið þær ofan á púrrurnar, hellið sósunni yfir og skreytið með piparhringjum.

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.