Heimilistíminn - 10.06.1976, Side 6
steinvegg. Þegar hann gekk i áttina til
hennar, sá hann aö veggurinn var gerður
af mannahöndum. Nokkrum minútum
siðar fann hann glufu i veggnum og þegar
han var kominn gegnum hana, var hann
staddur á stóru, opnu svæði, þöktu öltur-
um og styttum. Þegar hann horfði i kring-
um sig, varð honum ljóst að hann var
kominn til hinnar týndu skógarborgar.
Frá sér numinn af ánægju yfir heppni
sinni, lét hann fallast niður á stein og
horföi i krinum sig, meðan hann tróð i
pipu sina hægtog rólega. Hann kom auga
á litinn málmhlut við fætur sér, tók hann
upp og komst að þeirri niðurstöðu að hann
gæti verið úr gulli.
Þar sem of dimmt var til að fara i könn-
unarferð um rústirnar, settisthann niður
og ákvað að láta svo fyrirberast um nótt-
ina. Hann dottaði, en hrökk skyndilega
upp við torkennilegan gjallandi hlátur.
Hann stóð upp með byssuna i hönd og
reyndi að sannfæra sjálfan sig um að
þetta hefði verið hýenuvæl. Hann gekk
nokkur skref, en þá heyrði hann hláturinn
aftur, i þetta sinn að baki sér.
í sömu andrá og hann snerist á hæli, var
hann sleginn bylmingshögg i höfuðið, en
þó ekki fyrr en honum hafði tekizt að
skjóta einu skoti að verunni andspænis
sér. Það siðasta sem hann heyrði, áður en
hann missti meðvitund, var hátt sárs-
aukavein.
Þegar Ryskes-Chandler kom til sjálfs
sin á ný, var bjartaf degi. Honum leið illa,
hann stóð með erfiðismunum á fætur og
fann að hann var of máttfarinn til að gera
nokkuð, ensá aðhann var kominn aftur til
þorpsins, þar sem hann hafði hitt töfra-
lækninn góða. Hann gekk til tjalds sins,
þar sem hann féll I yfirliðog lá þar siðan
mjög veikur dögum saman. Innfæddir
skiptu sér ekkert af honum og hann hefði
dáið þarna ef burðarmenn hans hefðu
ekki komið aftur, skömmustulegir og
hræddir og útskýrt, að töfralæknirinn
hefði hótaö þeim öllu illu ef þeir færu inn i
skóginn I leit að borginni.
Siðan sögðu þeir honum, að töfralæknir-
inn heföi horfið inn I skóginn og ekki kom-
iðaftur. Greinilegt virtist þá, aö það hafði
verið töfralæknirinn sjálfur, sem ráðizt
hafði að Ryskes-Chandler og siðan reikað
áfram inn I skóginn til að deyja, af skot-
sárinu.
Innfæddir komu Ryskes-Chandler að
lokum aftur til menningarinnar, en lélegt
heilsufar hans upp frá þessu varð til þess
að hann gat ekki hugsaö meira um borg-
ina týndu. Margir efuðust um að saga
þessi væri sönn, jafnvel þótt hann gæti
sýnt gullhlutinnlitla, sem hann hafði tekiö
með sér. En það er engin ástæða til að
ætla, að hún sé ósönn. Vitaö er að hinar
frægu Zimbabwe-rústir I Suður-Ródesiu
eru leifar námaborgar og þess vegna er
liklegt að fleirislikar hafi verið á þessum
slóðum.
HVAÐ VEIZTU
1. Hver var William Turner?
2. Hvaöa borg er fjölmennust i
heimi?
3. Hverjum var Nadjesida Krupskaja
gift?
4. Hvað kölluðu fornnorrænir menn
Bláland?
5. A hvaða hijóðfæri lék Glenn
Miller?
6. Hvað hét fyrsta talmynd Chaplins?
7. Hver skrifaði Jantalögin?
8. Hvað heitir aðalsöguhetja Simen-
ons?
!). Hvaða stórmenni fæddist i Strat-
ford-on-Avon?
10. Hvaða orð er notaö um þyngd
um búða?
Hugsaöu þig vandlega um, en iausnina
er að finna á bls. 39.
— Afsakaöu en get égnokkuö hjálpað þér?
— Húsbóndi þinn sagði, að ég skyldi
semja uin tima við þig. Ertu að gera eitt-
hvað sérstakt i kvöld?
6