Heimilistíminn - 10.06.1976, Blaðsíða 33

Heimilistíminn - 10.06.1976, Blaðsíða 33
Claude Cénac %*. % Ferfætlingur «. w. d flækingi Z '*' (J) Diógenesi, sagði Freddy. — Hann ætlar lika með. Ég fékk allt i einu undarlega tilfinningu i magann. Að visu var það heitasta ósk min að fara á sjó. En.... ef Móses hafði nú rétt fyrir sér, að það væri i rauninni skelfilegt að verða sjóveikur og ég yrði það svo? Efinn steyptist yfir mig. Svo fann ég, já ég fann, að ég var að verða óskaplega veikur. Við hundar, við finn- um oft hlutina fyrirfram. En þar sem ég var búinn að þvaðra svo mikið um þetta ailt við vin minn Móses, að ég gat varla skorazt undan. Nei, ég skyldi bara ákveða að verða ekki sjóveikur og þá yrði ég það ekki. Svo hljóp ég af stað á eftir börnunum, sem voru þegar farin að stiga ölduna. Ég hermdi eftir þeim eins og ég gat og vissi, að þetta göngulag gat jafnað upp hreyfingar bátsins. Við mættum Móses, sem spurði, vert við værum að fara. — Til sjós, sagði ég montinn. Hann setti upp áhyggjusvip. — Og ef þú verður sjóveikur? Það er mikið af litlum öldum á sjónum i dag. — Það er ekkert, sem máii skiptir, sagði ég enn roggnari. — Hvernig veiztu það? spurði vinur minn lágt. En góðsemi hans kom i veg fyrir að hann ræddi málið frekar og hann lét sér nægja að óska mér góðrar ferðar. Það var meðaumkunarsvipur á Móses, þar sem hann stóð og horfði á eftir okkur og það fór i taugarnar á mér. En siðan hef ég skilið augnaráðið. Hvers vegna skipaði hann mér ekki að halda mig frá höfninni? Palette beið okkar og allir sjóndeildarhringir heims virtust speglast i augum hans. Hann rétti Mariu höndina, en Freddy stökk knálega um borð. Ég hermdi eftir, þótt ég hefði aldrei tekið fæturnar af öruggum hafnarbakkanum áður. Sardinan virtist ekki eins örugg. Almáttugur, hvað hún dansaði! Það var rétt eins og Palette færi viljandi yfir allar stærstu öldurnar. Með höndina á stýrinu starði hann út i fjarskann, án þess að depla augunum móti sólinni. Stundum fórum við framhjá bátum með ferðamönnum og mér fannst sumir þeirra með þjáningasvip. Við fórum yfir höfðann án vand- ræða og börnin skröfuðu glaðlega við Palette. Hann var ánægður. Ég var lika ánægður, þótt... Palette lofaði okkur að dást að útsýninu inn til strandarinnar, þar sem litlar víkur gengu inn i klettana og húsin ljómuðu i sólskininu. — Þetta er fallegasti staður i heiminum, sagði hann blátt áfram. Ég efaðist ekki um það. Og þó.... Ég var kominn með það á tilfinninguna, að þetta landslag, sem auðvitað var dásamlegt, tæki einhverjum einkennilegum breytingum, sem aðeins ég varð var við,. Mér leið illa af að horfa á öldurnar ráðast á klettana og dansa á sjónum. Ég gapti og lét tunguna lafa. Augun i mér urðu blýþung, rétt eins og i hvorri auga- brún héngi akkeri. Nú fór meira að segja himinninn að dansa. Hann sogaði hafið til sin, þótt það verðist með þvi að skjóta upp kryppu. Öll þessi leikfimi kastaði Sardinunni niður i öldudal, sem hún siðar þeyttist upp úr, aðeins til að lenda niðri i öðrum dal. Eins og úr fjarska heyrði ég rödd Mariu og hlátur: — Legstu þversum, Palette. Við skulum fá svolitinn sjógang! Gamli sjóræninginn lét ekki segja sér það 33

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.