Heimilistíminn - 10.06.1976, Blaðsíða 19
Karrý-sinnepsegg
Karry-sinnepsegg
(nægir handa tveimur)
Sósa úr:
1 1/2 msk smjör,
1 msk hveiti,
1/4 tsk. karrý
3-4 dl rjómi,
gult sinnep,
vinedik og salt.
3 millisoðin egg,
8-10 flesksneiðar
nokkrar litlar gulrætur (úr dós)
Skeriö eggin i tvennt og leggið þau^ ásámt
harðsteiktu fleskinu og gulrótunum ofan
á heita sósuna. Klippið grasfauk yfir.
Egg sérvitra
Egg sérvitra-Péturs
4 flesksneiöar,
1 laukur
1-2 tómatar,
smjör,
söxuð steinselja,
ristað brauð,
1 stórt egg.
Péturs
Brauðið er ristað og þvi haldið heitu.
Brúnið fleskið og i feitinni af þvi ásamt
smjöri er laukur og tómatar brúnað.
Loks er eggiö brotið á pönnuna og steikt,
þar til hvitan er stifnuð. Borið fram i
djúpum diski og steinselja klippt yfir.
Vor-eggjakaka
Vor-eggjakaka
2 egg, 4 msk rjómi,
salt, pipar,
8 flesksneiðar,
2-3 lauksneiðar,
1-2 tómatar,
rauður pipar
graslaukur,
1-2 msk smjör.
Egg, rjómi og krydd er þeytt saman. A
meðan eru flesksneiðarnar brúnaðar,
teknar af pönnunni og fitunni hellt af. Þá
eru lauk- og tómatsneiðarnar brúnaðar
andartak i smjöri ásamt ræmum af rauö-
um pipar og lagt i fat hjá flesksneiöunum.
Pannan á að vera vel heit og smjörið
bráöið, þegar eggjahrærunni er hellt á.
Þegar kakan er hálfstif, er fyllingunni
hellt á og siðan er hún látin stifna alveg.
Graslaukur klipptur yfir.
Fleiri eggjaréttir
eru á bls. 32
19