Heimilistíminn - 10.06.1976, Blaðsíða 11
Borðplata1
AAilíi
handanna
Eins og þið sjáið, er þetta enginrí vandi
— ef þið hafið ekki allt of marga þumal-
fingur. Borðið má mála eftir smekk, eða
láta viðarlitinn halda sér.
Efnið
sem þarf:
Borðplatan og hornin:
20. mm húsgagnaviður
1 stk 100 x 100 cm.
Fætur:
2” x 2” viður
4 stk 48 cm. hvert.
Hliðarstykki:
3” x 1 ” viður
4 stk 60 cm hvert
Þverspýta:
1” x 2” viður
1 stk. 67,5 cm.
8 hjarir með skrúfum
8 vinkiljárn með skrúfum
8 langar skrúfur með flötum
u.þ.b. 8 cm langar.
1 stk bolti með flötum haus,
skifa og ró, u.þ.b. 8 cm langur.
haus
Fyrst skaltu láta skera til
plötuna , þar sem þú kaupir hana.
Úr plötunni, sem er metri á hlið,
tærðu aðalplötuna 70 x 70 cm og
hornplöturnar fjórar. Á miðja
plötuna borarðu gat fyrir bolt-
ann. Mundu að gera holu í plöt-
una fyrir hausinn á boltanum.
Hornin eru fest á með tveimur
hjörum hvert.
Þá er að setja saman grindina.
Hliðarstykkin eru fest 1 cm
neðan við efri enda fótanna og
á miðju. Notið vinkiljárnin og
löngu skrúfurnar, eins og sést á
teikningunni. Einnig má nota lim
með.
Þverspýtan er skorin til í end-
ana og fest með lími og nöglum
mitt á hliðarstykkin. Þá er bara
að leggja plötuna á og festa hana
með boltanum. Þegar þú lyftir
upp hornunum og snýrð plötunni,
hvíla hornin á borðfótunum. Loks
er spartlað í skrúfugötin, slípað
með sandpappir og lakkað eða
málað í lit.
n