Heimilistíminn - 10.06.1976, Page 18

Heimilistíminn - 10.06.1976, Page 18
«s Frönsk eggjakaka með rjóma- og sveppajafningi 2 egg 4 msk vatn. salt og pipar, smjör, 125 gr. sveppir, 1/2 msk. hveiti 1 dl. rjómi. Lagið fyrst sveppajafninginn: Brúnið sveppina i smjöri, heila eða sneidda, strá- ið hveitinu yfir þá og jafnið með rjóman- um, Látið malla, þar til sósan er jöfn, bragðbætt með salti og pipar. Saman- þeyttum eggjamassanum er hellt á þeita pönnu með smjöri. Hann stlfnar yfir há- um hita, en lyftið jafnan brún kökunnar, svo massinn geti runnið undir. Þegar allt er stift og eggjakakan fallega gyllt, er hún brotin yfir jafninginn og borið á borð. BD Hrærð egg með kippers 2 egg 4 msk mjólk eða rjómi, salt, pipar, 2-3 kippersflök, graslaukur og laukhringir ef vill, smjör. bað er auðvelt að hræra egg, en þó list að láta þau ekki skilja sig: Þeytiö egg og mjólk eöa rjóma saman, hitiö á meðan pönnu og bræðið smjör, en það má ekki byrja að brúnast. Eggjahrærunni er hellt á pönnuna og eftir nokkrar sekúndur er eggjahræran dregin með tréspaða yfir á aöra hlið pönnunnar. Ný hræra rennur þá út á pönnuna og húri er dregin sömu leið. Það má hvorki hræra né snúa. Þannig Kryddað Kippers, sem eru reykt sildar- flök úr dós, eiga vel viö hrærð egg, en skinka, hamborgarahryggur og fleira er lika gott. 18

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.