Heimilistíminn - 10.06.1976, Page 28
Nýrnasjúklingo ir skulu
borða eins og 1 birnir
Björninn er í híði á veturna eins og allir vita og neytir engrar
fæðu í fimm mánuði. Nú hafa sérfræðingar komist að því, að
nýrnasjúklingum sé
hentast að gera
eitthvað svipað
Við Mayo-sjiikrahúsið i Bandarikjunum
hafa sérfræðingar lengi velt fyrir sér,
hvað fólk með alvarlega nýrnasjúkdóma
eigi helzt að borða.
Dr. Ralph Nelson, sem er næringar-
fræðingur, hefur rannsakað næringu og
hiðistilveru bjarnarinsog reynt út frá nið-
urstöðum rannsókna sinna, að finna hent-
Ugt fæði handa nýrnasjúklingum, byggt á
sama grundvelli og næring bjarnarins. 1
þessu fæði er mjög litiö vatn og litið af
eggjahvitueöium. Hitaeiningarnar fást
annars með fitu og kolvetni.
— Með slikri samsetningu gæti sjúkl-
ingurinn komizt af án hreinsunarvélar-
innar eða gervinýrans lOdögum lengur en
venjulega og sparar það bæði tima og
peninga. Þessa 10 daga gæti sjúklingurinn
hreyft sig um allt eins og venjulega og liö-
ið ágætlega, segir Nelson. Raunar hefur
hann gert tilraunir, sem sanna þetta.
Hann litur á þetta sem stórt skref fram á
við, að geta verið lengur laus viö gervi-
nýrað og geta tekið sér leyfi og fariö i
ferðalög eins og annað fólk.
Dr. Nelsoner þeirrarskoðunar, aö þessi
matseðill geti einnig haft mikla þýðingu i
geimferðum. Þaö er búið að gera miklar
tilraunir með hentugan matseðil handa
geimförum og Nelson telur aö „bangsa-
maturinn” muni henta þeim vel. — Þá
mætti til dæmis velja feitlagna geimfara,
sem hafa á sér varaforöa. Þeir fengju
matseðil meö nægilega mörgum hitaein-
ingum, þannig að þeir gætu sparaö eggja-
hvituefnið i likamanum, en jafnframt
yrði maturinn að vera þannig samsettur,
að hann bryti niöur fitufrumur llkamans
meðan á geimferðinni stæöi. Fitufrum-
urnar veita allt aö 3500 hitaeiningum á
hvert kiló af likamsþyngdinni og það er
mun stærri hitaeiningaforði en er i venju-
legu fæði.