NT - 03.05.1984, Page 7
Fimmtudagur 3. maf 1984 7
ti«
iil
„Alvarleg skipulagsmis-
tök - sóun á almannafé“
3000 Reykvíkingar mótmæla Arnarnesvegi
■ „Ljóst er að staðsetning
vegarins eru aivarleg skipulags-
mistök, sem hægt er að bæta úr
ef vilji er fyrir hendi segir m.a.
í greinargerð sem send hefur
verið fjölmiðlum vegna svokall-
aðs Arnarnesvegar, sem fyrir-
hugað er að liggi um Vatnsenda-
hæð, austan byggðar í Breið-
holti, en í gær var borgarstjór-
anum í Reykjavík afhentar um
■ Borgarstjóri skoðar gögn
mótmælendanna, þungbrýnn á
svip.
NT-mynd Ámi Sæberg
3000 undirskriftir fólks, sem
mótmælir fyrirhuguðu vegar-
stæði.
Að áliti mótmælendanna
myndi vegur á þessum stað
valda miklum umhverfis-
spjöllum, m.a. á friðlýstu og
vinsælu útivistarsvæði, en veg-
urinn mun samkvæmt fyrirliggj-
andi áætlunum liggja í gegnum
skíðabrekkurogberjaland. Þeir
telja einnig að vegurinn myndi
valda hávaða og útblásturs-
mengun í jaðri byggðarinnar,
hann myndi valda mikilli slysa-
hættu þar eð hann á að liggja á
vinsælu leiksvæði barna og auk
þess er vegarstæðið talið óhag-
kvæmt og segja mótmælendurn-
ir það sóun á almannafé að
leggja veginn á fyrirhuguðum
stað. Arnarnesvegur á að
tengja saman Suðurlandsbraut
og Hafnarfjarðarveg og er gert
ráð fyrir að um hann fari 7000
bílar á dag, þegar fram líða
stundir.
í vesturhlíðum Vatnsenda-
hvarfs er samkvæmt aðalskipu-
lagi Reykjavíkur friðlýst útivist-
arsvæði, en engu að síður er
gert ráð fyrir að Arnarnesvegur
liggi um þetta svæði endilangt.
Þar hafa verið gerðar skíða-
brekkur sem börn hafa sótt
mikið og sömuleiðis liggja þar
reiðstígar. En það er fleira sem
mótmælendurnir finna vegar-
stæðinu til foráttu. Þeir telja að
vegarstæðið liggi í svo miklum
hæðarhalla að bílar sem færu út
af gætu hæglega oltið inn á lóðir
næstliggjandi húsa. Þá óttast þeir
flóð og vatnsaga heim á lóðir
sínar ef ræsi stífluðust. Þá telja
þeir að í vali vegarstæðis sé ekki
tekið tillit til veðurfarslegra
þátta, en rok sem þarna eru tíð
gætu valdið miklum vandræðum
í umferðinni. Ennfremur megi
gera ráð fyrir mikilli ísingu,
jafnvel svellbunkum á veginum
vegna vatnsaga ofan úr hlíðinni.
I lok athugasemdanna segir
að þeir sem undir skrifa óski
eftir því að öll lega vegarins
verði endurskoðuð og óski þeir
eftir að fylgjast með allri fram-
vindu málsins.
KRON og
KASKsenda
SÍS tóninn
■ Nú fyrir skemmstu héldu Kaupfélag
Reykjavíkur og nágrennis og Kaupfélag
Austur- Skaftfellinga aðalfundi sína. A
báðum fundunum kom fram megn óánægja
með aðild Sambands íslenskra samvinnu-
félaga að ísfilm hf. og var ályktun þess efnis
samþykkt samhljóða á aðalfundi KASK.
Þar kom m.a. fram að heildarvelta KASK
árið 1983 nam 655 milljónum en beinn
hagnaður var 900 þús. krónur. Aukning í
veltu kaupfélagsins nam 71,2% miðað við
árið 1982 en vörusala verslana jókst um
87% og nam 204 milljónum. Á fundinum
fóru fram umræður um vanda landbúnaðar-
ins og atvinnumál.
Aðalfundur KRON samþykkti ályktun
þar sem harðlega voru átaldar „ítrekaðar
árásir á KRON og alla samvinnuhreyfing-
una“ og mótmælt „tilefnislausum frétta-
flutningi um skattfríðindi samvinnufélag-
anna... Samvinnuhreyfingin hefur ekki
skattfríðindi umfram önnur rekstrarform og
óskar ekki eftir þeim,“ segir í ályktuninni.
Þá kom fram á fundinum að langstærsta
verkefni félagsins á liðnu ári hafi verið að
koma Miklagarði á fót.
Rekstrarafkoma KRON var ívið betri á
síðasta ári en árið áður, að því er segir í
fréttatilkynningu fyrirtækisins. Heildar-
vörusalan að frádregnum söluskatti nam
260 milljónum sem er 60% meira en árið á
undan.
Akranes:
Flotbryggjur
fyrir trillur
Frá fréttaritara NT á Ákranesi, Stefáni Lárusi Pálssyni.
■ Miklar aðgerðir eru nú í gangi til að
bæta aðstöðu smábátaeigenda hér á Akra-
nesi, en hún hefur vægast sagt verið bágbor-
in til þessa. í fyrra voru hér um 70 trillur, en
hefur fjölgað þó nokkuð í ár.
Nú er loksins kominn í gagnið löndunar-
krani sá sem pantaður var 1982 og getur
hann lyft flestum smærri bátum á þurrt ef
með þarf.
Þá er hafin framleiðsla á steyptum eining-
um í flotbryggjur. Fyrsta einingin er þegar
komin á flot og lofar góðu. Fleiri einingar
verða þó ekki tilbúnar fyrir sumarið og var
því brugðið á það ráð að fá lánaðar
fl.otbryggjur hjáNATO í Hvalfirði til að
leggja út í sumar.
Gamla sementsferjan sem þjónað hefur
sem flotbryggja undanfarin sumur var orðin
svo ellihrum, að talið var að hún héldist ekki
á floti í sumar. Var hún því dæmd ónýt,
enda byggð fyrir 40 árum og þá sem
innrásarprammi.
MAI
ÚTBOÐ
RÍKISVÍXLA
1
Ríkissjóður fslands hefur ákveðið að bjóða út
ríkisvíxla, í samræmi við heimildarákvæði fjár-
laga 1984 og með hliðsjón af ákvæðum laga nr.
79/1983. Öllum er heimilt að bjóða í víxlana.
f boði verða víxlar að nafnvirði samtals
30.000.000 kr. með útgáfudegi 11. maí 1984 og
gjalddaga 10. ágúst 1984.
Hver víxill verður 50.000 kr. að nafnvirði og
i verður innleystur í Seðlabanka íslands á gjald-
daga.
Gera skal bindandi tilboð í heilt margfeldi af 5
víxlum (þ.e. nafnverð 250.000 kr.). Allir tilboðs-
gjafar skulu láta fylgja hverju tilboði sínu gjald-
keratékka, þ.e. tékki sem gefinn er út af innláns-
stofnun, sem tilboðstryggingu. Tékkinn skal
vera að fjárhæð 10.000 kr. og stílaður á Seðla-
banka íslands v/ríkisvíxlaútboðs. Gangi tilboðs-
gjafi frá tilboði sínu, sbr. þó 7. lið, glatar hann
fjárhæðinni, ella gengur hún upp í ríkisvíxla-
viðskipti viðkomandi aðila eða verður endur-
send sé tilboði hafnað af ríkissjóði. Tilboð, sem
ekki fylgir greind innborgun, skal meta ógilt.
Undanþegnir greindri innborgunarskyldu eru:
Innlánsstofnanir, fjárfestingarlánasjóðir, lífeyris-
sjóðir, sem viðurkenndir eru af fjármálaráðu-
neytinu, og tryggingafélög, sem viðurkennd eru
af Tryggingaeftirliti ríkisins.
Tilboð má senda á sérstökum eyðublöðum sem
fást í Seðlabanka. Tilboðin ásamt tilboðstrygg-
ingu, ef um hana er að ræða, berist lánadeild
Seðlabankans, Hafnarstræti 10, 101 Reykjavík,
fyrir kl. 14.00 9. maí 1984 og séu í lokuðum
ómerktum umslögum, að öðru leyti en því að þau
séu sérstaklega merkt orðinu „Ríkisvíxlaútboð".
8.
10
11
1 Heimilt er að símsenda tilboð í telexi eða stað-
’ ■ festu símskeyti, og skulu þau berast fyrir sama
tíma og getið er í 5. lið hér að framan. Sömu-
leiðis má símsenda tilboðstryggingu, sbr. 4. lið.
I Ríkissjóður áskilur sér rétt til þess að taka eða
■ hafna tilboðum í heild eða að hluta. Breyting
eða afturköllun tilboðs skal hafa borist lánadeild
Seðlabankans fyrir kl. 14.00 hinn 9. maí 1984.
Tilboðsgjöfum sem eiga tilboð sem tekið er,
verður tilkynnt um það símleiðis fyrir kl. 16.00
hinn 10. maí 1984. Staðfestingarbréf verða auk
þess send til þeirra.
Tilboðsgjöfum, sem eiga tilboð sem hafnað er
eða eru ógild, verður ekki tilkynnt um það sér-
staklega að öðru leyti en með endursendingu
tilboðstryggingar í ábyrgðarpósti.
Niðurstöður útboðsins verða kynntar tölulega
eins fljótt og hægt er, án vísunar til nafna til-
boðsgjafa, með fréttatilkynningu til fjölmiðla.
Greiðsla fyrir víxla, skv. tilboðum sem tekið
verður, þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl.
14.00 á útgáfudegi og verða víxlarnir afhentir
eða póstsendir fyrir kl. 17.00 sama dag nema
þess sé óskað sérstaklega að Seðlabankinn
geymi víxlana. Berist greiðsla ekki á réttum tíma
áskilur ríkissjóður sér rétt til að krefjast tilboðs-
gjafa um hæstu lögleyfðu dráttarvexti fyrirþann
tíma sem greiðsla dregst, auk þess sem tilboðs-
gjafi glatartilboðstryggingu sinni.
Ríkisvíxlar þessir eru stimpilfrjálsir og án þókn-
■ unar. Um skattalega meðferð þeirra gilda sömu
reglur og gilda hverju sinni um innstæður í
bönkum og sparisjóðum.
Útboðsskilmálar og tilboðseyðublöð liggja
\rnLm frammi í afgreiðslu Seðlabanka fslands, Hafnar-
stræti 10, Reykjavík.
Reykjavik, 3.mai 7984
RIKISSJOÐURISLANDS