NT - 03.05.1984, Side 16
m ~%xv
ssys;?
Fimmtudagur 3. maí 1984 16
I Jenny ætlaði ekki að þekkja sjálfa sig i
spegli þegar hágreiðslu- og förðunarmeistar-
ar höfðu farið höndum um hana og hún
i\\, var komin í pallíettukjólinn „Guð,
er þettaég
>»• ,
sagði hún.
■ Þessa mynd sendi vinur
Jenny Willson til Lichfield lá-
varðar og hún komst þá í hópinn
sem kallaður er „Lichfield
Lovelies“
■ Patrick
lávarður -
urinn með
vélina“
Lichfield
„töframað-
Ijósmynda-
■ Ekkert var til sparað við myndatökuna
á Jenny. Hér er hún hjúpuð í hvítu minkaslái
og skrýdd demöntum!
FACE OF ’84
Lichfield
SUPERMAN
- varð að fara
að fljúga
■ Allir vita að Supcrman verður að fljúga um og sinna hlutverki sínu,
og því er það að kona hans og börn verða oft að sætta sig við að fylgja
honum á flugvöllinn og segja bless.Gae Exton heitir konan (þau eru
reyndar ekki gift en búa saman með tveimur börnum sínum) sonurinn
heitir Matthew og dóttirin Alexandra. Pað má segja að foreldrarnir hafi
þarna fullt í fangi, þar sem þau halda á börnunum, en dóttirin var ekki
alveg á því að sleppa sínum. En hvað um það Superman varð að fljúga.
lávarður myndar
fegurðardísir
í keppninni um „Andlit ársins ’84“
■ Hinn konunglegi ljósmynd-
ari Patrick Lichfield lávarður er
sagður hafa alveg óskeikult
auga fyrir kvenlegri fegurð.
Pessi gáfa hans kom vel fram er
hann tók að sér að mynda Jenny
Wilson fyrir keppnina um
„ Andlit ársins ’84“ (Face of ’84)
Jenny var falleg en venjuleg
skólastúlka, en vinur hennar,
sem er ljósmyndari, hafði sent
mynd af henni til keppninnar.
„Hún er dásamleg, ...stór-
kostleg ...ég hef ekki orðið
svona spenntur við myndatöku
árum saman!“ sagði Lichfield
við myndatökuna. En það hafði
nú ýmislegt gengið á áður en
hún hófst.
í fyrsta lagi voru sett upp ný
tjöld sem baksvið á myndastof-
unni. Síðan fékk Lichfield hár-
greiðslumeistarann Mitch frá
Vidal Sassoon og föðrunarmeist-
arann Clayton Howard, sem
þykir einna bestur í Englandi til
að snyrta fyrirsætuna.
Jenny kom kl. 9.30 að morgni
á myndastofuna, ómáluð með
sítt flaksandi hárið. Þar tóku
meistararnir við og unnu í
marga klukkutíma við að
klippa, þvo og leggja hár hennar
og snyrta hana. Árangurinn lét
ekki á sé standa, því að Jenny
sagði þegar hún sá sig í spegli:
„Guð, er þetta virkilega ég!“
Hinn konunglegi Ijósmyndari
sagði um Jenny, að hún hefði
sérstakan hæfileika til að sitja
fyrir og hún ætti áreiðanlega
eftir að ná langt sem módel.
■ Benny Aaholm var ekki
nema 49 ára, þegar hann var
myrtur á hinn hroðalegasta hátt.
Samt var hann búinn að vera
meðal vinsælustu rithöfunda
Dana um langa hrið.
Vinsæll dansk
myrtur í íbúð
■ Henni brá ekki lítið dönsku
konunni Margit von der Recke,
þegar hún kom til vinnu sinnar
í Torremolinos á Costa del Sol
á þriðja í páskum, Margit, sem
komin er á eftirlaunaaldur,
hafði tekið að sér ráðskonustarf
hjá danska rithöfundinum vin-
sæla Benny Aaholm og var nú
að koma úr páskafríi.
Það fyrsta, sem vakti athygli
hennar, var heimiliskötturinn
Pussy, sem alltaf hafði búið við
mesta dálæti eiganda síns, enda
algeng persóna í sögum hans.
Núna hímdi Pussy vansæl, hor-
uð og vanhirt úti undir vegg.
Þegar Margit opnaði húsdyrnar,
gaus á móti henni einhver tor-
kennilegur þefur. Pegar inn í
húsið kom, blasti við henni
óhugnanleg sjón, sem útskýrði
lyktina skrýtnu. Þar lá húsbóndi
hennar, allsnakinn, utan hvað
hann var vafinn níðsterku brúnu
límbandi, eins og ntúmía.