NT - 21.05.1984, Blaðsíða 1
■ Ólafur Proppé, sveitarfor-
ingi Hjálparsveitarinnar í Hafn-
arfirði. „Alltaf leiðinlegt þegar
slys ber að, en þeir brugðust rétt
við,“ sagði Ólafur um björgun
stúlkunuar á laugardag. Á
stærri myndinni eru þeir Gunn-
ar Viðar (t.h.) en hann ók
sjúkrabílnum og Kjartan
Guðmundsson (t.v.) Kjartan er
skyndihjáiparkennari sveitar-
innar; hann og Stefán Axelsson
fóru með stúlkunni í bílnum og
unnu að lífgunaraðgerðum.
NT-Mynd Ari.
brugðist vel við og hefði þar
komið í ljós árangur mikillar
þjálfunar.
Stúlka hætt komin við köfun í Peningagjá:
Tókst að blása í hana
lífi á síðustu stundu
- komst til meðvitundar snemma í gærmorgun
■ Það óhapp vildi til á æfingu
Hjálparsveitar skáta Hafnar-
fírði á Þingvöllum síðastliðinn
laugardag að ungri stúlku fatað-
ist við köfun. Brugðust félagar
hennar skjótt við og komu henni
til bjargar. Var stúlkan flutt á
gjörgæsludeild Landakots-
spítala þar sem hún kom til
meðvitundar snemma á sunnu-
dag.
Ekki er Ijóst hvernig slysið
vildi til, en köfunarflokkur
sveitarinnar var við æfingar í
Peningagjá. Stúlkan var að kafa
í grynnri enda gjárinnar, en þar
mun dýpi vera um fimm metrar.
Vanir kafarar höfðu umsjón
með æfingunni og einn þeirra,
Sveinn Magnússon, hafði auga
með stúlkunni. Tók hann eftir því
að ekki var allt með felldu og
gaf fyrirmæli um björgunarað-
gerðir. Fóru þegar í stað aðrir
kafarar til hjálpar stúlkunni, en
þegar að var komið hafði hún
rifið af sér munnstykkið, gler-
augun og kafarahettuna. Stúlk-
an var þá meðvitundarlaus.
Hófu þeir hjálparsveitar-
menn lífgunaraðgerðir, fyrst
strax í vatninu, en héldu þeim
áfram á bakkanum. Sjúkrabíll
sveitarinnar stóð fast við gjána
og var því hægt að leggja tafar-
laust af stað í bæinn. Að auki,
kölluðu þeir á aðstoð og fóru
fram á að hjartabíllinn yrði
sendur á móti þeim.
Stúlkan tók síðan við sér á
leiðinni og fór að anda sjálf. Við
Seljabrekku mættu þeir svo
hjartabílnum, en með honum
var læknir og hjúkrunarkona.
Stúlkan kom síðan til meðvit-
undar snemma á sunnudag og
leið, síðast er fréttist, eftir atvik-
NT sneri sér til Ólafs Proppé,
sveitarforingja Hjálparsveitar-
innar. Ólafur sagði að æfingum
hjálparsveitanna fylgdi alltaf
cinhver hætta, og reyndar væri
tilgangur æfinganna að þjálfa
fólk til að bregðast við, öðrum
til hjálpar. Hann sagði að það
væri alltaf leiðinlegt er slys bæri
að en því ánægjulegra þegar vel
tækist til með björgun. Sagði
liann félaga stúlkunnar hafa
1
Enginn bjór á
þessu þingií
■ Hin margumtalaða
þingsályktunartiflaga
um bjórinn mun ekki
fást afgreidd á þessu
þingi. Tillagan vartekin
til umræðu í Sameinuðu
þingi á laugardaginn en
varð ekki útrædd. Fjórir
þingmenn höfðu lokið
máli sínu um tillöguna,
þegar taka varð hana af
dagskrá vegna um-
ræðunnar um utanrík-
ismál, en þá voru 8
þingmenn eftir á mæl-
endaskrá.
Það er því enn ekki
útséð um að íslendingar
fái að segja álit sitt á
bjórmálinu í þjóðarat-
kvæðagreiðslu jafnhliða
næstu þingkosningum.
Flugmannadeilan:
„Mínum til-
raunum lokið“
■ Ekkert samkomulag náðist
á sáttafundi þeim sem ríkissátta-
semjari boðaði til í gær í deilu
flugmanna og Flugleiða, en
fundinum var slitið kl. 1.00 í
nótt.
„Mínum tilraunum að leita
sátta í þessu máli er þar með
lokið, sagði Guðlaugur
Þorvaldsson, ríkissáttasemjari
við NT í morgun.
Kjaradómur mun þar með
skera úr þessari deilu eins og lög
þau sem samþykkt voru á Al-
þingi sögðu til um.
Færeyingarnir
heim á morgun
■ Björgunarsveitarmenn frá Kirkjubæjarklaustri ug Óræfuin björguöu
færeysku sjómönnunum hröktum og köldum á Skciöarársandi aðfaranótt
laugardagsins, en bátur þeirra, Birgita hafði strandað þar fyrr um nóttina.
Voru þeir fyrst fluttir til Kirkjubæjarklausturs en síðan til Reykjavíkur.
Færeyingarnir fara heim á morgun. Hér má sjá björgunarmenn á
Skeiðarársandi í dagrenningu á laugardag, cn færcysku skipbrots-
mennirnir eru komnir inn í björgunarsveitarbílinn. NT-mynd: Hörður
- SJA NANAR A BLADSIDU 5
Meirihluti íslendinga
vill láta herinn borga
- Samkvæmt skoðanakönnun sem birt verður í skýrslu Öryggismálanefndar
■ Tveir af hverjum þremur íslendingum eru
fylgjandi gjaldtöku fyrir aðstöðu bandaríska
hersins. Þá eru áttatíu prósent þeirra, sem
afstöðu taka, fylgjandi aðild að NATO. Þetta
eru niðurstöður skoðanakönnunar sem Félags-
vísindadeild Háskóla íslands framkvæmdi
1983. Þær niðurstöður könnunarinnar sem
snerta öryggis- og varnarmál íslands koma
fram í skýrslu sem Ólafur Þ. Harðarson,
lektor, hefur skrifað og Öryggismálanefnd
gefur út.
Skoðanakönnunin tók til
1003 íslendinga. Var meðal
annars spurt um aðild íslend-
inga að NATO. Meðmæltir
voru samkvæmt heimildum
blaðsins, rösklega helmingur,
tæplega fimmtán prósent and-
vígir aðild en rösklega þrjátíu
prósent tóku ekki afstöðu.
Þá voru þeir, sem spurðir
voru, beðnir að taka afstöðu
til þess hvort taka ætti gjald af
bandaríska hernum
Samkvæmt heimildum NT
voru tæp fimmtíu prósent því
„sterkt fylgjandi“ að takagjald
af hernum en tæp fimmtán
prósent því „fylgjandi."
„Sterkt andvígir“ voru rúm-
lega tuttugu prósent en „and-
vígir“ um sjö prósent.
Að sögn Gunnars Gunnars-
sonar, starfsmanns Öryggis-
málanefndar, verður skýrslan
gefin út um næstu mánaðar-
mót, hann vildi ekki tjá sig um
innihald hennar.
Einnig ér að sögn Gunnars
von á ritgerð um samninga um
afvopnunarmál eftir þá Albert
Jónsson og Þórð Yngva Guð-
mundsson.
Ólafur
Jóhannesson
fyrrverandi
forsætis-
rádherra
látinn
-Sjá nánará
blaðsíðu 5