NT - 21.05.1984, Side 2
IU
íbúð
skemmist
af sóti
oghita
- gleymdist að
taka straum af
eldavélinni
■ Mannlaus einstakl-
ingsíbúö að Ljósheim
um 20 skemmdist
nokkuð af sóti og hita
þegar gleymdist að taka
straum af eldavél þar
seinni part sunnudags.
Að sögn varðstjóra á
Slökkvistöð var tals-
verður reykur og hiti
inni í eldhúsinu þegar
slökkviliðsmenn komu
á staðinn en lítill eldur.
Slökkviliðið ræsti út úr
íbúðinni með blásara.
Jflánudagur 21. maí 1984 2
kennarastöðu
kennara í búfjárrækt
við skólann og mun
láta af skólastjórn ef
hann fær þá stöðu.
■ Magnús B.
Jónsson, skólastjóri á
Hvanneyri, mun ef til
vill láta af því starfí í
haust. Magnús hefur
sótt um stöðu aðal-
■ Tveir bílar lentu í árekstri á mótum Miklubrautar og Eskihlíðar
laust eftir kl. 18.00 á sunnudag. Við áreksturinn valt annar bíllinn.
Ökumaður og farþegi í þeim bíl voru fluttir á Slysadeild en ekki var
vitað nánar um meiðsl þeirra í gærkvöldi. NT-mynd Róbert
Magnús sagði við NT í gær að
sig langaði til að geta sinnt
rannsóknum og fræðiiðkunum
meira en unnt væri við núver-
andi aðstæður. Jón Viðar Jón-
mundsson sem undanfarið hefur
gegnt stöðu aðalkennara í bú-
fjárrækt á Hvanneyri, mun láta
af því starfi í haust.
Hvanneyri:
Skólastjór-
inn sækir um
Cannes:
Eldfjallið John
Frá Guðlaugi Bergmundssyni hlaðamanni NT
í Cannes.
■ Hæruskotinn, gráskeggjað-
ur, hrukkóttur og með grænt
hálsbindi við bláa skyrtu, John
Houston var hetja dagsins þegar
nýjasta mynd hans var frumsýnd
í Cannes. Sjötíu og sjö ára
unglingur. Hann hefur enn einu
sinni sannað með nýjustu mynd
sinni, Undir cldfjallinu, að hann
er einn af risunum.
Undir eldfjallinu sem var
kynnt á hátíðinni í Cannes fyrir
helgina, gerist í þorpinu Cuern-
avaga í Mexíko þann 1. nóvem-
ber 1938, á degi hinna dauðu,
þegar Mexíkanar halda hinum
látnu mikla hátíð. Þar segir frá
síðustu klukkustundum í lífi
breska konsúlsins á staðnum.
Undir eldfjallinu er harmsaga
manns sem reynir að berjast á
móti vitfirringu heimsins. Pótt
sögusviðið sé fjarri Evrópu eru
Spánarstríðið og uppgangur
nasista í Þýskalandi notuð til að
minna okkur á að heimurinn er
á fallanda fæti. Hálfbróðir
konsúlsins er nýkominn frá
Spáni og segir frá því að barátta
lýðveldissinna gegn fasistum sé
vonlaus, og þá er orðrómur um
að nasistar séu að stofna systur-
flokk í Mexíkó. Eina vörn kons-
úlsins gegn þessari vá er flaskan
og af henni sýpur hann ótæpi-
lega uns yfir lýkur.
John Houston býr sjáifir í
Mexiko og hefur honum tekist
að koma meistaralega til skila
þeim töfrum sem landið býr
yfir, enda segir á einum stað í
myndinni: „ekkert er raunveru-
legra en töfrar."
Með aðalhlutverk í myndinni
fer breski leikarinn Albert Finn-
ey og er leikur hans hreint
ótrúlegur. Hann túlkar marg-
slungna persónu konsúlsins á
þann hátt að það líður seint úr
minni. Houston segir líka sjálf-
ur að túlkun Finneys sé einhver
besti leikur sem hann hafi nokk-
urn tíma séð.
Undir eldfjaliinu er gerð eftir
samnefndri skáldsögu breska
rithöfundarins Malcolm Lowry
sem út kom 1947. Houston
hefur haft áhuga á að gera mynd
eftir skáldsögunni í meira en 20
ár og honum hafa verið send um
25 handrit sem gerð hafa verið
eftir henni. En alls munu hand-
ritin eftir bókinni vera um 60.
Það var svo ekki fyrr en fyrir
tveimur árum að Houston fékk
upp í hendurnar handrit sem
hann taldi bitastætt. Höfundur
þess er tæplega þrítugur Banda-
ríkjamaður, Guy Gallo, og hon-
um hafði tekist það sem öðrum
hafði mistekist og þeirra á með-
al var Nóbelshafinn Gabríel
Garcia Marques. Houston og
Gallo settust niður og unnu í
heilt ár að því að betrumbæta
handritið og komast að kjarna
sögunnar.
Biðin eftir því að Malcolm
Lowry og John Houston leiddu
saman hesta sína var löng. En
hún var þess virði.
■ Sólin skartaði sínu fegursta í höfuðborginni í gærdag og gat fólkið notið útivistar eftir undanfarna
rigningadaga. Ljósmyndari NT rakst á þessar ungu stúlkur í Læknum góða í Nautólfsvíkinni, bar sem
þær nutu veðurblíðunnar. NT-mynd: Ari
. . um boð'
ið upp á Mangósopa
■ Eiríkur Fjalar tekur lagið í'einni útsýnisferðinni
Eiríkur Fjalar nú fararstjóri
■ Eiríkur Fjalar gerðist farar-
stjóri á laugardaginn í útsýnis-
ferðum um Reykjavík, enda
hefur hann sérþekkingu á fugla-
lífí Tjamarinnar og á staðháttum
við Skólavörðuholtið.
Að sögn þeirra sem nutu
leiðsagnar Eiríks hefur hann
jafnvel meiri hæfileika á farar-
stjórnarsviðinu en á tónlistar-
sviðinu.
Það var ferðaskrifstofan
Úrval sem skipulagði útsýnis-
ferðirnar í tilefni þess að Úrval
flutti í nýtt húsnæði við Pósthús-
stræti á laugardaginn, 63 skref-
um neðar en gamla skrifstofan
var til húsa. Strætisvagn var
fenginn í ferðirnar sem farnar
voru á háfltíma fresti fram eftir
deginum. Rúmlega 200 manns
nutu leiðsagnar Eiríks, en ferð-
irnar voru bannaðar fólki eldra
en 14 ára, nema það væri í fylgd
með börnum.
■ „Öll fyrirheit fé-
lagsmálaráðherra voru
þverbrotin og þær þús-
undir iandsmanna sem
hafa kosið þessa nýju
leið í húsnæðismálum,
eru sviptar öllum
möguleikum á öruggu
húsnæði“, segir í álykt-
un sem samþykkt var
á fundi Búsetamanna
fyrir utan Alþingishús-
ið síðdegis á föstudag-
inn.
1 ályktuninni segir ennfremur
að vilji meirihluta Alþingis til
að veita húsnæðissamvinnufé-
lögum rétt til lána úr Byggingar-
sjóði verkamanna, hafi legið
fyrir, en Sjálfstæðisflokknum
hafi með hrossakaupum tekist
að koma í veg fyrir að svo yrði.
„Um leið og við brýnum ríkis-
stjórnina til að skoða hug sinn í
þessu máli, viljum við minna á
að húsnæði er ein af frumþörf-
um mannsins. Öruggt húsnæði
fyrir alla er krafa, sem engin
rikisstjórn getur vísað á bug.“
■ Allnokkur mannfjóldi safnaðist saman fyrír framan Alþingis-
húsið síðdegis á föstudaginn til að mótmæla því að Búseti skuli ekki
eiga rétt til lánveitinga úr Byggingarsjóði verkamanna. Mangósop-
inn gegnir þýðingarmiklu hlutverki, enda er það mál manna að
lánaréttur Búseta hafi verið látinn í „vöruskiptum" fyrir þennan
þjóðardrykk. NT-mynd: Ari
■ Birna Þórðardóttir og Guðríður Haraldsdóttir gera hér heiðar-
lega tilraun til að freista þingmanna með „Mangósopa".
NT-mynd: Ari