NT - 21.05.1984, Qupperneq 5
Mánudagur 21. maí 1984 5
Útsölustaðir: REYKJAVÍK: Liturinn, JL-Húsið, KÓPAVOGUR: BYKO, Nýbýla-
vegi 15, HAFNARFJÖRÐUR: Málmur, Reykjavíkurv'egi, AKRANES: Verslunin
Bjarg, BORGARNES: Kaupfélag Borgfirðinga, STYKKISHÓLMUR: Húsið,
PATREKSFJÖRÐUR: Rafbúð Jónasar, BOLUNGARVlK: Jón Fr. Einarsson, (SA-
FJÖRÐUR: Húsgagnaverslun Isafjarðar, BLÖNDUÓS: Kaupfélag Húnvetninga,
EGILSSTAÐIR: Verslunarfélag Austurlands, SEYÐISFJÖRÐUR: Verslunin
Dröfn, REYÐARFJÖRÐUR: Verslunin Lykill, FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: Verslunin
Þór, VlK I MÝRDAL: Kaupfélag Skaftfellinga, VESTMANNAEYJAR: Þon/aldurog
Einar, SELFOSS: Vöruhús K.Á.
Auglýsinga-18-300
símar: 86-300
fifl
ei
Færeyingarnir
heim á morgun
■ Færeysku skipsbrots-
mennimir af Birgita, bátnum sem
strandaði á Skeiðarársandi að-
faranótt laugardags, halda heim*
á þriðjudag.
Færeyingarnir komu til
Reykjavíkur á laugardag og var
komið fyrir á gistiheimili Hjálp-
ræðishersins. Þeir hafa síðan
spókað sig um miðbæinn.
Að sögn björgunarmanna fyr-
ir austan, þeirra Harðar Davíðs-
sonar á Kirkjubæjarklaustri og
Ólafs Sigurðssonar á Svínafelli
í Öræfum, gekk björgunin vel.
Skipsbrotsmennirnir voru
komnir upp á sandinn þegar
björgunarmenn komu á
staðinn.
Þingslit á
morgun
■ Ekki er nú lengur útlit fyrir
að þingstörfum muni Ijúka í
kvöld, eins og áætlað var fyrir
helgina. Samkvæmt upplýsing-
um sem Þorvaldur Garðar
Kristjánsson, forseti Sameinaðs
þings lét blaðinu í té í gær, er nú
stefnt að því að ljúka þingstörf-
um síðdegis á morgun.
10-12 mál, aðallega þings-
ályktunartillögur, bíða af-
greiðslu í Sameinuðu þingi og
eftir er að afgreiða 6-8 mál í
neðri deild. í efri deild eru eftir
tvær umræður um kosningalaga-
frumvarpið.
■ Peter Olaf Skorá, einn skip-
brotsmannanna af Birgita.
Hann vildi lítið viö blaðamenn
tala. NT-mynd: Ari
Björgunarsveitirnar komu á
átta bílum, fjórum frá hvorri
sveit. Tóku björgup.armennirnir
frá Klaustri Færeyingana og fóru
með þá upp að Klaustri, en
Öræfamenn urðu eftir á
strandstað. Fengu þeir síðan
fyrirmæli um kl. 6.30 á laugar-
dagsmorgun, frá sýslumanni,
Friðjóni Guðröðasyni, um að
yfirgefa staðinn.
Að sögn björgunarmanna var
báturinn því sem næst kominn
á þurrt, en ós var á milli björg-
unarmanna og bátsins, sem Fær-
eyingarnir óðu.
Þess má svo geta, að Birgita
strandaði á sama stað og Katrín
VE 47, standaði 19. janúar
1981.
Toshiba örbylgjuofnarnir eru
með fullkominni bylgjudreifingu
Deltawave, sem er einkaleyfis-
vernduð. Rafknúinn
snúningsdiskur tryggir besta
árangur. Þú getur valið milli
5 gerða heimilisofna. Fullkomin
þjónusta.
DEITAWAVE SF
TOSHIBA
Olafur Jóhannesson var
fæddur 1. mars 1913 í Stóra-
Holti í Fljótum en foreldrar
hans voru Jóhannes Friðbjarn-
arson bóndi og kennari og kona
hans Kristrún Jónsdóttir. Ólaf-
ur lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri
1935 og lögfræðiprófi frá Há-
skóla íslands 1939. Ólafur
stundaði síðan framhaldsnám í
Stokkhólmi og Kaupmanna-
höfn 1945 til 1946.
Ólafur Jóhannesson rak mál-
flutningsskrifstofu í Reykjavík
ásamt Ragnari Ólafssyni hrl.
frá 1940 til 1943, og var jafn-
framt lögfræðingur og endur-
skoðandi Sambands íslenskra
samvinnufélaga. Hann var yfir-
maður endurskoðunardeildar
Sf S og lögfræðilegur ráðunautur
þess og kaupfélaganna 1944 til
1947.
Ólafur var stundakennari við
Kvennaskólann og Samvinnu-
skólann á námsárum sínum en
árið 1947 var hann skipaður
prófessor við laga og viðskipta-
deild H.I. og gegndi hann því
starti til ársins iy/8. Hann var
jafnframt oft varadómari í
Hæstarétti á árunum 1941 til
1971. Auk þess sat hann í
ýmsum ráðum og stjórnum.
Ólafur gegndi margvíslegum
PÚ
getnr ekki
gefið fjölskyldiumi
gagnlegri hlnt
n. Frcllir ______
Óíafur Jóhannesson
fyrrverandi forsætis-
raðherra látinn
■ Olafur Jóhannesson alþingismaður og fyrr-
verandi forsætisráðherra lést í Reykjavík aðfara-
nótt sunnudags 71 árs að aldri. Olafur Jóhannes-
son var einn af áhrifamestu stjórnmálamönnum
síðasta áratugar og gegndi ráðherraembættum
nær samfleytt frá 1971 til 1983.
Ert bú að leita að hillum í stofuna,
barnaherbergið, geymsluna, iagerinn
eða versiunina? Þetta er lausnin.
trúnaðarstörfum fynr Fram-
sóknarflokkinn, var formaður
Félags ungra framsóknarmanna
1941; formaður Framsóknarfé-
lags Reykjavíkur 1944-1945 og
sat í miðstjórn flokksins frá
1946. Hann var varaformaður
Framsóknarflokksins frá 1960
til 1967 og formaður frá 1967 til
1979.
Ólafur Jóhannesson tók fyrst
sæti á Alþingi sem varaþing-
maður Skagfirðinga sumarið
1957, en tók síðan fast sæti á
Alþingi árið 1959. Hann var
forsætisráðherra árin 1971 til
1974, dóms-, kirkjumála og við-
skiptaráðherra í ríkisstjórn
Geirs Hallgrímssonar árin 1974
til 1978, forsætisráðherra árin
1978 til 1979;og síðan utanríkis-
ráðherra í ríkisstjórn Gunnars
Thoroddsen frá 1980 til 1983.
Eftir Ólaf liggja margvísleg
ritverk um lögfræðileg efni. Þar
á meðal eru: Lög og réttur.
Þættir um íslenska réttarskipan,
Rvfk 1952 (2. útg. 1959); Skipt-
aréttur, Rvík 1954. og Stjórn-
skipun íslands, Rvík 1960, auk
fjölda ritgerða og greina í blöð-
um og tímaritum.
Eftirlifandi eiginkona Ólafs
er Dóra Guðbjartsdóttir, en
þau eignuðust þrjú börn.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF
BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI 16995
■ Ólafur Jóhannesson, fyrrverandi forsætisráð-
herra
'V-'
Meö Toshiba
örbylgjuofni
sparar
þú minnst
60% af raf-
magnsnotkun við matseld, þú
sparar uppþvott, þú nýtir alla
matarafganga miklu betur og
lækkar þannig matarútgjöld fjöl-
skyldunnar.
Og síðast en ekki síst, þú styttir
þann tíma sem áður fór í matseld,
niður í hér um bil ekki neitt.
Þér er
boðið á matreiðslunámskeið
hjá Dröfn Farestveit án
endurgjalds, þar sem þú færð
íslenskan bækling með matar-
uppskriftum.
Litprentuð 192 bls.
matraðslubók fylgireinnig.
Allar leiðbeiningar á íslensku.
Orjöfiu sem ^
þii græðir á