NT - 21.05.1984, Page 11
Mánudagur 21. mal 1984 11
Að hefja sig yfir meðalmennskuna.
■ Nýlega gáfu S.G. hljóm-
plötur út sérstæða plötu. Á
henni er að finna sönglög flutt
af Jóni Kr. Ólafssyni frá Bíldu-
dal. Pað er ekki á hverjum degi
sem Vestfirðingar gefa út ein-
söngsplötur og ennþá sjaldgæf-
ara er að lítil sjávarpláss á borð
við Bíldudal leggi lóð á vogaskál
listagyðjunnar. Oft er það svo
að listin á sér fáa unnendur
hvað þá iðkendur á litlum
stöðum þar sem lífið er fiskur.
Plata Jóns er ágæt viðleitni til að
hefja sig upp úr meðalmennsk-
unni. Hún sannar einnig að Jón
hefur hin ýmsu tilbrigði sönglist-
arinnar á valdi sínu. Söngur
hans hljómar nú fyrir eyrum
alþjóðar eins og hann hefur gert
um árabil á meðal sveitunga
hans við mörg tækifæri.
Á plötunni eru mörg lög eins
og Myndin þín eftir Eyþór
Stefánsson Litli vin eftir Jolson,
Taktu sorg mína, eftir Bjarna
Þorsteinsson, DagnýogTondel-
eyó eftir Sigfús Halldórsson,
Heimir eftir Sigvalda Kalda-
lóns, Ljúfþýtt lag og Unaðs-
bjarta æskutíð, eftir Jón Ástvald
Jónsson. Það vorar eftir Sig-
valda Kaldalóns. Til Unu eftir
Sigfús Halldórsson. Ég lít í
anda liðana tíð og Fjallið eins
eftir Kaldalóns. Undirleik ann-
aðist af kostgæfni Ólafur Vignir
Albertsson. Samspil þeirra Jóns
er með miklum glæsibrag.
Það hlýtur að vera fengur að
eignast söng Jóns Kr. á svo
góðri plötu sem raun ber vitni.
Þeim sem vildu eignast plötuna
skal bent á að platan er til sölu
hjá söngvaranum sjálfum og
síminn er 2186, Bíldudal.
A.H.G.
Ný skáldsaga eftir
Ólaf Gunnarsson
■ Út er komin hjá Iðunni bókin Gaga,
skáldsaga eftir Ólaf Gunnarsson. Hann er
fæddur í Reykjavík árið 1948 og hefur
starfað sem rithöfundur um árabil með
búsetu á Islandi og í Danmörku. Áður eru
komnar frá hendi Ólafs tvær ljóðabækur,
Ljóð og Upprisan, svo og skáldsögurnar
Milljón þrósent menn, 1980, og Ljóstollur,
1982, sem báðar hafa komið út á forlagi
Iðunnar.
Gaga er saga Geimfarans, Valda í Valda-
sjoppu, sem vaknar morgun einn á Mars.
Það er öðrum þræði saga mannsins sem lesið
hefur yfir sig af tískusögum okkar tíma, líkt
og henti Don Kíkóta forðum daga. En
vitnar heilaspuni Geimfarans og ofsóknar-
æði einungis um mann sem misst hefur
samband við umheiminn? Það er ein þeirra
spurninga sem saga þessi vekur. Er Geim-
farinn alveg „gaga“? Eða eru hugarórar
hans fyrst og fremst rökrétt viðbrögð við
óbærilegu og tilfinningasnauðu lífi? Við
skelfingunni sem vofir yfir?
í kynningu forlagsins segir m.a.: „Ólafur
Gunnarsson beitir hér óvenjulegri aðferð
við söguritun. Hann segir frá leyndum
hugans og áreiti lífsins á þann hátt sem telja
má næsta nýstárlegan í íslenskum bók-
menntum. Gaga er skáldverk sem ögrar
lesandanum og vekur hann til íhugunar."
Gaga er 72 bls. Prentsmiðjan Oddi hf.
prentaði. Kristján E. Karlsson hannaði
kápu.
-engaráhygglur
bankinn býðursparendum. Berðu
(aau saman við það sem aðrir bank-
arbjóða núna.
Við bjóðum 21,6% ársávöxtun á
BANKAREIKNINGI MEÐ BÓNUS.
Þú getur valið milli þess að hafa
slíka reikninga verðtn/ggða eða
óverðtryggða.
Þú mátt einnig færa á milli þessara
reikninga, án þess að það skerði
bónus eða iengi 6 mánaða bindi-
tíma.
í þessu fellst mikið öryggi - ef verðbólgan vex.
Hnaðarbankinn
Fer eigin leiðir - fyrir sparendur