NT - 21.05.1984, Blaðsíða 17

NT - 21.05.1984, Blaðsíða 17
Mánudagur 21. maí 1984 17 Nýi bíllinn frá Citroen — BXinn - svo ólíkur öllum öðrum bílum, að þú þarft að prófa hann til þess að finna muninn. Þess vegna fengum við fjóra kröfuharða íslenska ökumenn til þess að reynsluaka BXinum. Hver og einn fékk bílinn til frjálsra afnota í eina viku og gaf að því loknu gagnrýna umsögn um reynslu sína. Niðurstöðurnar komu okkur ekkert á óvart, því þær staðfestu hinar frábæru viðtökur,sem bíllinn hefur fengið erlendis. BXinn kom ökumönnunum fjórum hins vegar verulega á óvart. Þrírþeirra höfðu aldrei átt Citroén, þekktu hann aðeins afafspurn og höfðu ekki sérlega mikið álit á tegundinni. Ein vika með BX gjörbreytti viðhorfi þeirra. Sá fjórði, sem átt hefur fjóra Citroén-bíla, var ekki síður hrifinn.Hann taldi BXinn einkum hafa þrennt umfram aðra Citroén-bíla: feykilega gott viðbragð, óaðfinnanlegan frágang og hvað hann eróvenjulega hljóðlátur. Gísli Sigurðsson, umsjónarmaður Lesbókar Morgunblaðsins og „atvinnumaður" íreynsluakstri, er ekkiallsókunnur Citroén. Hann hefuráttþrjá DS (þessa stóru, mjúku) og einn GS. Að auki hafði hann reynsluekið BX í Frakklandi: „BXinn hefur þrennt umfram aðra Citroén-bíla: Viðbragðið er það langbesta - feykilega gott, frágangurinn, sem lengi var veikur punktur, er nú óaðfinnanlegurog bíllinn ermiklu hljóðlátari en aðrir Citroén. Sætin eru ein þau bestu sem til eru, bremsurnar mjög góðar og vökvafjöðrunin ugglaust með því besta sem hægt er að finna í nokkrum bíl. Hann er ekki bara einstaklega þægilegur í akstri, það erlíka skemmtilegtað keyra hann. Hann liggur vel, vinnur velog fjaðrarvel. Gírskiptingin erafturá móti veikasti punkturinn, -ónákvæm. Svo er mælaborðið auðvitað alltaf sér á parti, en það venst vel. " Gerður Pálmadóttir, kjarnorkukona, sem rekur Flóna á Vesturgötunni og Sólskríkjuna við Lindargötu, er þekkt fyrir allt annað en að sitja aðgerðarlaus. Hún notar bílinn sinn mikið en hugsar lítið og illa um hann: „ BXinn er meiriháttar, en það er voðalegur tímaþjófurað eiga svona bíl því það ersvo gaman að vera úti að keyra. Hann er súper lipur í bænum og það er ótrúlega mikið pláss í honum þegarsætið er lagt niður. Sætin eru reyndarþau bestu sem hægt er að fá og frágangur er miklu betri en í öðrum frönskum bílum sem ég þekki. Það er eiginlega enginn galli á bílnum nema að þurfá-að slökkva á stefnuljósunum og svo er krafturinn óþægilega mikill fyrir löghlýðna hórgara. Mér fannst ég vera besta gjaforð í bænum í BXinum og væri trúlega gengin út efég hefði fengið að hafa hann yfir páskana. " Jón R. Ragnarsson, einn reyndasti rallökumaður landsins, er geysilegur bíladellukall. Hann hefur lifibrauð sitt af bílum, sérstaklega ryðguoum bílum. Hann rekur ásamt fleirum Bílaryðvörn hf. í Skeifunni: „Það var alltaf erfitt að ryðverja Frakkana, BXinn er einfaldari og það verður ekkert vandamál með ryð í honum. Ég varmjög ánægður með bílinn. Hann varað vísu kraftminni en ég bjóst við, en maður hefur ekkert við meiri vinnslu að gera. Hann liggur geysivel og límist við veginn eftirþví sem ferðin eykst, en maður finnur dálítið fyrirholum ístýrinu. BXinn er mjúkur og þægilegur og fjöðrunin er allt öðruvísi en í öðrum bílum. Eiginlega fannst mér hann aðeins ha fa einn galla; að þurfa að skila honum aftur." Jón Þór Hannesson, kvikmyndagerðarmaður hjá Saga-Film, er smekkmaður jafntá bíla sem annað. Jón hefursíðustu árin m.a. áttSaab 900, Saab 900 GLE og nú síðast stóran Pajero jeppa: „ BXinn er óvenjulega kraftmikill bíll, jafnvel ennþá sneggri en Saaþinn. Vökvafjöðrunin er algjörlega einstök, - hann liggur ótrúlega vel, haggast ekki í beygjum og bremsurnar eru sérstaklega góðar. Annars varkonan jafnvel ennþá hrifnari. Hún hefurekki falliðsvona fyrirneinum öðrum, - nema náttúrlega mér hérna um árið. Þeir hafa greinilega tekið sig á þarna hjá Citroén." Citroen BX fæstbæði með 1580 cm392,5 hestafla bensínvél, - BX16 TRS og með 1905 cm3 65 hestafla dísilvél, - BX 19 TRD. Vélarnar eru 4ra strokka, vatnskældar; 5 gíra kassi, framdrif, vökvafjöðrun með hæðarstillingum og diskabremsur á öllum hjólum. Meðal standard búnaðar erlitaðgler, rafdrifnar rúður og læsingar, loftnet og hátalarar, speglar stilltir innan frá, þurrka á afturrúðu, snúningshraða- og smurmælar og quartsklukka. Citroen BX 16 TRS kostar frá kr. 441.000 Citroén BX 19 TRD kostar frá kr. 385.200 til leigubílstjóra Citroén BX 19 TRD kostar frá kr. 498.500 til almenningsnota Þú ert velkomin(n) í reynsluakstur í Lágmúla 5. Þú færð BXinn að vísu ekki í viku, en lykillinn bíður þín! CITROÉN BX G/obusr LÁGMÚLI5, SÍMI81555

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.