NT - 21.05.1984, Síða 22
itt'
Mánudagur 21. maí 1984 22
flokksstarf
Garðabær
Fundur í Framsóknarfélagi Garöabæjar og Bessastaða
hrepps Fundur verður haldinn mánudaginn 21. maí n.k.
kl. 20.30 að Goðatúni 2.
Dagskrá: Bæjarmál
Stjórnin
til sölu
Galv-a-grip Þakmálning
Ekki er öll vitleysan eins. Ein vitleysan er að
láta þakjárn veðrast þar til það er orðið
hálfónýtt og mála svo. Með galv-a-grip er
hægt að mála svo til strax (2-3 mán).
Ein umferð með galv-a-grip er lausn á miklum
vanda' Litaver
Sölustaðir: Húsasmiðjan
B.B. byggingarvörur Magnabúð Vestmannaeyjum
0. Ellingsen M. Thordarson
Slippbúðin Mýrargötu Box 562-121 R
Smiðsbúð Simi: 23837
Tjaldvagnar
Hjólhýsi
Höfum til sýnis og sölu nýja og notaða tjaldvagna
og hjólhýsi. Verið velkomin.
Sýningarsalurinn
Bíldshöfða 8. Sími 81944
bílaleiga
Keflavik - Suðurnes
Viö b|OÖum nyia on Sjiarneytna folksbila
oq stationb'la
Btlaleigar Reykjanes,
Vatnsnesvegi 29 A. Keflavik
Simi 92-1081. Heima 92-2377
Vík
Intemational
RENTACAR
Opið allan
sólarhringinn
Sendum bilinrvr
Sækjum bilinn
Kreditkortaþjónusta.
VIKbílaleigahf.
Grensásvegi 11, Reykjavík S|mi 91-37688
Nesvegi 5, Súðavjk Sími 94-6972.
Afgreiðsla á Isafjarðarflugvelli,
ökukennsla
Ökukennsla
og æfingatímar
Kenni á Audi ’82. Nýir nemendur geta byrjað!
strax og greiða aðeins tekna tíma.
Æfingatímar fyrir þá sem hafa misst réttindi. ,
Æfing í borgarakstri. Greiðslukjör. /
Lærið þar sem reynslan er mest.
Símar 27716 og 74923.
Ökuskóli Guðjóns Ó. Hanssonar.
Ökukennsla er mitt fag
á.því hef ég besta lag
Veröi stilla vil í hóf
Vantar þig ekki ökupróf?
í nítján, átta, níu og sex
náöu í síma og gleðin vex
I gögn ég næ og greiði veg'
Geir P. Þormar heiti ég.
sími 19896 og 40555.
Líkamsrækt
Laufásvegi17
Sími 25-2-80
i \
djúpir og góöir bekkir
andlitsljós
Verið velkomin
Opið-
Mánudaga — Föstudaga 8 — 23
Laugardaga 8 — 20
Sunnudaga 10 — 19
tilboð - útboð
Útboð
I Tilboð óskast í að fullgera handmenntaálmu við barnaskóla
Seyðisfjarðar.
Grunnur er tilbúinn með steyptri plötu. Útboðsgögn veröa
afhent á bæjarskrifstofu Seyðisfjarðar Flafnargötu 44 gegn
1500 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað föstudaginn 1. júní kl. 10
fyrir hádegi.
Seyðisfjarðarkaupstaður.
Útboð
• SUNNA
S ÓLBAÐSS TOFA
Sterkar perur
mældar vikulega
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í
eftirfarandi:
RARIK - 84012 steypa upp tveggjahæða hús
fyrir svæðisskrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins á
Egilsstöðum. Grunnflötur er 240 m2 og frágang á
þaki. Einnig endurbyggingu þaks átengibyggingu
við Lagarfossvirkjun.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Egilsstöðum frá og með föstudeg-
inum 18. maí 1984 gegn kr 5.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríksins, Egilsstöðum, mánudaginn 4. júní
nk., kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum er
þess óska.
Útboð
Læknisbústaðir á Siglufirði
Tilboð óskast í að reisa og fullgera tvö sambyggð einbýlishús
á Siglufirði. Húsin eru á 2 hæðum, 77 m2 að grunnfleti hvort
auk bilskúrs.
Öðru húsinu skal aö fullu lokið 1. ágúst 1985 og hinu 1. júlí
1986.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7,
Reykjavík og á skrifstofu sjúkrahússins á Siglufirði gegn
2.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri miðvikudaginn 13. júní
1984 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 2684«
Tilboð
óskast í framkvæmdir við skurðgröft, útdrátt á jarðstrengjum
og reising á götuljósastólpum fyrir Rafmagnsveitu ríkisins.
Utboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík gegn 1000 króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 13. júní kl.
14. eftir hádegi.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuv#gi 3 — Simi 25800
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfarandi:
RARIK-84008. Slóðagerð vegna byggingar 132 kV háspenn-
ulínu Akureyri - Dalvík.
Verkið felst í ýtuvinnu, leggja ræsi, síudúk og flytja fyllingarefni
samtals 13000 m3.
Verkinu skal lokið 23. júlí 1984.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins,
Laugavegi 118, 105 Reykjavík og Glerárgötu 25, 600
Akureyri frá og með þriðjudeginum 22. mai 1984 og kosta kr.
250,-
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins,
Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5.
júní og verða þau þá opnuð að viðstöddum þeim þjóðendum
er þess óska.
atvinna - atvinna
Sjúkrahúsið
Patreksfirði
Hjúkrunarfræðingur með Ijósmæðramenntun
eða Ijósmóðir óskast til afleysinga vegna
veikinda og sumarleyfa.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í
síma 94-1110 eða 94-1386.
iStaða
deildarstjóra
við námsefnisgerð er hér með auglýst til
umsóknar. Áskilin eru kennsluréttindi og
kennslureynsla svo og þekking á sviði náms-
efnisgerðar.
Upplýsingar um starfið veitir námsgagna-
stjóri. Umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist Námsgagna-
stofnun, Tjarnargötu 10, Reykjavík, pósthólf
5192 fyrir 22. júní 1984.
tilkynningar
Pípulagnir
Alhliða viðgerða og viðhaldsþjónusta á vatns-,
hitalögnum og hreinlætistækjum. Setjum upp
Danfoss-kerfi. Gerum bindandi verðtilboð.
Upplýsingar eftir kl. 18 í síma 35145.
Vélhjólaíþrótta-
klúbburinn tilkynnir
Fyrsta mótorkrosskeppni ársins verður haldin á
morgun laugardag kl. 14 við Sandfell í
Þrengslum.
Keppnin gefur stig til íslandsmeistara og koma
allir þekktustu mótorkrosskappar landsins. Þar
að auki gefst nú 15 ára unglingum tækifæri til að
keppa á 125 cc hjólum, 16 ára á 250 cc hjólum
og er það nýjung Söguklúbbsins.
Keppnin verður með lokuðu skipulagi en öllum er
heimilt að koma og horfa á.
Skemmtileg og hörkuspennandi keppni.
Keppendur mæti stundvíslega kl. 12.
Stjórnin.
Þakpappalagnir
s.f.
Tökum að okkur pappalagnir í heitt Asfalt á flöt
þök. Þéttum einnig steyptarþakrennurog sprung-
ur á útveggjum húsa.
Þakpappalagnir s.f.
sími 91-20808 og 91-23280