NT - 21.05.1984, Page 23
Mánudagur 21. maí 1984 23
Spánn:
Atján kíló*
metra löng
mannkeðja
Barcelona-Rcuter
■ Yfir 20.000 mannsmynduðu
átján kílómetra langa keðju á
götum Barcelonaborgar í gær til
að krefjast úrsagnar Spánar úr
NATO.
Mótmæli þessi höfðu stuðn-
ing æskulýðsfylkinga Sósialista-
flokksins, Kommúnistaflokks-
ins, verkalýðsfélaga og friðar-
hreyfinga, að sögn skipuleggj-
enda. Mótmælin fóru friðsam-
lega fram.
Felipe Gonsalez, forsætisráð-
herra Spánar, hefur nýlega
gefið í skyn að hann styðji
áframhaldandi veru Spánar í
NATO.
Sviss:
Bankaleynd-
inórofin
Zurích-Reuter.
■ Svissneskir kjósendur
höfnuðu í gær tillögum um að
gefa opinberum aðilum heimild
til að skoða bankainnistæður
einstaklinga í svissneskum
bönkum.
Þrir af hverjum fjórum kjós-
endum vildu halda bankaleynd-
inni áfram. Fjármálamenn
þurfa því ekki að kvíða því að
stjórnvöld geri athugasemdir
við skattaframtöl þeirra vegna
hárra bankainnistæðna í náinni
framtíð frekar en hingað til.
Bankar í Sviss höfðu spáð því
að væri bankaleyndin rofin
myndu milljarðar dollara í eigu
útlendinga streyma úr landi þar
sem þá hefðu yfirvöld í öðrum
löndum einnig möguleika á því
að athuga innistæður eigin
þegna í svissnesku bönkunum.
■ Leiðtogar danskra strætisvagnabflstjóra sem nú eru í verkfalli
héldu í gær fund með blaðamönnum þar sem þeir skýrðu frá því að
þeir ætluðu að grípa til enn harðari aðgerða í dag til þess að ná fram
kröfum sínum.
■ Danskir strætisvagnar hafa staðið hreyfingarlausir í meira en
eina viku á stæðum sínum.
Símamvnd- Polfolo
Kaupmannahöfn:
■ Verkfall danskra strætis-
vagnabflstjóra í Kaupmanna-
höfn stóð ennþá yfir í gærdag og
var búist við miklum umferðar-
trullunum vegna þess í dag.
Orsök verkfallsins mun vera
sú krafa 3500 strætisvagnabíl-
stjóra í Kaupmannahöfn að sjö
starfsfélagar þeirra gangi aftur í
verkalýðsfélagið, en sjömenn-
ingarnir gengu úr félaginu til að
mótmæla því að hluti launa
þeirra gengi sem greiðsla til
Filipseyjar:
Kosningar auka á vandamál
sósíaldemókrata í gegnurn
danska alþýðusambandið.
Bílstjórarnir hafa hótað því
að stöðva í dag alla unrferð á
helstu umferðaræðum í Kaup-
mannahöfn og stöðva einnig
lestarsamgöngur þar ef sjö-
menningarnir ganga ekki aftur í
verkalýðsfélagið eða verði rekn-
ir ella. En dönsk bæjaryfirvöld
hafa ekki viljað reka þá þótt
þeir flafi gengið úr verkalýðsfé-
laginu.
UMFERD STODVAST
Skálm-
öld á
Indlandi
Nýja Delhi-Reuter
■ Ekkert lát er á of-
beldi og morðum í hin-
um ýmsu héruðum
lndlands. Tilraunir
stjórnarinnar til að bera
klæði á vopnin í Punj-
abfylki mistókust fyrir
rúmri viku þegar öfga-
sinnaðir aðskiinaðar-
sinnar í röðum Sikha
myrtu virtan ritstjóra
þar sem var Hindúi.
Rétt fyrir helgi hófust
svo hörð átök milli mú-
hameðstrúarmanna og
Hindúa í Maharashtra-
fylki en þar er Bombay
fylkishöfuðborg. Einnig
hefur fjöldi manns særst
í óeirðum á ýmsum
öðrum stöðum á Ind-
landi þar sem nú fara
fram aukakosningar.
Strax og óeirðirnar
hófust í Maharashtra-
fylki sendu yfirvöld
vopnaða hermenn til að
aðstoða lögregluna við
að bægja Hindúum og
múhameðstrúar-
mönnum þar í sundur.
En það dugði samt ekki
til og í gær höfðu a.m.k.
75 manns látið lífið í
þessum óeirðum. Tutt-
ugu af þeim sem létust
höföu verið stungnir
með hnífum. Síðan
hafði líkunum verið
staflað saman í hús sem
morðingjarnirbrenndu.
Óeirðirnar eru taldar
hafa byrjað vegna þess
aö múhameðstrúar-
menn höfðu móðgað
Hindúa með því að raða
skóm sínum í kringum
mynd af hægrisinnuðum
Hindúaleiðtoga þannig
að tærnar vísuðu inn að
myndinni en slíkt er tal-
ið hin versta svívirðing
á Indlandi.
■ Kosningarnar á Filipseyjum
fyrir viku virðast ekki hafa leyst
nein vandamál. Þvert á móti er
nú almenn ólga og óánægja
almennings með stjórnvöld nú
enn greinilegri en áður.
Þrátt fyrir ákaflega erfið skil-
yrði sýndu kosningarnar mikið
fylgi stjórnarandstöðunnar sem
hefur fengið aukið sjálfstraust
fyrir bragðið. Þegar líða tók á
talninguna virtist Marcosi
skyndilega aukast fylgi en áður
hafði hægt mjög á talningunni.
Sjórnarandstæðingar eru sann-
færðir um að fylgisaukning Mar-
cosar stafi af kosningasvindli og
til mikilla óeirða hefur komið á
mörgum stöðum í nágrenni taln-
ingastaða. Um helgina tóku
þannig um 50.000 manns þátt í
mótmælum í Cebu. Margir
menn hafa látið lífið í þessum
óeirðum.
■ Þessi mynd var tekin í gær
við mótmælaaðgerðir á Filips-
eyjum þar sem kjósendur ásaka
stjórnvöld fyrir kosningasvik.
Símamynd-POLFOTO
Bólivía:
Hungurverkfall bankamanna
La Paz-Reuter
■ Um 200 starfsmenn við
Seðlabanka Bólivíu hófu hung-
urverkfall í gær til að mótmæla
tilraunum stjórnvalda til að
Umsjon:Oddur Olalsson ogRagnar Baldursson
brjóta verkfall bankamanna á
bak aftur.
Fyrir helgi tók vopnuð lög-
regla sér stöðu fyrir utan seðla-
bankann þar sem starfsmenn
höfðu verið í verkfalli í meira
en mánuð. Lýsir stjórnin því
yfir að þeir starfsmenn sem
óskuðu að snúa aftur til vinnu
fengju vernd lögreglu en öðrum
yrði sagt upp.
Þessar harkalegu aðgerðir
stjórnvalda stafa m.a. af því að
yfirstjórn hersins hefur lýst því
yfir að herinn myndi ekki hika
við að grípa í taumana ef með
þyrfti til að koma á friði í
landinu.
Verkföll bankamanna byrj-
uðu vegna þess að þeir vildu
ekki frekar en aðrir verkamenn
í landinu sætta sig við 75%
gengisfellingu sem stjórnin
hafði ákveðið og verðhækkun-
um sem talið var að myndu
nema um 600 prósentum.
VIPPU-
bílskúrshurðin
Lagerstæröir 210 x 270 cm,
aðrar stærðir eru smíðaðar eftir beiðni
Gluggasmiðjan Síðumúla 20
Reykjavík - Símar 38220 og 81080
framlfiðsln 05 sala á psm kpdum
stdnhellna-inílliwggjalidlna-drol'asfdiis
auk holsteíns í úkjgi
Sími 99-3104 SyrarbakKa