NT - 21.05.1984, Side 25
[U'
Mánudagur 21. maf 1984 25
Utlönd
Macao:
Nýlenda á nýrri leið
■ Ýmsar breytingar eru nú á
döfinni á stjórnarfyrirkomulagi
á Macao en Macao er rúmlega
300.000 manna nýlenda Portú-
gala í Suöur-Kína skammt frá
Hongkong.
Eftir byltinguna í Portúgal
fyrir tíu árum er sagt að ráða-
menn þar hafi viljað skila Kín-
verjum aftur Macao enda hafa
Kínverjar ávallt litið svo á að
Macao væri á kínversku land-
svæði þótt hún væri undir tíma-
bundinni stjórn Portúgala. En
Kínverjar vildu þá helst engu
breyta og báðu Potrúgali um að
halda áfram að stjórna nýlend-
unni því að þeir voru hræddir
um að snöggar breytingar á
Macao gætu haft slæm áhrif í
Hongkong. Portúgalskur land-
stjóri hefur þannig haldið áfram
að vera æðsti maður á Macao en
hann.tekur samt engar mikil-
vægar ákvarðanir nema að ráð-
færa sig fyrst við kínversk yfir-
völd.
Núverandi landstjóri á Macao
heitir Almeida e Costa. Hann
hefur sagt að hann vilji auka
mjög lýðræði í nýlendunni en
hingað til hefur það verið af
ákaflega skornum skammti.
Aðeins 3000 íbúar á Macao af
■ Almeida e Costa, landstjóri
Portúgala á Macao. Hann vill
gjarnan auka lýöræði þar smám
saman.
þortúgölskum uppruna hafa
haft kosningarétt til löggjafar-
þings. Landstjórinn vill nú
breyta þessu og veita kínversk-
um íbúum svæðisins sem eru
rétt um 300.000 kosningarétt til
þingsins, eða a.m.k. gefa þeim
möguleika á því að kjósa hluta
af fulltrúunum til þess.
Yfirvöld í Peking voru í fyrstu
nokkuð treg til að styðja hug-
myndir portúgalska landstjór-
■ Kortaf
Macao.
Macao nær
yfir lítinn
skaga í Suöur-
Kína og tvær
eyjur skammt
frá
Hongkong.
Þar eru mikil
landþrengsli
og eru m.a.
uppi
hugmyndir
um að fylla
upp í svæðið
á milli Taipa-
eyju og
Coloane-
ans í Macao um aukið lýðræði
vegna þess að þau töldu að
aukið lýðræði þar gæti valdið
óstöðugleika sem aftur gæti haft
slæni áhrif í Hongkong en þar
fylgjast menn grannt með þróun
mála á Macao. En Kínverjar
hafa nú skipt urn skoðun og
telja að nokkur aukning lýðræð-
is á Macao séaf hinu góða. Þessi
stefnubreyting Kínverja stafar
m.a. af því að þeir vilja sann-
færa íbúa í Hongkong um að
þeini sé alvara í tillögum sínum
urn að veita Hongkongbúum
sjálfstjórn eftir að Bretar láta af
stjórn Hongkong eftir 13 ár.
Aukin sjálfstjórn íbúa á Macao
og lýðræði þar er vísbending um
hugsanlega framtíð Hongkong.
En breytingarnar mega ekki
vera of örar að áliti Kínverja.
Kínverskir íbúar Macao munu
aðeins fá að kjósa hluta
þingmanna á löggjafarþing ný-
lendunnar síðar í ár en aðrir
þingmenn verða tilnefndir af
ýmsum félögum og samtökum
eins og hingað til hefur tíðkast.
íbúar á Macao sýna heldur eng-
an óhemju áhuga fyrir auknu
lýðræði. Þann fyrsta maí síðast-
liðin höfðu aðeins 9500 manns
látið skrá sig á kjörskrá en þá
hafði kjörskráning staðið í tvær
vikur og henni á að ljúka nú um
þessa helgi.
Dúkkuvagnar og kerrur
í miklu úrvali
Einnig:
Stignir traktorar.
Hjólbörur, 5 tegundir.
Stórir vörubílar.
Póstsendum
Kreditkortaþjónusta
Leikfanga
húsið Simi 14806
SkólavörðustíglO
Nokkur ord
um Ítalíu, Rimini, sumarið,
sólina og pig
*
i
talía býður þér upp á marga góða sumardvalarstaði en fáa jafn fullkomna og Rimini, hina
fornu borg við Adríahafið.
Hér gengur þú að öllu vísu; sól og ylvolgum sjó, aðgrunnri
og breiðri strönd, glaðværu mannlífí, frábærum
veitingastöðum og vandaðri gistiaðstöðu.
Þú finnur fljótlega að margt er betra en þú átt að
venjast annars staðar, sumt miklu betra.
Áþreifanlegastur er munurinn á leikaðstöðunni fyrir
börnin, þar sem barnafararstjórinn er í broddi fylkingar.
Góð staðsetning Rimini gagnvart mörgum stórbrotnustu
stöðum Evrópu - Feneyjum, Flórens, Róm - veitir þér að
auki möguleika á skoðunarferðum sem gera Riminiferð að
öðruogmeira en venjulegri sólarferð.
Við minnum þig á að heppni hefur lítið með sólarlandaferðir að gera. Góður áfangastaður
og gott skipulag skiptir þar sköpum. Ef þú hins vegar dregur úr hömlu að panta Riminiferð
sumarsins gætir þú orðið of seinn - og það væri ljóta óheppnm!
Gatteo a Mare Sa vignano a Mare
San Mauro a Mare Bellarta - Igea Martna
Mluno Adriatlco Cervla • Mllano Marlttlma
Udl di Comacchio Ravenna e le Sue Marine
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899