NT - 21.05.1984, Síða 26
TOYOTA
s,
miÐUM SNEKKJUDRIF —
TANNHJÓL — DRÁTTAR-
KÚLUR Á BÍLA — HLUTI
FISKVINNSL U VÉLAR
VÖKVASTROKKA
OFL.
VÉLSMIÐJA rjÖNUHRAUNHO.HAFNARFIRO,
Mánudagur 21. maí 1984 26
Taiwan:
Eftirlit með eftirlíkingum
Taipei-Reuter.
■ Stjórnvöld á Taiwan hafa nú loksins
látið undan alþjóölegum þrýstingi og
hafíö herferð tii að hefta framleiðslu og
dreifíngu á ólöglegum eftirlíkingum á
erlendum iðnaðarvarningi.
Taiwanska lögreglan hefur að undan-
förnu gert upptækt mikið magn
varnings, sem var framleiddur ólöglega
undir erlendum vörumerkjum í svoköll-
uðum „sjóræningjaverksmiðjum“.
Heildarverðmæti þessa varnings mun
nema mörgum milljónum bandaríkja-
dala. Meðal annars hefur lögreglan gert
upptæk meira en 50.000 úr, sem voru
framleidd ólöglega undir vörumerkjun-
um Rolex, Longines og Cartier. Þessi úr
kosta aðeins um 40 bandaríkjadali séu
þau keypt á Taiwan, en í Bandaríkjun-
um eru þau seld fyrir 1000-2000 dollara
eins og ósvikin úr af þessum gerðum.
Lögreglunni kom á óvart hvað sjó-
ræningjaverksmiðjurnar voru margar
fullkomnar og hvað vörurnar, sem þær
framleiddu voru vel gerðar. Sumar úra-
verksmiðjurnar virtust í fáu standa sviss-
neskum úraverksmiðjum að baki.
Framleiðsla á eftirlíkingum á frægum
tegundum erlendra úra, sjálfblekunga,
fatnaðs, bóka og fleiri varnings hefur á
undanförnum árum verið mikilvægur
hluti iðnaðarframleiðslu á Taiwan.
Þannig er t.d. talið að á hverju ári seljist
þar tvær til þrjár milljónir úra undir
fölskum vörumerkjum.
Mikið umfang framleiðslu á eftirlík-
ingum varð til þess að dagblöð á Taiwan
snerust á móti hugmyndum yfirvalda
um strangara eftirlit með framleiðslunni
fyrir tveimur árum. En síðan hafa
viðhorf manna breyst og nú fagna
fjölmiðlar herferðinni gegn eftirlíking-
unum. Taiwanbúar hafa gert sér það
Ijóst að þeim er nauðsyn á að skapa sér
orð fyrir gæði eigin framleiðslu og
heiðarleika í viðskiptum ef þeir ætla að
aflað sér öruggra markaða erlendis fyrir
iðnaðarframleiðslu sína.
Þrýstingur frá Bandaríkjunum hefur
iíka haft sitt að segja því að verslun
Bandaríkjamanna við Taiwanbúa er um
16 milljarðar dollara á ári.
Nú hefur stjórnin á Taiwan einnig
undirritað samkomulag við Breta um að
virða höfundarrétt á breskum bókum
sem prentaðar verði á Taiwan en Tai-
wan hefur hingað til ekki virt alþjóða-
reglur um verndun höfundarréttar. Þar
hefur verið hægt að kaupa ódýrar útgáf-
ur af dýrum erlendum bókum en nú
verður væntanlega bundinn endir á það.
Taiwanskir embættismenn kvarta
annars yfir því að þótt Bandaríkjamenn
og aðrir útlendingar krefjist verndunar
á vörumerkjum og höfundarrétti þá
sækist þeir sjálfir mikið eftir eftirlíking-
um þegar þeir komi í heimsókn til
Taiwans. Embættismaður nokkur á
Taiwan sagði þannig að bandarískir
þingmenn spyrðu sig oft að því hvar þeir
gætu keypt ódýrar eftirlíkingar. Þá
þættist hann ekki skilja hvað um væri að
ræða því að hvernig er hægt að viður-
kenna umfangsmikla verslun með eftir-
líkingar samtímis því sem taiwönsk
yfirvöld reyna að verða við óskum
erlendis frá um að reyna að draga úr
„sjóræningjaframleiðslunni“.
TVEIR GLÆSIVAGNAR
TIL SÖLU
COROLLA COUPE
Sportbíll meðeinstaka
aksturseiginleika
ogútlitsem vekur
aðdáun
Úrvals stýris-ogfjaðrabúnaður, 5 gíra skipting, læst
mismunadrif og lítil loftmótstaða(0.35cd) gera Corolla
Coupe sérlega lipran og þægilegan í akstri.
Vélin er að mörgu leyti sérstök.
Hún er létt, tveggja knastása, 16
ventla með rafeindastýrðri bensín-
innspýtingu og kveikju.
Oldsmobile 98 Regency
Árgerö 1981. Ekinn 113.000 km
HOFDABAKKA 9 SIMI 687300 GÆDAEFTIRLIT MED GÆDAVORUM
Corolla Coupe GT 2 dyra 418.000.-
Corolla Coupe GT 3 dyra 430.000.-
Buick Electra Limited
Árgerö 1981. Ekinn 111.000 km
FÁNASTENGUR
Haspo
t nijTtljTT'
Eigum til afgreiðslu þýskar ál -
fánastengur 6,8 og 10 metra
Á hagstæðu verði
Sölustaðir: Sambandið
Byggingávörur
Suðurlandsbraut 32
og kaupfélög víða um land
Umboð:
Innflutningsdeild Sambandsins
Búsáhöld - Holtagöróum - Sími 812 66
Corolla Coupe er óvenjulegur bíll á einstöku verði.
Nýbýlavegi 8 200 Kópavogi S. 91-44144