NT - 21.05.1984, Side 28
Mánudagur 21. maí 1984 28
Meistaratianin
hjá Ásqejri
næstum í höfn
HSV steinlá á heimavelli fyrir Frankfurt - Bayern tapaði stigi.
hclgarinnar urðu
Frá Gísla A. Gunnlaugssyni fréltamanni NT
í V-Þýskalandi:
■ Línurnar skýrðust heldur
betur í v-þýsku Búndeslígunni
í knattspvrnu á laugardaginn
var. Eftir mikla spennu í knatt-
spyrnuáhorfendum og áhang-
endum í V-Þýskalandi síðast-
liðna viku urðu óvænt úrslit á
laugardag til þess að VFB Stutt-
gart er nú þegar raunverulega
orðinn v-þýskur meistari, til
þess að því verði breytt, þarf
Hamborg að vinna Stuttgart
með a.m.k. fímm marka mun á
heimavelli Stuttgart um næstu
helgi, nokkuð sem cnginn telur
mögulegt.
■ Ásgeir Sigurvinsson skoraði glæsimark og kom Stuttgart af stað í leiknum gegn Bremen. Sigurinn
var sæt hefnd fyrir það þegar Bremen sló Stuttgart út úr bikarkeppninni í vetur. ----
Glæsimark Ásgeirs kom
Stuttgart á bragðið!
- Og liðið vann verðskuldaðan sigur í Bremen
Frá Gísla Á. Gunnlauessvni
frétlamanni NT í V-Þjskalandi:
■ VFB Stuttgart, með Asgeir
Sigurvinsson í fararbroddi,
vann frækinn útisigur á Werder
Bremen um helgina. Þessi sigur
fleytir Stuttgart langleiðina til
meistaratitilsins þýska, úrslit
urðu þau í dcildinni, að Stutt-
gart er nær öruggt með
meistaratignina.
Lið Bremen varð fyrir því
áfalli fyrir leikinn, að fjórir af
fastamönnum liðsins gátu ekki
leikið með vegna meiðsla og
veikinda.
Leikurinn fór mjög vel af
stað. Fyrstu 10 mínúturleiksins
sótti Stuttgart nær stanslaust en
Bremen átti sínar fyrstu sóknir,
og á næstu 20 mínútunum áttu
þeir mörg allgóð marktækifæri.
Það voru einkum Reinders og
Völler sem gerðu usla við mark
Stuttgart, sem á nýjan leik var
varið af Roleder, sem verið
hefur frá í 6 vikur lengst vegna
meiðsla er hann hlaut í sam-
stuði við Karl-Heinz Rummen-
igge. Roleder sýndi það og
sannaði í þessum feik hversu
mikilvægur hann er liði sínu,
hann náði að verja stórglæsi-
lega hvað eftir annað, og gerði
aldrei mistök í leiknum. Besta
tækifæri fyrri hálfleiks átti án
efa Völler sem vippaði yfir
Roleder í þverslá StuttgarL
marksins á 30. mínútu,
knötturinn kom út aftur, yfir
Roleder, og Völler skallaði
knöttinn gkæsilega en með ein-
hverjum óskiljanlegum hætti
tókst Rolederað berjaknöttinn
yfir í horn.
Asgeir Sigurvinsson átti
mjög gott marktækifæri í lok
fyrri hálfleiks, er Allgöwer
skallaði knöttinn laglega inn í
teig, en Ásgeir hitti knöttinn
illa, og laust skot hans var varið
af Burdenski alveg út við stöng.
í síðari hálfleik vargreinilegt
að Stuttgart liðið var mun
sterkara, og greinilegt að ekki
var spilað upp á jafntefli. Fyrir-
fram hafði verið búist við að
Stuttgart mundi reyna að ná
jafntefli 1-1 eða 0-0 í Bremen,
en þjálfari liðsins var ekki á
þeim buxunum.
Það var þó ekki fyrr en á 62.
mínútu, aðÁsgeirSigurvinsson
gerði fyrsta mark leiksins, og
var það sannarlega glæsilegt.
Knötturinn barst til Ásgeirs,
rétt utan vítateigs Bremen, Ás-
geir þurfti að renna sér fyrir
hann, og lenti þá í návígi við
Bruno Pezzey, austurríska
landsliðsmanninn í liði
Bremen. Þeir lágu báðir á
jörðinni, én Ásgeir varð fyrri á
fætur, lék í átt að vítateigshorn-
inu, og af 20 metra færi sendi
hann þrumuskot upp í vinstra
markhornið. Sannarlega stór-
glæsilegt skot, sem Burdenski
átti ekki möguleika á að verja.
Eftir þetta sótti Stuttgart án
afláts og Allgöwer og Corne-
liusson áttu góð færi á að gera
út um leikinn. Svíinn skaut
m.a. í stöng.
Bremen tókst að jafna 72.
mínútu, Möhlmann skoraði
með glæsilegum skalla eftir
aukaspyrnu Ordenewitz. Nú
leit út fyrir jafntefli, en Stutt-
gart var ekki á þeim buxunum,
og sótti án afláts síðustu 18
mínútur leiksins. Sigurmarkið
skoraði Ohlicher á 83. mínútu
ettir að Burdenski náði ekki að
halda fastri aukaspyrnu Bernd
Förster.
Eftir leikinn sagði þjálfari
Bremen, Otto Wehagel, að
sigur Stuttgart hefði verið
sanngjarn, liðið hefði sótt mun
meira allan leikinn, leikmenn
sínir hafi barist hetjulega þrátt
fyrir að þeir hafi verið án
margra fastra leikmanna.
Helniut Benthaus sagði að
þrátt fyrir meiðsli í-liði Bremen
væri alltaf erfitt að leika þar,
Stuttgart hefði tapað þar
undanfarið, og hann væri
ánægður með úrslitin. Að
spurður hvort hann teldi meist-
aratitil Stuttgart heppnissigur,
byggðan á óvæntum úrslitum í
öðrum leikjum, sagði hann:
„Nei, við höfum verið efstir á
töflunni oftast allra liða í vetur.
Gengi okkar hefur verið hvað
jafnast, við höfum tapað fæst-
um leikjum, einungis fjórum
en HSV og Gladbach 7, þannig
má segja að við séum vel að því
komnir að verða meistarar, en
ég vil taka það fram að við
verðum ekki meistarar fyrr en
á laugardag, keppninni er ekki
lokið fyrr en leiknum við HSV
er lokið, og hann viljum við
auðvitað vinna sem nýir þýska-
landsmeistar,“ sagði Benthaus.
Urslit
þessi:
Offenbach-Braunschweig ...... 1-2
Dortmund-Bayern.............. 1-1
Leverkusen-Gladbach.......... 1-2
HSV-Frankfurt................ 0-2
kaiserslautem-Niirnberg...... 4-2
Bielefeld-Bochum ............ 2-1
Diisseldorf-Mannheim ........ 1-2
Urdingen-Köln................ 4-6
Bremen-Stuttgart............. 1-2
HSV-Frankfurt 0-2
Margir af leikmönnum HSV
töldu að leikurina við Frank-
furt væri auðunninn. Samt fékk
liðið kalda vatnsgusu framan í
sig strax á 9. mínútu, þegar
Falkenmayer skoraði af um
25 metra færi með glæsiskoti;
FISV. sótti stíft eftir þetta, án
þess að skapa færi. Frankfurt
lék skynsamlega vörn, og beitti
stórhættulegum skyndisókn-
um, svo að ekki hefði verið
óeðlilegt að staðan hefði verið
2 til 3-0 í hálfleik þeim í hag, og
undir þetta tók þjálfarinn Ernst
Happel í sjónvarpsþætti í fyrra-
kvöld.
í síðari hálfleik kom Schatz-
schneider inn á, en þrátt fyrir að
meira bit kæmi í sóknina var
HSV samt klaufalegt í teignum.
Besta færið í síðari hálfleik átti
Magath, er hann skallaði í
stöngina eftir fyrirgjöf frá
Kaltz.
Rothöggið í leiknum fékk
HSV á síðustu mínútunni, þeg-
?r Svíinn Svensson brunaði
einn í átt að marki HSV,
og Jakobs hindraði hann ólög-
lega með höndum. Vítaspyrna
dæmd, og Falkenmayer skor-
aði að nýju. 2-0 og meistara-
draumar HSV væntanlega úr
sögunni.
Dortmund-Bayern 1-1
Fyrir leikinn átti Bayern
stærðfræðilegan möguleika á
Inter kaupir
Brady
■ Liam Brady
inun leika með
Karli-Heinz
Rummenigge í
Mílanó.
Frá Jóni Ólafssyni frcttamanni NT i Englandi:
■ Nú er komið á hreint að írinn
Liam Brady verður áfram í ítalskri
knattspyrnu. Hann mun fara til Inter
Mílanó, og leika þar með Karli-Heinz
Rummenigge.
Inter Mílanó verður þá að selja
þjóðvcrjann Hansa Múller, og mun
hann að líkindum fara til Verona, í
skiptum fyrir miðvörðinn Tricella,
eins og NT skýrði frá fyrir helgi.
að verða meistari, miðað við að
HSV og Stuttgart mundu bæði
tapa tveimur stigum, í þeim
leikjum sem eftir væru. Leikur
liðsins gegn Dortmund var
hvergi nærri sannfærandi, en
samt var Bayern afgerandi
betra í fyrri hálfleik. Karl-
Heinz Rummenigge skapaði
mikla hættu, lék aftarlega og
byggði mikið upp, sérstaklega
mataði hann Höness og Micha-
el bróður sinn á góðum send-
ingum. í hálfleik var staðan
0-0, en á 55. mínútu sýndi
Karl-Heinz hálfgerð sirkus-
brögð í vítateignum, lék á
hvern andstæðinginn á fætur
öðrum, og gaf að lokum glæsi-
lega á kollinn á Nachtwei sem
skallaði óverjandi bolta í netið
hjá Dortmund. Þar stóð mark-
vörðurinn Immel, sem átti al-
geran heimsklassaleik á laugar-
dag. Eftir þetta var talið að
sigur Bayern væri örugglega í
höfn, liðið sótti án afláts, og
sóknarlotur Dortmund voru
hálfvandræðalegar. En Tyrk-
inn Keser kom inn á á 59. mín.,
og það breytti leiknum. Keser
jafnaði leikinn á 79. mín. eftir
stórskemmtilegan samleik við
Wegmann.
Leverkusen-Gladbach 1-2
Afburðalélegur leikur ná-
grannanna. Staðan í hálfleik
var 1-0 eftir að Hannes skoraði
fyrir Mönchengladbach, en
Norðmaðurinn Herlovsen í liði
Gladbach skoraði sjálfsmark á
79. mínútu. Á lokamínútunni
kom líklega upp einkennileg-
asta staða í Búndeslígunni í
vetur, þegar markvörður Lev-
erkusen, Vollborn, hélt að
dómarinn hefði flautað auka-
spyrnu á Gladbach inn í víta-
teig sínum. Hann lagði knött-
inn á jörðina, stóð þar rólegur
þegar Matheus kom aðvífandi,
tók knöttinn og spyrnti í netið,
mark. Dómarinn hafði ekki
flautað, heldur einhver í áhorf-
endaskaranum. 2-1 fyrir
Mönchengladbach, en liðið á
enga möguleika á meistaratitl-
inum, til þess þarf liðið að
vinna upp 18 marka forystu
Stuttgart, færi svo að Stuttgart
tapaði fyrir HSV. Línurnar um
UEFA-sætin skýrðust um helg-
ina með þessu tapi Leverkusen,
Köln nær nú líklega síðasta
UEFA.
Úrdingen-Köln 4-6
Mikill markaleikur, og leikur
hinna lélegu varna. Staðan í
hálfleik var 3-0 fyrir Köln.
Mörkin skoruðu Allofs 3, Litt-
barski 2 og Lefkes 1. Mörk
Úrdingen skoruðu Gulich,
Feilder, Jusuf og Gulich aftur.
Staðan
nú þessi:
Stuttgart ..
Hamb. SV .
Gladbach ..
Munchen ..
Bremen ...
Köln.......
Leverkusen
Bielefeld ..
Bruns......
Úrdingen .... 33 12
Kaisersl.....33 12
Diisseldorf .. 33 11
Mannheim
Dortmund
Búndesligunm er
■ Pierre Littbarski skoraði tvö mörk fyrir Köln gegn Úrdingen.
Sigur Kölnar þar þýðir að líkindum sæti í UEFA keppni fyrir liðið.
Bochum..... 33 9 8 16 52-69
Frankfurt ... 33 6 13 14 42-61
Offenbach ... 33 7 5 21 47-10019
Nurnberg ... 33 6 2 25 38-83 14