NT - 28.06.1984, Síða 2
M Fjögur systkini voru á Jóns-
messudag fermd saman í
Vopnafjarðarkirkju, sem ætla
má að sé fremur óvenjulegt að
ekki sé meira sagt. Aðeins rúm-
lega 21 mánuður skilur að hið
elsta þessara systkina og það
yngsta, en þau eru: Kristrún
fædd 16. maí 1969, tvíburarnir
Ragnar og Björgvin fæddir 24.
mars 1970 og Anna fædd 27.
febrúar 1971.
Foreldrar frermingabarnanna
eru hjónin á Deildarfelli, Anton
Gunnarsson og Guðný Ragn-
arsdóttir. Sjálf er Guðný raunar
þríburi og voru systur hennar
Kristbjörg og Ragnheiður við
ferminguna, en þær búa nú í
Jökulsárhlíð oguppi á Jökuldal.
„Ég hafði alla tíð gert ráð
fyrir að þau fermdust öll saman
því það var svo stutt á milli
þeirra. Ég geymdi að ferma þá
elstu, sem var ekki nema rétt að
verða 15 ára, og fékk svo undan-
þágu fyrir þá yngstu. Ég held
líka að þetta geti verið gaman
fyrir þau sjálf og þægilegra fyrir
mig að þurfa ekki að standa í
þessu ár eftir ár. Þetta var líka
reglulega skemmtilegt", sagði
Guðný í samtali við NT.
Ekki vildi Guðný gera mikið
úr fyrirhöfn við undirbúning
fjögurra fermingarbarna - t.d.
■ Fermingarsystkinin fjögur sem litli aldursmunurinn er á. Kristín
15 ára, tvíburarnir Ragnar og Björgvin 14 ára, og Anna 12 ára, en
aðeins 21 mánuður er á milli þess elsta og hins yngsta. NT-mynd: mk
Lágtkaup
■ Maður nokkur á Vest-
fjörðum komst nýlega í þá
aðstöðu að þurfa að ráða sér
verkamenn. Þar eð hann var
ekki verulega vel að sér um
launagreiðslur og þvíumlíkt,
hringdi hann á skrifstofu
verkalýðsfélagsins og spurð-
ist fyrir um það hvað tíðkað-
ist að borga mönnum í kaup
um þessar mundir.
Stúlkan sem varð fyrir
svörum, spurðist fyrir um
hvers konar vinnu væri um
að ræða, fletti síðan upp á
viðeigandi kauptaxta og gaf
manninum upp tölurnar. Að
því loknu varð löng þögn í
símanum, en síðan sagði
maðurinn: „Ég hafði nú eig-
inlega ekki hugsað mér að
ráða aumingja.
kaf í stóra málningarfötu,
sem var náttúrlega full af
fljótandi gulri málningu.
Embættismaðurinn lét þetta
ekki tefja sig, heldur mætti
galvaskur á staðinn. Var hann
síðan nefndur af viðstöddum
á flugvellinum „maðurinn
með gula fótinn“.
Viðhöldin ekki
feimnismál...
■ Framhjáhald hefur í
gegnum árin ekki verið litið
hýru auga, og allra síst af
þeim sem eru þolendur í því
sambandi. Borgnesingar
virðast líta þessi mál öðrum
augum, og e.t.v. víðsýnni
en aðrir Frónbúar. Eftirfar-
andi kafli úr fundargerð
stjórnar íþróttamiðstöðvar
Borgarness virðist benda til
þess að sveitarstjórinnn ýti
heldur undir þetta fyrirbæri
heldur en hitt, eða hvað
finnst ykkur?: Samþykkt að
nýtá gamla sóllampann sem
„viðhaldlampa" og geti fólk
keypt sér staka tíma í hann
með stuttum fyrirvara."
Viðhald virðist því vera í
góðu lagi í Borgarfirði.
Moggaskotá
ríkisstjórn?
■ Það vakti athygli í síð-
ustu viku í fréttaskýringu
Morgunblaðsins um SÍS og
meint valdabrölt þar, að
tipplað var á því að Sam-
vinnuskólinn útskrifaði að-
eins „meðalskussa" og mætti
sjá þess merki í Samvinnu-
hreyfingunni og víðar. Einn
heimildarmanna Dropa taldi
að hér væri um lúmskt skot
Morgunblaðsins á ríkis-
stjórnina að ræða, því þrír af
ráðherrum hennar eru út-
skrifaðir frá Samvinnuskól-
anum, nefnilega: Albert
Guðmundsson, fjármálaráð-
herra, Alexander Stefáns-
son, félagsmálaráðherra og
Halldór Asgrímsson, sjávar-
útvegsráðherra.
Bílaleigur
á höfuðið?
■ Eins og kom fram í NT
fyrr í vikunni hefur Fram-
leiðslueftirlit sjávarafurða
nú fest kaup á sex bifreiðum
fyrir fiskmatsmenn víðs
vegar um landið, en töluverð
blaðaskrif höfðu orðið um
bílaleigukostnað þeirra, sér-
staklega eftir að í Ijós kom
að fjölskyldur sumra fisk-
matsmannanna stóðu að
rekstri bílaleiga sem ein-
göngu grundvölluðust á við-
skiptum við Framleiðslu-
eftirlitið.
Dropum finnst gott til þess
koma að loksins skuli hafa
verið farin hin skynsama leið
að fjárfesta í bifreiðum í stað
þess að borga offjár í bíla-
leigubifreiðar. Hins vegar
spá Dropar því að bílaleigur
á.vissum stöðum úti á landi,
sérstaklega Austfjörðum,
standi höllum fæti og fari
jafnvel á höfuðið eftir þessar
síðustu ráðstafanir.
Maðurinn með
gula fótinn
■ Þegar tilkynning barst
um enska þotu með sprengju
innanborðs á Keflavíkurflug-
velli á dögunum, sem frægt
varð, hlupu margir upp til
handa og fóta.
Slökkviliðsmenn á Kefla-
víkurflugvelli voru þegar til-
kynningin barst að dunda sér
við að mála kantsteina fyrir
framan stöðina gula. Hlupu
þeir skiljanlega til í hinu
mesta hasti og skildu allt
eftir þar sem það var, máln-
ingu og pensla. Yfirmaður úr
slökkvistöðinni, klæddur í
svartan einkennisbúning
samkvæmt embætti, kom
nokkrum augnablikum síðar
út um dyrnar í hinu mesta
hasti, og í flýtinum leit hann
ekki niður fyrir fætur sér.
Steig hann því öðrum fæti á
að fata þau fyrir ferminguna og
undirbúa veislu.
- Nei, ég fór ekkert suður
vegna þessa. Fyrir stelpurnar
keypti ég efni og saumaði á þær.
Sjálf fékk ég lánaðan upphlut
til að vera í, í tilefni dagsins -
maður verður að þekkjast frá
dætrunum, sagði ég við þær,
sagði Guðný hlæjandi.
- Margir gestir? Það komu 78
manns - en þó komust ekki allir
sem boðið var. Já, já komust
allir fyrir - þetta dreifðist nú
svolítið á daginn - komu ekki
allir í einu.
Þú hefur nú þurft að baka
töluvert fyrir hátt’í 100 manns-
þegar heimafólk er meðtalið?
- Það er enn mikið eftir, svo
ég hefði nú mátt baka heldur
minna, sagði Guðný.
Það hefur ekki komið niður á
fermingargjöfunum að fólk
þurfti að kaupa fjórar í einu?
- Ekki mundi ég segja það.
Það var ægilega mikið sem
krakkarnir fengu.
Þótt vinnukraftur fjögurra
ungmenna sé að sjálfsögðu vel
þeginn á sveitaheimili nú var
Guðný spurð hvort það ekki
hafi verið erfitt í byrjun þegar
■ Næstu tvo mánuði verður
kvennaráðgjöfin lokuð vegna
sumarleyfa. Ráðgjöfin hefur
nú verið starfrækt um fimm
mánaða skeið í Kvennahúsinu
við Hallærisplanið í Reykjavík.
Frumkvæði og allan vanda að
starfseminni hafa haft konur
hún var komin með 4 börn
undir 2ja ára aldri og fyrst þar á
eftir.
- Ég læt það allt vera - maður
var ungur þá. Þau voru öll
afskaplega hraust og því lítið
um veikindi og vökunætur, og
lærðu síðan fjótt að fara að
bjarga sér sjálf. - Margar
bleyjur? Ég læt það allt vera, ég
vandi þau svo snemma.
Hvernig fannst svo Guðnýju
að vera þríburi þegar hún var
barn?
- Það var að mörgu leyti:
ágætt. En það voru margir að
koma og mynda okkur og svolít-
il læti í kringum þetta. Við
vorum einu þríburarnir í
Norður - og Suðurmúlasýslum
þangað til þríburarnir fæddust
á Djúpavogi í fyrra.
Já, við vorum samrýndar og
tvær okkar afskaplega líkar.
Það var enn verið að taka feil á
okkur núna við ferminguna á
sunnudaginn. Tvíburarnir okk-
ar eru líka afskaplega líkir,
enda eineggja, sagði Guðný.
Auk fermingarbarnanna fjög-
urra kvað hún þau hjón eiga 9
ára gamla dóttur.
sem lokið hafa námi í félagsráð-
gjöf, hjúkrunarfræði og lög-
fræði. Hefur ráðgjöfin verið
opin eitt kvöld í viku og mjög
margar konur leitað til hennar.
Kvennaráðgjöfin opnar aftur
fyrsta þriðjudag í september-
mánuði.
Úlfar Þormóðsson
ritstjóra Spegilsins:
Hvernig
er að vera
dæmdur guð-
lastari og
klámhundur?
■ „Ég tel mig óverðugan
þess að vera kominn í hóp
með dæmdum guðlöst-
urum á borð við Jesú
Krist, Sókrates og Brynj-
ólf Bjarnason. En hvað
klámið varðar, þá hef ég
nú ekki ennþá fundið það
í blaðinu og hef því ekki
orðið var við neinar til-
finningar vegna þess
dóms. Hins vegar finnst
mér þessi dómur vera slík
forneskja, að það sé til
háðungar að gefa lýðveld-
inu þetta í fertugs afmælis-
gjöf.“
-Er þetta mál nú úr
sögunni, þar sem búið er
að dæma í því í Hæsta-
rétti?
„Það eru til aðrir jarð-
neskir dómar en Hæsti-
réttur. Við erum þátttak-
endur í alþjóðlegu sam-
starfi, þar sem reknir eru
ýmsir dómar, en ég vil
ekki segja neitt um það
hér.“
- Ertu búinn að gefast
upp?
„Nei, nei. Ég hef aldrei
gefist upp. Þetta er upp-
gjöf kerfisins en ekki mín.
Það er eitt ágætt með
þennan dóm þótt undar-
legur sé, en það er hversu
vasklega þetta hefur
gengið. í dag eru 13 mán-
uðir frá því að blaðið var
stöðvað og eitt ár frá því
að saksóknari lagði fram
kæru sína. Það er ánægju-
legt ef á að fara að hafa
svo hraðan gang í saka-
málum.”
Kvennaráð-
gjöfin fer í
sumarleyfi
Vísa ísland breyt-
ir skilmálunum
■ Vísa ísland hefur ákveð-
ið að taka upp takmarkaða
sjálfsábyrgð korthafa til að
minnka áhættu þeirra ef kort
glatast og ef misnotað áður
en hvarf þess uppgötvast og
næst að tilkynna um kort-
missinn. Þá er korthafi ekki
lengur ábyrgur fyrir úttekt ef
undirskrift hans vantar á
úttektina. Þessar breytingar
eru í samræmi við þá gagn-
rýni sem fram kom í upphafi
á þá skilmála sem hand-
höfum kortanna var boðið
upp á. Hinar nýju reglur
tóku gildi frá og með degin-
um í gær og verða sendar
öllum korthöfum.
Korthafar eru nú um
16.500 og söluaðilar sem
veita Vfsa kort þjónust eru
1.076. Viðskiptavelta er-
lendis var í maí s.l. 1 milljón
dollara, samanborið við 180
þúsund í sama mánuði í
fyrra. Á heimsvísu er Vísa
langstærsta fyrirtæki heims
á sviði greiðslumiðlunar.