NT - 28.06.1984, Side 4
IU'
Fimmtudagur 28. júní 1984 4
ká k
Keppnin Sovétríkin - „Heimurinn“
Sovétmenn
hafa náð
öruggu forskoti
■ Þegar þetta er ritað er
keppnin Sovétríkin - „Heimur-
ínn" nákvæmlega hálfnuð og
hafa Sovétmenn náð tveggja
vinninga forskoti, hafa hlotið
11 vinninga gegn 9 vinningum
heimsliðsins. Eins og fram hef-
ur komið tókst alþjóðlega
skáksambandinu, FIDE, að
endurvekja þessa keppni eftir
mikið brambolt og þreifingar
um heppilegan keppnisstað.
Á endanum var London valinn
vettvangur þessarar miklu
keppni. Teflt er á 10 borðum
en hvort lið hefur á að skipa
tveimur varamönnum. Vara-
menn heimsliðsins eru þeir
Bent Larsen, sem tefldi á 1.
borði í Belgrad fyrir 14 árum,
og Murray Chandler sem
óvænt náði að deila 2. sæti á
skákmótinu í London á dög-
unum. en varamenn Sovétríkj-
anna þeir Romanishin og
Tukmakov.' Það vekur eftirtekt
að æ fleiri meiriháttar skák-
keppnir fara nú fram í heims-
borginni London og vill það
renna stoðum undir þá skoðun
margra að Lundúnaborg verði
höfuðborg skáklistarinnar á
þessum áratug.
Það er sannarlega ekki heigl-
um hent að etja kapp við
sovésku skákrisana sem mæta
með Karpov og Kasparov á 1. og
2. borði. Viktor Kortsnoj sem
margir töldu að hefði átt víst
sæti á 1. borði hefur sýnilega
kosið að tefla við Lev Poluga-
jevskí sem hefur reynst honum
heldur þægilegri andstæðingur
en snillingurinn á 1. borði,
Anatoly Karpov. Karpov hef-
ur enn sannað styrk sinn með
því að leiða einvígi sitt við
Andersson, 1 1/2:1/2. Hann
vann skákina úr I. umferð í 86
leikjum og með slíkum snilld-
artilþrifum að manni er til efs að
hann hafi teflt betur þau 9 ár
sem hann hefur borið skák-
kórónuna. Öllu minna hefur
farið fyrir Kasparov sem enn
virðist vera að æfa sig í þeirri
kúnst að tapa helst ekki, skákir
hans við Timman hafa báðar
verið harla tíðindalitlar og
keppendur fljótt slíðrað
sverðin. Það má þó mikið vera
ef þeir tefla ekki hörkuskákir í
tveim síðustu umferðunum
enda þekktir fyrir mikinn bar-
áttuvilja.
Heildarúrslitin í tveim fyrstu
umferðunum hafa orðið á
þessa leið:
1. umferð:
Sovétríkin - Heimsliðið
Karpov - Andersson 1:0
Kasparov - Timman 1/2:1/2
Polugajevskí - Kortsnoj
1/2:1/2
Smyslov - Ljubojevic 0:1
Vaganian - Ribli 1/2:2
Beljavskí - Seirawan 1:0
Tal - Nunn 1/2:1/2
Razuvajev - Húbner 1/2:1/2
Jusupov - Miles 1/2:1/2
Sokolov - Torre ÍU
5:5 2. umferð: Sovétríkin - Heimsliðið
1. borð: Karpov - Andersson 1/2:2
2. borð: Kasparov - Timman 1/2:1/2
3. borð: Polugajevskí -
Kortsnoj 0:1
4. borð: Tukmakov - Ljubojevic 1:0
5. borð: Vaganian - Ribli 1/2:1/2
6. borð: Beljavskí -
Seirawan
7. borð: Romanishin -
Nunn
8. borð: Razuvajev -
Húbner
9. borð: Jusupov -
Miles
10. borð: Sokolov -
Torre
1:0
1/2:1/2
1/2:1/2
1/2:1/2
U)
6:4
Staðan nú um miðja keppni
er ekki ósvipuð þeirri sem var
í Belgrad 1970 en þá höfðu
Sovétmenn örugga forystu,
11 1/2:8 1/2. Heimsliðið rétti
verulega úr kútnum í næstu
umferð með góðum sigri, 6:4
en þar réð mestu um að Bent
Larsen sneri tapstöðu í vinning
í viðureign sinni við Spasskí.
Eins og frægt er orðið vann
Spasskí skák þeirra úr 2. um-
ferð í aðeins 17 leikjum - með
svörtu! Eitthvað virðist skorta
á óvæntar uppákomur nú sem
voru svo tíðar í Belgrad. Snilld-
artaktar Fischers, hin ótrú-
lega viðureign Spasskís og Lar-
sens í 2. umferðsettu ævintýra-
ljóma á keppnina.
En er einhver kominn til
með að segja að menn tefli
ekki af snilld í London? Að
mínu viti hafa bæði Karpov og
Kortsnoj búið til stórkostleg
skákverk í skákum sínum við
Andersson ðg Polugajevskí.
Karpov í I. umferð, Kortsnoj
í 2. umferð. Skákir þessar
flutu yfir hafið og þó sú fyrri er
hér birtist hafi staðið í 85 leiki
stenst ég ekki mátið:
1. umferð:
1. borð:
Hvítt: Anatoly Karpov
(Sovétríkin)
Svart: Ulf Andersson
(Heimsliðiö)
Bogi - indversk vörn
1. (14 Rf6
2. c4 e6
3. Rf3 Bb4-
4. Bb2 Bxd2-
5. Dxd2 0-0
6. Rc3 d5
7. e3 Rbd7
(Byrjunarkerfi það sem
Ándersson beitir hefur reynst
honum vel þegar hann er á
höttum eftir jafntefli. Þar má
minna á skák hans við Kaspa-
rov á Olympíumótinu í Luzern
eftir aðeins 17 leiki. Ekki er að
efa að Karpov hefur rannsakað
þessa skák gaumgæfilega og
fundið sitthvað athugavert við
byrjunartaflmennsku Svíans.)
8. cxd5
(Hér breytir Karpov út af. Að
vísu lék Ándersson 7. - De7 en
það breytir þó ekki miklu.
Framhaldið varð: 8. Hdl Hd8
9. Dc2 Rbd7 10. Be3 dxc4 11.
Bxc4 c5 og Andersson jafnaði
taflið örugglega.)
8. ..exd5
9. Bd3 He8
10. 0-0 Re4
11. Dc2 Rdf6
12. b4 c6
13. Re5 Bf5
14. Ra4 g6
15. Db2 a6
16 Hfcl He7
17. Rc5 Rxc5
(Svartur hefði sennilega betur
látið þetta ógert. Hann fær nú
upp stöðu sem er gersneidd
öllu því sem heitir mótspil, en
þótt ótrúlegt kunni að hljóma
virðist Andersson una sér vel í
þvílíkum stöðum. Framvinda
mála hér eftir minnir óneitan-
lega á eina af skákum Karpovs
í einvíginu við Kortsnoj í
Baguio 1978, þá 31. í röðinni.)
18. bxc5 Bxd3
19. Bxd3 Hc8
20. Hc3 Hcc7
21. Hb3 Re8
22. De2 f6
23. Df3 Hf7
24. Kfl!
(Upphafið af stórskemmtilegu
ferðalagi kóngsins. í raun og
veru sýnir það vel hversu
Andersson á erfitt um vik að
hann getur á engan hátt bætt
vígstöðu sína þó hvíti kóngur-
inn taki sér nú gönguferð á
hendur, ferðinni er heitið til al
og síðan til baka aftur! Sitt-
hvað hefst upp úr þessu ferða-
lagi.)
24. ..Rg7
25. Ke2 Hce7
26. Kdl Dc8
27. Habl h5
28. h3 Re6
29. h4
(Loksins lætur Karpov til skar-
ar skríða. Svartur getur ein-
ungis hamlað framrás g-peðs-
ins með því að veikja sig
hroðalega á svörtu reitunum.)
35. ..Re6
36. Rd3 Rg7
37. g4 hxg4
38. Hxg4 Rh5
39. Hbl De6
40. Df3 Hg7
41. Hbgl
(Hindrar 29.
Re4)
29. ..Kh7
30. Dh3 De8
31. Kc2 Hd7
32. Kb2 Rg7
33. Rf4 Hfe7
34. Kal Df7
35. Hgl
Rg5 og 30.
. Helgi
Olafsson
skrifar
um skák
56. Df3 Hf8
57. Kfl De7
58. Ddl! De8
59. Dbl! Kh6
60. Ke2 Dd8
61. Hfg4 Hfg8
62. Kfl De8
63. Ddl De6
64. Df3 Hf7
65. Kgl Hfg7
66. a3!
(Einkennandi leikur fyrir
Karpov. í fljótu bragði virðist
tilgangurinn ekki sjáanlegur,
en Karpov vill hafa þetta peð
valdað þegar hann loksins
brýst fram með e3-e4.)
66. ..He7
67. Kh2 Hf7
68. Hf4 Kh7
69. Ddl Kh6
70. Kd3 Ke8
71. e4!
(Karpov hefur komið mönnum
sínum fyrir á þann hátt sem
best verður á kosið og opnar
nú taflið.)
71... dxe4
72. Hxe4 Dd7
73. De3t Kh7
74. He6 Hgg7
75. Hf3 f5
(Hér fór skákin í bið og létu
nokkrir frægir skákmenn þung
orð falla um stöðu svarts. Satt
er það að svartur á við geysi-
lega erfiðleika að etja en það
er allt annað en auðvelt að
sigrast á varnarmeistaranum
Andersson. Framhald skákar-
innar eins og raunar alla þessa
skák teflir Karpov af mikilli
nákvæmni.)
41. ..Hde7
42. Kb2 Kh6
43. Kc3
(Annað kóngsferðalag er hafið.
Förinni er heitið til h2, síðan
aðeins til hliðar og út á kant
aftur. Hvað á þetta eiginlega að
fyrirstilla, gæti einhver spurt.
Óg svarið sækjum við til Capa-
blanca sem lét svo um mælt á
tennisvelli í Notthingham fyrir
48 árum: „Þegar maður er með
betri stöðu og andstæðingurinn
hefur ekki snefil af mótspili er
það líklegt til árangurs að fara
sér hægt, fá sömu stöðuna upp
tvisvar (margir þeir sem viljað
hafa fylgja þessum fleygu orð-
um hafa reyndar lent í því að
fá upp sömu stöðuna þrisvar!)
og reyna þannig á þolrifin í
mótstöðumanninum. Með
hverjum leiknum aukast lík-
urnar á því að honum verði á
alvarlegt glappaskot".)
43... Df7
44. Rf4 Rxf4
45. Hxf4 He6
46. Kd2 De7
47. Ke2 Kh7
48. Kfl Kh6
49. Hg3 Kh7
50. Hfg4 D17
51. Hf4 Kh6
52. Kgl Kh7
53. Kh2 Kh6
54. Dg2 Kh7
55. Kgl He8
abcdefgh
76. h5!
(Lokahnykkurinn. Nú fyrst er
Ándersson varnarlaus.)
76. .. gxh5
77. Dh6t Kg8
78. Hfe3 Dc7t
79. Kh3 He7
(Spurning er hvort 79. - Dd7
hefði ekki veitt meira viðnám.
Annar möguleiki var 79. - Hf8
en hvítur vinnur þá með því að
leika 80. Hg3! með hótuninni
81. Hxg7t Dxg7 82. Hg6. Við
þeirri hótun á svartur enga
vörn. Leikurinn sem Anders-
son velur leiðir rakleiðis til
taps.)
80. Hxe7 Hxe7
81. Hxe7 Hxe7
82. Dg6t Kf8
83. Df6t Ke8
(Ekki 83.-Hf784. Dh8 mát.)
84. Dh8t Kd7
85. Hxe7t Kxe7
86. Dg7t
- Og hér lagði Andersson
niður vopnin. Framhaldið gæti
orðið: 86. - Kd8 87. Df8t! Kd7
88. Dxf5t Ke8 89. Dxh5t og
síðan þvingar hvítur fram
drottningaruppskipti og vinnur
á umframpeðinu.
Það er vel ráðið hjá heims-
liðinu að nýta krafta Kortsnojs
á einu af neðri borðunum og
ekki verra þegar litið er til þess
að andstæðingur hans er Lev
Polugajevskí. Á undanförnum
árum hafa þessir tveir mæst
tvívegis í áskorendakeppn-
inni. Fyrst 1977 en þá vann
Kortsnoj 8 ’AAA og síðast
1980 og enn vann Kortsnoj
að þessu sinni SVtJVj. Það er
t því ljóst að Kortsnoj hefur
isterkt tak á Polugajevskí. í
'skák þeirra sl. mánudag vann
: Kor’tsnoj glæsilegan sigur:
3. borð:
1 Hvítt: Viktor Kortsnoj
(Heimsliðið)
Svart: Lev Polugajevskí
(Sovétríkin)
Reti-byrjun
1. Rf3 Rf6
2. g3 d5
3. Bg2 c6
4. 0-0 Bf5
5. d3 h6
6. c4 e6
(6. leikur hvíts hefur áreiðan-
lega komið Polugajevskí á
óvart. Það er hugsanlegt að
Kortsnoj hafi ætlað að svara
hinum eðlilega leik 6. - dxc4
með 7. e4 Bg4 8. e5 o.s. frv.)
7. Be3
(Annar óvæntur leikur. Nú er
hiklaust best að ieika 7. -
dxc4.)
7... Be7?!
8. Db3! Dc8
9. Rc3 0-0
10. Hacl Bh7
11. cxd5 exd5
12. Re5 Bd6
13 Bd4 Bc7
14. e4! dxe4
15. dxe4 Ra6
16. Rc4 Rd7
17. a4 Rac5
18. Da3 Re6
19. Be3 Rb6
(Svartur er sannarlega ekki
öfundsverður af aðstöðu sinni
eftir gersamlega misheppnaða
byrjunartaflmennsku en svo
virðist sem Polugajevskí hafi
sést yfir næsta leik Kortsnojs
sem enn eykur á yfirburði
hvíts.)
20. Rd5! Rxc4
(Það breytir engu hvort svartur
Ieikurfyrst20.-cxd5. Eftir 21.
exd5 vinnur hvítur manninn
alltaf til baka vegna leppunar-
innar eftir c-línunni.)
21. Hxc4 Dd8
( Illskást. Svarta staðan er
hartnær vonlaus eftir 21.- cxd5
22. exd5.)
22. Rxc7 Dxc7
23. b4! De7
24. Dc3
(Biskupaparið, frumkvæði á
báðum vængjum og öflug
peðastaða, samankomið þýðir
þetta að hvítur er með strat-
gískt unnið tafl. Ekki bætti úr
skák fyrir aumingja Polu að
hann var alveg að falla á tíma.)
24. ..Hfd8
25. f4 f6
26. b5 cxbS
27. axb5 Hd7(?)
28. Hc8t! Hxc8
29. Dxc8t Rf8
30. Dc4t De6
31. Dxe6t Rxe6
32. Bxa7 Rd4
33. Bh3 Re2t
(Eða 33. - Hd6 34. Bc5 Hd8
35. Bb6 Hd6 36. Bc7 og svartur
er neyddur til að leika 36. -
Re2t.)
34. Kf2 Hd2
35. Ke3 Hb2
36. Be6t Kh8
37. Hdl! g5
38. Hd8t Kg7
39. Bc5 gxf4t
40. gxf4 Bg6
-Polugajevskí féll á tíma um
leið og hann lék þessum leik.
Augnabliksathuganir á stöð-
unni leiða í ljós að hvítur á
rakinn vinning: 41. Bf8t Kh7
42. Bg8t!Kh8 (eða 42.-Kxg8
43. Ba3t og hrókurinn fellur)
43. Ba3! og svartur tapar liði.