NT - 28.06.1984, Page 6
Sandskirkja er í fámennu byggðarlagi og því ekki stór, enda fylltist hún út úr dyrum.
og gamla fólkið skemmti sér hið besta við polka og ræla.
Fimmtudagur 28. júni 1984 6
Ingjaldssandur:
Aldraðir ísfirðingar á
ekta gömlu sveitaballi
■ Tugir aldraðra ísfirðinga
áttu ánægjulegan dagá Ingjalds-
sandi um Jónsmessu, í boði
Kiwanisklúbbsins Bása á ísa-
firði.
„Klúbburinn ákvað það strax
og liann var stofnaður árið 1976
að gera eitthvað fyrir eldri borg-
ara á ísafirði. Það byrjaði með
því að við fórum með þá inn í
Hestfjörð þetta fyrsta sumar.
Síðan hefur eitthvað svipað ver-
ið gert á hverju einasta sumri og
þetta var 9. ferðin sem við
fórum núna,“ sagði Halldór
Magnússon í Kiwanisklúbbn-
um. Þátttakendur í ferðinni
sagði hann alls hafa verið milli
80 og 90 að þessu sinni og fólkið
hafi verið afskaplega ánægt og
þakklátt fyrir ferðina.
Á Ingjaldssandi var byrjað á
að hrokafylla hlaðborð í félags-
heimilinu Vonarlandi og bjóða
ferðalöngum upp á kaffi ásamt
smurðu brauði og kökum eins
og hvern lysti. Þá var haldið í
kirkju, sem Halldórsagði raun-
ar alltaf gert í þessum ferðum ef
leiðin lægi hjá guðshúsi að líta
þar við. Sandskirkja fylltist út
úr dyrum, og allir sungu saman
sálm eftir að lesin hafði verið
bæn í upphafi. Guðmundur
Hagalínsson á Hrauni lék á
orgel kirkjunnar og Árelía Jó-
hannesdóttir húsfreyja á Ing-
jaldssandi söng einsöng.
Eftir að fólk hafði skoðað sig
um á staðnum í blíðu veðri var
aftur haldið til Vonarlands þar harmoníku. Dansinn dunaði á
sem nóg var eftir af kaffi og annan klukkutíma og sagði
kræsingum. Síðan var salur Halldór ekki annað hafa verið
ruddurogslegiðuppektagömlu séð en að fólk skemmti sér hið
sveitaballi, þar sem Hagalín besta, uns haldið var heim á leið
sonur Guðmundar lék á um kvöldið.
m
3
m
I
■ að ógleymdum kokkinum.
■ Heimamenn jögðu sitt af mörkum - Guðmundur Hagalínsson
lék á orgelið og Árelía Jóhannesdóttir söng einsöng fyrir gestina.
■ Eftir kaffi og kræsingar á Vonarlandi var slegið upp ekta gömlu sveitaballi, þar sem Hagalín sonur
Guðmundar lék á harmoníkuna...
NT-myndir Finnbogi.
Kórinn var allir kirkjugestirnir.