NT - 28.06.1984, Blaðsíða 16
Fimmtudagur 28. júní 1984 16
■ Harry Lucas, 22 ára
gamall sjómaður í Sydney
í Ástralíu, var að leggja
síðustu hönd á undirbún-
ing brúðkaups síns og
æskuástarinnar sinnar Me-
lindu, þegar hann mundi
allt í einu eftir því, að
hann átti pantaðan tíma
hjá lækni og hafði reyndar
pantað hann fyrir löngu.
Þrátt fyrir tímaskort og
taugaóstyrk, sem gjarna
fylgir því að eiga að ganga
upp að altarinu með sinni
heittelskuðu eftir nokkra
klukkutíma, ákvað hann
að fara til læknisins. Par
með hófst martröð, sem
ekki létti fyrr en tveim
sólarhringum síðar.
Læknirinn tók Harry
vel, benti honum á að fara
inn í búningsklefa og ber-
hátta sig. Þar skyldi hann
svo bíða á meðan læknir-
inn afgreiddi næsta sjúkl-
ing á undan. Harry hlýddi,
en að klukkutíma liðnum
var honum hætt að lítast á
blikuna. Hann tók í hurð-
arhúninn, en kemst þá að
raun um að hann var læst-
ur inni. Ekkert bólaði á
lækninum, sama hvernig
Harry hamaðist. Eini
glugginn á klefanum var
svo lítill, að ekki var viðlit
að komast út um hann,
enda hefði það lítið
gagnað, þar sem hann
reyndist vera á 6. hæð.
Glugginn vísaði út að
skógivöxnu svæði, þar sem
engar mannaferðir voru.
Eðlilega var Harry ekki
rótt, því að hann vissi að
óðum liði að því að Me-
linda mætti í kirkjunni og
þar yrðu 200 gestir vitni að
því að brúðguminn léti sig
vanta í sitt cigið brúð-
kaup! Auk þessara döpru
hugsana varð Harry að
láta sig hafa það að vera
matarlaus, utan hvað hann
hafði af tilviljun poka með
fáeinum hnetum í buxna-
vasanum. Til allrar ham-
ingju hafði hann aðgang
að klósetti, annars hefði
farið illa. Því að í þessari
prísund mátti Harry dúsa
til mánudagsmorguns.
Lækninum hafði nefnilega
legið svo á að komast í
helgarsiglingu með fjöl-
skyldu sinni, að hann
steingleymdi fáklædda
sjúklingnum sínum, þegar
hann dreif sig heim. úr
vinnunni.
Á meðan Harry dúsaði
þarna í einangrun og^gat
engan veginn gert vart við
sig, gekk mikið á annars
staðar í borginni. Melinda
mætti til kirkjunnar, eins
og lög gera ráð fyrir, en
þar varð hún að skýra út
fyrir gestunum 200 að því
miður gæti ekkert orðið úr
brúðkaupinu að sinni, þar
sem brúðguminn væri
týndur. Voru síðan gerðir
út leitarflokkar til að
reyna að hafa uppi á
Harry, en öll varð sú leit
árangurslaus. Ékki grun-
aði Melinda Harry sinn
um græsku, en datt helst í
hug, að hann hefði orðið
fyrir slysi. Hún úthellti
því mörgum tárum, sem
ekki þornuðu upp fyrr en
a mánudagsmorgun, þeg-
ar Harry lét það verða sitt
fyrsta verk, að ganga á
fund Melindu og segja
henni, hvað fyrir hann
hefði komið.
Nú er allt fallið' í ljúfa
löð, og brúðkaupið vænt-
anlega afstaðið.
Frítt uppihald í mánuð í Rússlandi
fyrir mynd af Debbie Reynolds!
■ Hver sá, sem á mynd af
bandarískuleikkonunni Debb-
ie Reynolds, á kost á fríu
uppihaldi hjá Marmek Mu-
stafa, veitingahúsaeiganda í
Ufra í Rússlandi.
Sá er þó hængurinn á, að
Marmek setur það að skilyrði
að hann eigi ekki sams konar
mynd fyrir. Og það getur
reynst erfitt að hafa upp á
mynd, sem hann hefur ekki
þegar komið höndum yfir. í
veitingahúsi hans hanga nefni-
lega nú þegar uppi 1700 myndir
af leikkonunni!
■ Einhverjir önnum köfn-
ustu fataframleiðendur í New
York nú eru fyrirtækið„Prot-
ective Fashion", sem þýða
mætti sem Varnartíska, og
hefur aðsetur í borgarhlutan-
um Soho. Fatnaðurinn, sem
fyrirtækið framleiðir, á það
allur sammerkt að vera skot-
heldur.
Flíkurnar eru verðlagðar á
allt frá 4000 til 8000 kr. og
meðal þeirra vinsælustu eru
anórakkar, safari jakkar,
íþróttajakkar og smóking-
jakkar. Hverja flík má fá í
þrem styrkleikum, sú ódýr-
asta á að duga gegn því, sem
þarlendir kalla „laugardags-
flugelda", þ.e.a.s. þeim
byssutegundum, sem vopn-
aðir ræningjar nota aðallega
í „starfi“ sínu.
Styrkleiki nr. 2 á að stand-
ast byssukúlur úr karftmeiri
byssum, eða 357 Magnum.
Þriðji styrkleikinn er svo ætl-
aður þeim, sem gegna sérlega
áhættusömum störfum, hvað
byssuburð áhrærir, og á að
standast vélbyssuskothríð.
Greinilega hefur verið
mikil þörf fyrir þessa tegund
fatnaðar, því að fyrsta mán-
uðinn, sem verslunin starfaði,
seldi hún skotheldan fatnað
fyrir sem svarar 800.000 kr.!
■ Debbie Reynolds er orðin 52 ára, en þó langt frá því að láta elli keriingu buga sig. Nýlega gekk
hún í hjónaband í 3. sinn, en hafði lengi verið frábitin því að gera fleiri tilraunir í þá átt, eftir
slæma reynslu, sem hún fékk af því að láta Eddie Fisher hlaupa frá sér til Elizabeth Taylor á sínum
tíma og að þurfa að borga skuldir eiginmanns nr. 2, kaupsýslumannsins Harrys Karl.
En þegar hún kynntist Richard Hamlett var sá ásetningur gleymdur og þau voru gefin saman með
pomp og prakt nýiega. Kannski hefur Marmek Mustafa ekki enn borist brúðkaupsmyndin í hendur.
m
í gini krókódílsins
■ Krókódílargetavístfengið
tannpínu, eins og aðrir þeir,
sem skaparinn hefur ætlað að
tyggja matinn með tönnunum.
Og þeir hafa ekki enn lært að
bursta tennurnar, sem gerir
hættuna á tannskemmdum enn
meiri.
Þessi krókódíll er svo lán-
samur að eiga heimili í dýra-
garði, nánar tiltekið í New
Orleans, og því stóð ekki á því
að hann fengi hjálp, þegar
augsýnilega var eitthvað bogið
við tennurnar í honum. Til var
fenginn tannlæknir, sem hlýtur
að vera hugaðri en gengur og
gerist, og gekk hann rösklcga
til verks, þó að enginn væri
tannlæknastóllinn.
Krókódíllinn var samvinnu-
jjýður, enda gerir hann sér
ljóst, að hann verður að vera í
góðu standi og geta brosað
blítt, þegar gestir fara að
flykkjast að til að sjá hann á
heimssýningunni 1984, sem
haldin er í New Orleans.
■ Sennilega hefur krókódíllinn gert sér grein fyrir að það var góður maður, sem var
að skríða á fjórum fótum í gininu á honum. A.m.k. gerði hann ekki minnstu tilraun til
að streitast við, þegar læiknirinn var að komast fyrir meinsemdina, sem gerði honum
líflð svo leitt.
Brúðguminn
læstist inni á
lækningastofu
meðan brúðurin
beið við altarið
heldur
fatnaður
selst
grimmt í
New
York