NT - 28.06.1984, Síða 23
atvinna - atvinna
Borgarneshreppur
Skrifstofustjóri
Starf skrifstofustjóra hjá Borgarneshreppi er laust
til umsóknar. Umsækjendur þurfa að geta hafið
störf sem fyrst. Umsóknir um starfið þurfa að
berast skrifstofu Borgarneshrepps fyrir 5. júlí n.k.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður.
Borgarnesi 26. júní 1984
Sveitarstjórinn í Borgarnesi
Aðstoðar-
framkvæmdastjóri
Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Tangi hf. á
Vopnafirði óskar að ráða aðstoðarframkvæmda-
stjóra. Umsóknir með upplýsingum um menntun
og starfsreynslu þurfa að hafa borist fyrir 10. júlí
til Framleiðni sf. Nánari upplýsingar veita Pétur
Olgeirsson framkvæmdastjóri á Vopnafirði, sími
97-3143 og Árni Benediktsson hjá Framleiðni sf.
Framleiðni sf.
Suðurlandsbraut 32
Reykjavík
Sími685414
tilkynningar
Hestar í óskilum
[ Ölfushreppi eru í óskilum 2 hestar. Brúnn
ómarkaður, rauðblesóttur mark heilrifað hægra.
Hestarnir verða seldir á uppboði föstudaginn 6.
júlí n.k. hafi eigendur ekki gefið sig fram fyrir þann
tíma og greitt áfallinn kostnað.
Hreppstjóri Ölfushrepps
Auka aðalfundur
í Sambandi eggjaframleiðenda verður haldinn
laugardaginn 30. júní n.k. kl. 13.30 að Hótel
Sögu. Fundarefni lagabreytingar og önnurvenju-
leg aðalfundarstörf. Félagar mæti stundvíslega
og hafið félagsskírteinin meðferðis.
Stjórnin.
t
Eiginmaður minn
Guðbjörn Eiríksson
fyrrverandi bóndi
Arakoti, Skeiðum
verður jarðsunginn frá Ólafsvallakirkju laugardaginn 30. júní
kl. 14.00.
Dagný Sigurbjörg Jónsdóttir
Faðir okkar og tengdafaöir
Snæbjörn Guðmundsson Ottesen
Syðri-Brú
áður bóndi Gjafbakka
verður jarðsunginn frá Þingvallakirkju föstudaginn 29. júní kl.
14. Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 12.45.
Börn og tengdabörn
Fimmtudagur 28. júní 1984 23
Moon óhress með
skattsvikadóminn
Washington-Reuter
■ Það er ekki algengt að séra
Sun Myung Moon, leiðtogi
Sameiningarkirkjunnar, komi
fram opinberlega. Þetta gerðist
þó í gær þegar Moon ávarpaði
þingnefnd í Bandaríkjunum þar
sem hann lét þung orð falla í
garð kommúnista, fjölmiðla og
ráðamanna í Bandaríkjunum,
og sagði þessa aðila hafa valdið
því að hann var dæmdur fyrir
skattsvik árið 1982.
Hæstiréttur í Bandaríkjunum
neitaði að taka áfrýjun Moons
á dómi héraðsdóms til greina en
þar var hann dæmdur í 25.000
dollara sekt og 18 mánaða fang-
elsi fyrir að telja ekki fram
100.000 dollara vexti af eignum
hans sem námu þá um 1,7
milljónum dollara á ýmsum
bankareikningum.
Moon sagði þingnefndinni að
frá upphafi hefði þetta mál ekki
snúist um skattsvik heldur hefði
■ Séra Moon
rikisstjórnin verið að skipta sér
af innri málefnum trúarinnar.
Hann sagði einnig að þrýstihóp-
ar í Kóreu, Japan og Bandaríkj-
unum hefðu reynt að gera hon-
um skráveifu vegna andkomm-
únískra skoðana hans. Þá sagði
Moon að kviðdómur hefði ekki
getað kveðið upp réttlátan dóm
því fjölmiðlar hefðu dregið
hann niður í svaðið og snúið
almenningsálitinu gegn sér.
Formaður þingnefndarinnar,
Dennis Deconcini, svaraði
Moon því tii að sem fyrrverandi
saksóknari hefði hann aldrei
heyrt dæmdan mann viður-
kenna að hafa fengið réttlát
réttarhöld fyrir kviðdómi.
„Þú getur ekki bæði átt kökuna
og étið hana“ sagði hann. „Þú
getur ekki fengið réttláta kvið-
dómsrannsókn og síðan skellt
skuldinni á kerfið ef dómurinn
fellur gegn þér.“
■ Ör tækniþróun aðferða til að ráða bót á barnlevsi
hefur komið löggjafarvaldinu víða í opna skjöldu. Stutt er síðan
málaferli hófust vegna tveggja fóstra sem urðu munaðarlaus þegar
foreldrar þeirra fórust í flugslysi áður en hægt var að koma þeim
fyrir í legi konunnar og nú er komið upp mál í Frakldandi þar sem
kona krefst þess að fá sæði látins eiginmanns síns til afnota.
Frakkland:
Málaferli vegna
tæknifrjóvgunar
París-Reuter
■ Franskur dómstóll mun í dag taka fyrir mál konu sem
vill gangast undir tæknifrjóvgun með sæði látins eigin-
manns hennar.
Eiginmaður konunnar lést af krabbameini í desember
en áður hafði hann gengist undir geislameðferð og þar sem
hætta var á að meðferðin gerði hann ófrjóan lagði hann
sæði inn í sæðisbanka svo kona hans, Corinne, gæti seinna
eignast með honum barn.
Síðan eiginmaðurinn lést hef-
ur Corinne farið þess á leit við
sæðisbankann að hún fengi sæð-
ið aftur. Bankinn hefur til þessa
neitað því og Corinne fór þá
með málið fyrir dómstóla.
Málið hefur vakið upp sið-
ferðilegar og lögfræðilegar
spurningar í Frakklandi og sýnir
fram á hve tækniþróunin er
komin langt fram úr löggjöfinni
hvað þetta varðar. Einn lög-
fræðingur Corinne sagði að mál-
ið snérist um hvort hægt væri að
skilgreina sæðið sem hlut, sem
hægt væri að skila aftur sam-
kvæmt almennum lögum. Sæðis-
bankinn heldur því fram að svó
sé ekki þar sem gjafinn er
látinn. Corinne segir aftur á
móti að hún hafi umráðarétt
yfir sæðinu sem nánasti ættingi
hins látna eiganda.
Jacues Roux, ráðuneytisstjóri
heilbrigðisráðuneytisins í
París, benti á aðra hlið málsins
þegar hann sagði að það væri
siðferðileg regla hvað varðaði
tæknifrjóvganir að þær yrðu að
eins gerðar með samþykki
beggja hjóna og þar af leiddi að
þau þyrftu bæði að vera á lífi.
Ef dómstóllinn úrskurðar Co-
rinne í hag er vandamái hennar
samt ekki að fullu leyst. Sam-
kvæmt frönskum lögum teljast
börn óskilgetin ef þau fæðast
meira en 300 dögum eftir að
faðir þeirra fellur frá.
Foreman
látinn
Los Angeles-Reuter
■ Bandaríski kvikmynda
framleiðandinn og leik-
stjórinn Carl Foreman lést
af völdum krabbameins á
heimili sínu í Los Angeles
í gær
Foreman sem fæddur
var árið 1914, komst eins
og fleiri kvikmynda-
frömuðir á svartan lista á
tímum McCarthy-ismans
árið 1951 og flúði þá til
Englands. Þá hafði hann
nýlokið við að skrifa og
framleiða myndina High
Noon, sem fiestir kvik-
myndaunnendur kannast
við.
í Bretlandi skrifaði
hann handritmyndarinnar
Brúin yfir Kwaifljótið, og
fékk Óskarsverðlaun
fyrir. Að vísu skrifaði
Foreman ekki undir eigin
nafni og hélt þeim sið á
meðan kommúnista-
ofsóknirnar stóðu yfir í
Bandaríkjunum.
Foreman hélt amerísk-
um ríkisborgararétti sín-
um en frantleiddi þó marg-
ar myndi í Bretlandi sem
hann skrifaði einnig hand-
rit að, sú kunnasta þeirra
er e.t.v. Byssurnar frá
Navarone. Hann leik-
stýrði einnig myndum sín-
um í seinni tíð og var oft
tilnefndur til Óskarsverð-
launa.
Hann var sæmdur heið-
ursmerki bresku krúnunn-
ar árið 1970 fyrir framlag
sitt tii breskrar kvik-
myndagerðar.
Börn dæmd
til dauða
■ Dagblað í Teheran Einnig hefur verið skýrt
skýrði svo frá að tvö börn, frá því að 11 pólitískir
13 og 14 ára hafi verið fangar í bænum Rasht hafi
dæmd til dauða. venð teknir af lífi.